Leita í fréttum mbl.is

Forystumaður samtaka hvetur til lögbrota

Í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar benti Jón Bjarnason fyrrverandi landbúnaðarráðherra á þá furðulegu staðreynd að forystumaður samtaka verslunar hér á landi hefur hvatt félagsmenn sína til að brjóta lög með því að flytja inn hrátt kjöt frá Evrópu og Bandaríkjunum.

Það er mjög alvarlegt þegar hvatt er til þess að lög verði brotin. Lög sem kveða á um bann við innflutningi á hráu kjöti eru sett með neytendavernd í huga. Þau eru sett til að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdóma. Álíka lög um matvæli eru til í öðrum löndum, m.a. í Bandaríkjunum, þar sem mikillar varkárni er gætt til að koma í veg fyrir sjúkdóma við ræktun ávaxta.

Verslunarmenn vilja skiljanlega hafa fleiri krónur í tekjuafgang í sínum rekstri. Í rekstrinum þarf að fara eftir ýmsum lögum og reglum. Það að forystumaður í samtökum verslunarmanna hvetur til þess að félagsmenn í samtökum hans brjóti lög til að auka tekjuafganginn leiðir bara til upplausnar.

Almenningur hér á landi sættir sig hvorki við lögleysu né ábyrgðarleysi í meðferð matvæla.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.5.): 149
  • Sl. sólarhring: 151
  • Sl. viku: 869
  • Frá upphafi: 1224238

Annað

  • Innlit í dag: 130
  • Innlit sl. viku: 751
  • Gestir í dag: 127
  • IP-tölur í dag: 125

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband