Leita í fréttum mbl.is

Meint upphaf neytendaverndar

Í lögum númer 39 frá 19. júní 1922 segir meðal annars:

Nú skortir hluti, þá er kaup gerðust, einhverja þá kosti, er ætla má að áskildir væru, eða það, sem hlutnum er áfátt, hefir gerst fyrir vanrækt seljanda eftir að kaup voru gerð eða seljandi hefir haft svik í frammi, og getur þá kaupandi krafist skaðabóta.

Lögin fjalla um lausafjárkaup og í þeim eru fjölmargar svipaðar greinar um skyldur kaupanda og seljanda.  Orðið „neytendavernd“ tíðkaðist ekki fyrir 100 árum, en ekki fer á milli mála að um er að ræða lagabálk sem er m.a. um neytendavernd.

Það kemur eflaust sumum í opna skjöldu að lesa rúmlega 100 ára gömul lög af þessu tagi.   Heimsmynd þeirra sem trúa því að neytendavernd hafi byrjað með samþykkt EES-samningsins hrynur með braki og brestum.  Þeir sem hafa skýrari sýn á raunveruleikann átta sig á hinn bóginn á því að ekkert bendir til að neytendavernd væri verri en hún er á Íslandi, þótt ekkert væri EES.

https://www.althingi.is/lagas/119/1922039.html


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Sérreglur um neytendakaup komu reyndar ekki inn í lögin um lausafjárkaup fyrr en þau voru endurnýjuð árið 2000.

Upphaf nútíma neytendaverndar má að talsverðu leyti rekja til lagafrumvarps frá John F. Kennedy árið 1962.

https://www.mass.gov/info-details/consumer-bill-of-rights

Guðmundur Ásgeirsson, 10.6.2024 kl. 00:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.11.): 345
  • Sl. sólarhring: 607
  • Sl. viku: 2852
  • Frá upphafi: 1166612

Annað

  • Innlit í dag: 307
  • Innlit sl. viku: 2454
  • Gestir í dag: 288
  • IP-tölur í dag: 281

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband