Leita í fréttum mbl.is

Læknir varar við fersku innfluttu kjöti í kjölfar EFTA-dóms

Stjórnvöld þurfa að skilja vandann sem tengdur er nýjum lögum og reglugerðum um innflutning ferskrar matvöru og sem getur borið með sér sýklalyfjaþolnar/ónæmar bakteríur til landsins. Þetta segir Vilhjálmur Ari Arason læknir í grein sem hann birtir á Eyjunni nýverið. Hann bætist þar með í hóp fjölmargra sérfræðinga sem vara við afleiðingum EFTA-dómsins þar sem lagst var gegn innflutningstakmörkunum á fersku kjöti. Spjótin beinast nú að verðandi ríkisstjórn að sjá til þess að öryggi og heilsu landsmanna verði ekki fórnað fyrir einhvern smávægilegan stundargróða örfárra innflytjenda.

Sjá m.a. hérhér og hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vilhjálmur Ari Arason heimilislæknir bætist í hóp fjölmargra sérfræðinga. Enda þarf aðeins háskólapróf í einhverri grein til að flokkast sem sérfræðingur. Ekki er gerður greinarmunur á sérfræðingi sem hefur smitsjúkdóma sem sérþekkingu og einhverjum sem hefur heimilislækningar eða sálfræði sem sérþekkingu. Þeir sem hafa enga þekkingu á máli eru taldir eins og sérfræðingar sem hafa vit og þekkingu á málinu. "Fjöldi sérfræðinga" hefur því misst alla merkingu og hefur ekkert gildi.

Íslensk stjórnvöld töpuðu málinu vegna þess að ekki voru nein haldbær rök fyrir innflutningsbanninu. Ekki var hægt að sýna fram á að öryggi og heilsu landsmanna væri á nokkurn hátt stefnt í hættu. Ekki var hægt að sýna fram á að heilsu bústofns væri á nokkurn hátt stefnt í hættu. Fullyrðingar um að hættan væri raunveruleg var ekki hægt að sýna fram á að væru sannar. Hátíðarræðurnar um ágæti Íslenska kjötsins og hættuna af hinu erlenda reyndust innihaldslaus uppspuni.

Ufsi (IP-tala skráð) 30.11.2017 kl. 09:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 724
  • Frá upphafi: 1224093

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 625
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband