Sunnudagur, 14. apríl 2013
Mistök hjá Kýpur að taka upp evru segir fyrrum utanríkisráðherra
Það voru mistök hjá Kýpur að taka upp evru árið 2008 sagði fyrrum utanríkisráðherra Kýpur í viðtali við Egil Helgason í Silfri Ríkissjónvarpsins í dag. Hún sagði jafnframt viðbrögð þríeykisins svokallaða, ESB, AGS og Seðlabanka Evrópu væri að ganga frá Kýpverjum dauðum.
Ráðherrann fyrrverandi, Erato Kozakou-Marcoullis, sagði Kýpverja marga vera undrandi yfir þeirri hörku sem ESB sýndi gagnvart þeim í yfirstandandi kreppu. Hún sagði að sú aðferð sem þríeykið svokallaða hefði ætlað að fara gagnvart sparifjáreigendum - aðferð sem kölluð var að snoðklippa sparifjáreigendur - hefði vakið upp hörð viðbrögð, ekki aðeins á Kýpur, heldur einnig á Möltu, í Luxemborg og í alþjóðlegum fjölmiðlum víðar í Evrópu og Bandaríkjunum.
Kýpverjar búa nú við miklar þrengingar, sagði ráðherrann fyrrverandi, og á henni og Agli Helgasyni var að heyra að betra hefði verið fyrir Kýpverja að halda sig við sitt gamla pund.
- Þið Íslendingar eruð á mörgu leyti fyrirmynd annarra, sagði ráðherrann, og var þar greinilega með það í huga hvernig Íslendingar hefðu tekist á við kreppuna. Þið eruð ákveðin og sjálfstæð sagði ráðherrann. Við erum hins vegar háð ESB, bætti hún við - And they are killing us!
Nýjustu færslur
- Tæki 15 ár að fá evru og tapa fiskimiðunum og orkunni í lei...
- Spurningin í þjóðaratkvæðagreiðslunni
- Samkvæmisleikur Evrópusambandssinna
- Stóri misskilningurinn
- Uppeldisfræðileg nýlunda
- Yfir lækinn til að sækja sér vatn
- Það er ástæða
- Rýrt umboð, eina ferðina enn
- Það er augljóst
- 10 milljarðar eru lika peningar
- Alvöru spilling
- Alvöru sparnaður
- Framsækið verðmætamat hinna réttsýnu
- Að hlusta á þjóðina
- Ósvarað
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 197
- Sl. sólarhring: 290
- Sl. viku: 2111
- Frá upphafi: 1186967
Annað
- Innlit í dag: 182
- Innlit sl. viku: 1870
- Gestir í dag: 176
- IP-tölur í dag: 173
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Árinni kennir illur ræðari.
Mistök Kýpverja voru að leyfa bankakerfinu að vaxa svo mikið að það varð óviðráðanlegt. Kannski hefur evran hjálpað til við það en hún var ekki orsökin.
Við höfðum ekki evru en þó óx bankakerfið enn meira hjá okkur.
Ásmundur (IP-tala skráð) 14.4.2013 kl. 23:01
Ásmundur: Það eru 17 ríki á Evrusvæðinu og af þeim hafa 5 þurft neyðaraðstoð. Að auki er allt útlit fyrir að Slóvenía muni þurfa neyðarlán fljótlega og Ítalía rambar á brúninni.
Ég myndi raunar halda því fram að þau fari bæði örugglega fram af fyrr eða síðar og fleiri á eftir vegna þess að á svæðinu er óleystur kerfisvandi en jafnvel þótt sú umræða sé sett til hliðar þá hlýtur þú að fallast að að efnahagslegar kollsteypur í þróuðum ríkjum eru áberandi tíðari innan Evrusvæðisins en utan - jafnvel þótt Íslendingum hafi tekist að koma sér í vanda án aðstoðar evrunnar.
Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 15.4.2013 kl. 00:18
Styrmir Gunnarsson:
Aðildarsinna á Íslandi varðar ekkert um kaldann veruleikann í evrulöndum
Allar fréttir sem berast frá Evrópu þessa dagana afsanna fullyrðingar aðildarsinna að Evrópusambandinu hér á á Íslandi um að aðild að ESB og upptaka evru mundi þýða nýjan og áður óþekktan stöðugleika hér.
Hvernig getur þetta fólk hér haldið því fram að í Grikklandi ríki eitthvað sem hægt er að kalla „efnahagslegan stöðguleika“. Það kann að vísu að vera hægt ef eingöngu er horft til stöðu banka. Það hafa milljarðatugir evra verið settir í að bjarga bönkum í Grikklandi.
Á síðasta ári yfirtóku bankar á Spáni rúmlega 30 þúsund heimili eða 115 heimili dag hvern. Þetta ástand hefur leitt af sér þjóðfélagslegan óróa á Spáni. Grasrótarsamtök á borð við samtök sem nefnast Fórnarlömb veðlána hafa skipulagt mótmæli fyrir utan heimili ráðandi stjórnmálamanna. Yfirvöld hafa gripið til þess ráðs að auðkenna mótmælendur og senda þeim sektarmiða upp á 6000 evrur eða um eina milljón króna.
Ekki þarf að hafa mörg orð um það sem gerzt hefur á Kýpur að undanförnu og nú er að koma í ljós að Kýpverja vantar enn meira fé til að endar nái saman og hafa nú orð um að selja gullforða sinn!
Evrópuvaktin:
„Portúgalir munu aldrei geta greitt skuldir sínar, sama hve mjög þeir þrengja sultarólina. Geti menn ekki borgað er eina ráðið að borga ekki. Þegar Argentínumenn gengu í gegnum kreppu borguðu þeir ekki. Gerðist eitthvað? Nei, það gerðist ekkert.“
Björn Bjarnason:
Það er ótrúlegt að allar viðvaranir sem berast frá evru-löndunum um erfiðleikana sem við er að etja þar, einkum í jaðarríkjum, skuli ekki breyta neinu um afstöðu þeirra sem enn berjast fyrir aðild Íslands að ESB og leyfa sér að láta eins og allt færi á betri veg hér með evru sem gjaldmiðil.
Elle_, 15.4.2013 kl. 00:31
Gleymdi einu:
Styrmir Gunnarsson:
Í Dublin sitja fjármálaráðherrar evruríkja á fundi og fyrir utan fundarstaðinn standa mótmælendur enda stendur nú ekki steinn yfir steini í þeirri aðgerð ESB/SE að knýja írsk stjórnvöld fyrir fjórum árum til að taka ábyrgð á öllum skuldbindingum írskra einkabanka.
Elle_, 15.4.2013 kl. 01:19
Hans, það sem dregur athyglina að evruríkjunum er samábyrgð ESB og viðleitni þess til að leysa vandamálin.
Margir hafa einnig hag af því að blása þessi vandamál upp. Þeir sjá ofsjónum yfir uppgangi evru sem ógnar stöðu bandaríkjadollars sem helstu myntar alþjóðlegra viðskipta.
Mörg lönd utan evrusvæðisins eru ekki í minni vandamálum en eru í aðstöðu til að sópa þeim undir teppið. Það kemur að skuldadögunum.
Vandamál evruríkjanna eru af mismunandi toga en eiga það sameiginlegt að hægt er að greina ástæðuna án þess að evra eigi þar neinn hlut að máli.
Það er svo annað mál að sumar þessara þjóða hafa ekki áttað sig á hvað það þýði að vera með evru og því flotið sofandi að feigðarós í algleymi.
Menn verða auðvitað að læra á þau tæki sem þeir nota. Annars getur hagurinn af þeim snúist upp í andhverfu sín.
Allavega ætti öllum að vera ljóst að vandamál evrunnar eru barnaleikur í samanburði við vandamál krónunnar.
Ásmundur (IP-tala skráð) 15.4.2013 kl. 08:16
Ótrúleg afneitun ESB sinna, það er alveg sama hvað gengur á, þeir berja hausnum við steininn. Það þarf að koma þessu fólki til geðlæknis.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.4.2013 kl. 10:00
Ásthildur Cesil, ég er þér hjartanlega sammála, en spurningin er, hvort læknar eða sálfræðingar eigi ráð , sem dugi gegn þráhyggju af þessum toga ? Nema þetta sé vitsmunaskortur ???!
Kveðja, KPG.
Kristján P. Gudmundsson, 15.4.2013 kl. 14:52
Já það er spurning, þá gagnast enginn ráð.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.4.2013 kl. 17:02
Kostuleg Ásthildur og Kristján.
Hér sprikla þau heilaþvegin algjörlega ófær um að standa fyrir máli sínu. Viðbrögðin sýna vel örvæntingu þeirra.
Mér finnst svona flónska bráðfyndin.
.
Ásmundur (IP-tala skráð) 15.4.2013 kl. 20:02
Vá Ásmundur nú toppaðir þú sjálfan þig í vitleysunni
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.4.2013 kl. 21:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.