Leita í fréttum mbl.is

Vilhjálmur Birgis æfur yfir ESB-klíkunni í ASÍ

VilhjalmurBirgisVilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, lætur ESB-klíkuna í forystu ASÍ heyra það í pistli sínum á Pressunni í dag. Vilhjálmur segir það algjörlega magnað og ótrúlegt að sjá og heyra að áhyggjur miðstjórnar Alþýðusambands Íslands á síðasta miðstjórnarfundi lutu ekki að lökum kjörum og hörðustu verkfallsaðgerðum verkafólks á landsbyggðinni í áratugi. „Nei,“ segir Vilhjálmur, „heldur höfðu menn á þeim bænum meiri áhyggjur af bréfi utanríkisráðherra um afturköllun á aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið enda var ályktað á miðstjórnarfundinum um það mál.“

ASÍ-forystan er blind á kjör verkafólks í ESB-löndunum sem Jón Baldvin Hannibalsson segir vera svívirðileg. ASÍ-foystunni er meira umhugað um að draga kjör verkafólks á Íslandi niður á sama atvinnuleysisplanið og er í evrulöndunum heldur en að vinna af krafti af því að bæta kjörin hér á landi.

Hvenær ætlar íslenskt verkafólk að vakna til vitundar um villu forystusauðanna sem hreiðrað hafa um sig á skriftsofum ASÍ og kasta af sér því evrutrúboði sem þar ræður ríkjum?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég hef mikið álit á þessum manni og tek heils hugar undir með honum.  Fyrir nú utan þennan storm í vatnsglasi um kosningu um aðild að ESB, en svo þarf óvart breytingu á stjórnarskránni til að svo megi verða.  Fyrir nú utan að það var ESB sem stöðvaði ferlið á sínum tíma, svo þetta fólk sem er að magna upp óánægju veit svo miklu betur, það fólk er ekki að huga um þjóðína heldur að skemma fyrir og nýta sér áróður sem er að mínu mati fyrirlitlegt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.3.2015 kl. 18:18

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Væri það ekki sniðugt hjá heimsýn að fá evrókratann og sameiningarsinnann Francois Heisbourgh til að koma með fyrirlestur hingað. Þetta er ekkert smasíli í evrópusamhenginu.

Hér er heiðarleg sýn á söguna, stöðuna og framtíðarmöguleika sambandsins, sem hann viðurkennir að sé í kreppu á öllum vígstöðvum. 

http://youtu.be/RV_r7qVcIVA

Jón Steinar Ragnarsson, 21.3.2015 kl. 00:09

3 Smámynd: Elle_

En Brusselmenn vilja bara lítil síli og litla sílissporða fyrir Færeyinga og Íslendinga.  Það verður rosalega erfitt fyrir þá að sjá á eftir þessum manni ef hann er ekkert smásíli.

Elle_, 21.3.2015 kl. 00:52

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Var að enda við að hlusta á  Francois Heisbourgh,var orðin talsvert þreytt missti stöku orð,en samhengið dugði.Elle þetta er fyrir þig eins og að hlusta á Íslensku.

Helga Kristjánsdóttir, 21.3.2015 kl. 03:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.5.): 71
  • Sl. sólarhring: 126
  • Sl. viku: 929
  • Frá upphafi: 1224354

Annað

  • Innlit í dag: 64
  • Innlit sl. viku: 812
  • Gestir í dag: 62
  • IP-tölur í dag: 61

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband