Sunnudagur, 8. febrúar 2015
ESB í uppnámi eftir stjórnarskiptin í Grikklandi
Fyrirheit og viðmið um starfsemi Efnahags- og myntbandalags Evrópu hafa verið margbrotin. Pólitísk trú ryður efnahagslegri skynsemi burt. Grikkir hafa gert uppreins gegn vinnubrögðum ESB og gríska bakterían er þegar farin að smita inn í vinstri flokka í Frakklandi og víðar.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í athyglisverðri grein Hjörleifs Guttormssonar sem birt var í Morgunblaðinu í vikunni.
Greinin er birt hér í heild sinni:
ESB í uppnámi eftir stjórnarskiptin í Grikklandi
Forystusveit ESB á ekki sjö dagana sæla á þessum vetri og það sama á við um almenning í mörgum aðildarrríkjum, þar sem atvinnuleysi hefur farið vaxandi, sérstaklega meðal ungs fólks. Stórsigri Syrizaflokksins í Grikklandi fyrir röskri viku má líkja við jarðskjálfta, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum á pólitískt landslag, einnig í öðrum skuldsettum ESB-löndum eins og á Spáni.
Þar kveður sér nú hljóðs fjöldafylkingin Podemos (Við getum) og skorar bæði sósíaldemókrata og hægriflokkinn PP á hólm. Sameiginleg krafa þessara hreyfinga sem skilgreina sig til vinstri er niðurfærsla skulda af hálfu lánardrottna, stöðvun einkavæðingar og innspýting í efnahagslífið m.a. með opinberum framkvæmdum til að draga úr atvinnuleysi. Fyrstu viðbrögð af hálfu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og þýskra stjórnvalda eru eitt stórt NEI, útstrikun og aflétting skulda sé ekki í boði. Á hinu leitinu eru síðan þjóðernissinnaðir hægriflokkar sem sækja í sig veðrið í krafti andúðar á sívaxandi fjölda innflytjenda og flóttafólks frá Afríku og stríðshrjáðum löndum fyrir botni Miðjarðarhafs. Þessar hræringar geta fyrr en varir breytt pólitísku landslagi í ESB og leitt af sér enn frekari sundrungu innan myntbandalagsins og jafnvel fall evrunnar.
Margir samverkandi þættir
Myntbandalaginu með evru sem gjaldmiðil var komið á um síðustu aldamót og nú eru 19 ríki aðilar að því. Sett voru ákveðin þjóðhagsleg viðmið fyrir þátttöku en fljótlega varð ljóst að þau voru ekki tekin hátíðlega, hvorki af fjölmennum eða fámennum ríkjum. Pólitískar fremur en efnahagslegar ástæður réðu för og fyrirhugaður fjárhagslegursamruni (fiscal union) hefur látið á sér standa. Efnahagsgrunnur evruríkjanna er líka mjög ólíkur og í mörgum þeirra er landlæg spilling, sem ekki hefur tekist að uppræta. Stórfelld tilfærsla fjármuna í skattaskjól eru opinbert leyndarmál og forseti framkvæmdastjórnar ESB, Lúxemborgarinn Jean-Claude Juncker, liggur undir ámæli fyrir að hafa rutt slíkum farvegum braut. Grikkland er eitt af þeim ríkjum þar sem spillt stjórnmálaöfl í samstarfi við auðjöfra hafa haft tögl og hagldir um langt skeið. Þessir aðilar, í samstarfi við ESB, Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og Seðlabanka Evrópu, hafa hert svo ólarnar að grískum almenningi að stór hluti kjósenda þar hefur nú sagt hingað og ekki lengra, og krafan um skuldaniðurfærslu endurómar æ víðar. Í Frakklandi hefur ríkt stöðnun samfara 10% atvinnuleysi og gríska bakterían er þegar farin að smita inn í raðir Sósíalistaflokksins sem er við stjórnvölinn og á nú í vök að verjast frá hægri og vinstri.
Hraðvaxandi samþjöppun auðs
Upplýsingar OECD og fleiri alþjóðastofnana um stöðuga samþjöppun auðs og eigna á æ færri hendur afhjúpar eðli og innviði ríkjandi efnahagskerfis. Þetta gangverk kapítalismans hefur lengi mátt vera lýðum ljóst, en með frjálsum fjármagnshreyfingum samhliða netvæðingu gagnaflutninga á síðasta aldarþriðjungi hefur orðið stökkbreyting sem ýtt hefur svo um munar undir þessa þróun. Jafnframt hefur orðið auðveldara að safna um hana tölfræðilegum upplýsingum og nýir samskiptamiðlar auðvelda almenningi að fylkja sér gegn óréttlætinu. Við blasir að hátt í helmingur af veraldarauði er kominn í hendur um 1% jarðarbúa og ekkert lát er á þeirri samþjöppun. Þessi þróun og ástæður hennar er meginþema í bók franska hagfræðingsins Thomas Pikettys, sem kom út á árinu 2013 og vakið hefurmikla athygli. (Ensk þýðing 2014: Capital in the Twenty-first century). Höfundurinn bendir á að þessi þróun sé ógnun við lýðræði og fé-lagslegan og efnahagslegan stöðugleika og leggur til stighækkandi kapítalskatta til að hamla gegn henni. Í Bandaríkjunum er þetta heitt umræðuefni þar sem þrengir mjög að millistéttarhópum, og svipað er uppi á teningnum innan ESB.
Spár um hrun evrunnar
Úr ýmsum áttum heyrast nú raddir sem spá ekki aðeins vaxandi erfiðleikum á evrusvæðinu, heldur telja að hætta sé á hruni myntsamstarfsins. Þannig taldi ritstjórn tímaritsins Economist sl. haust (25. okt. 2014) að mesti efnahagsvandi heimsins stafaði af verðhjöðnun innan evrusvæðisins. Á sama tíma og skuldabyrðin vex frá Ítalíu til Grikklands munu fjárfestar fyllast ótta, pópúlískir stjórnmálamenn fá aukinn stuðning og fyrr en seinna mun evran hrynja. Tveimur dögum fyrir grísku þingkosningarnar greip Mario Draghi, bankastjóri Seðlabanka Evrópu, til þess örþrifaráðs að láta bankann hefja seðlaprentun í stórum stíl til kaupa á skuldabréfum í von um að hamla gegn áframhaldandi samdrætti. Markmiðið er að ýta undir eyðslu og verðbólgu. Áhrifin á almenning eru að mati Der Spiegel (22. jan. 2015): Þeir sem spara munu tapa, en lántakendur hagnast. Eflaust bíða margir spenntir eftir að sjá hvort þessi hrossalækning skilar einhverju. Hún er hins vegar skýr sýnikennsla í því, hvernig komið er fyrir fullveldi ríkja sem afhent hafa Evrópusambandinu forsjá sinna mála.
Eftir Hjörleif Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Nýjustu færslur
- Til almennrar dreifingar!
- Krónan er ekki vandi
- Ísland náð sér fyrr eftir COVID en ESB
- Að munstra sig á sökkvandi skip
- Alltaf sama platið - hin skelegga Birna
- Leyndarhjúpur evrópska seðlabankans
- Efnahagslífið á evrusvæðinu nánast botnfrosið
- Viðvarandi langtímaatvinnuleysi víða í Evrópu, en minnst á Ís...
- Jaðarríkin í Evrópu líða fyrir evruna
- Evrunni hafnað þar sem hún gæti grafið undan lífeyriskerfinu
- Fjármálaeftirlitið óánægt með íþyngjandi regluverk ESB
- Er blásýra góð við þorsta?
- Fyrrverandi dómari gengur erinda Evrópusambands
- Myrkur og óöld
- Óþægileg léttúð
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 7
- Sl. sólarhring: 297
- Sl. viku: 2376
- Frá upphafi: 1165004
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 2028
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.