Leita í fréttum mbl.is

Ekki sporð

Öðru hverju sprettur upp hugmynd um að Ísland mundi ráða einhverju í sjávarútvegsmálum í Evrópusambandinu, ef það væri þar.  Það er auðvitað fráleitt, þótt hugsanlega gætu fulltrúar frá Íslandi fengið áheyrn stöku sinnum hjá þeim sem ráða.

Hjörtur fer ágætlega yfir þetta í nýlegri grein.  Hann minnir á að í makríldeilunni þurftu þær þjóðir sem hagsmuni höfðu og voru og eru í Evrópusambandinu að leita frétta hjá Íslendingum.  Ólíkt Íslendingum höfðu þær nefnilega ekki sæti við borðið. 

Hjörtur rifjar líka upp eftirfarandi:

Hefði Ísland verið innan Evrópusambandsins þegar makríll fór að leita í miklum mæli inn í efnahagslögsögu landsins er til að mynda ljóst að við hefðum ekki veitt svo mikið sem einn makrílsporð enda alls engan rétt haft til slíkra veiða samkvæmt regluverki þess. 

https://www.visir.is/g/20242594238d/-thid-vitid-hvad-thid-vaerud-ad-fara-ut-i-


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já,eitt af því, sem æstustu Evrópusambandssinnar segja til þess að slá ryki í augu okkar andstæðingana. Faðir minn sá í gegnum þetta og sagðist ekki ansa svona rugli og vitleysu á sinni tíð. Fyrir honum og móður minni, sem voru bæði fædd hér á landi undir konungsveldi Danakonungs, sögðu alltaf, að aðild að Evrópusambandinu myndi verða líkt og ríkjasamband Dana og Íslendinga. Fólk í dag skilur það ekki, enda svo langt um liðið síðan það var - heil áttatíu ár. Við andstæðingar Evrópusambandsaðildar látum ekki blekkjast svo auðveldlega. Við viljum frjálst og óháð Ísland, eins og Hulda skáldkona orti um í hátíðarljóði sínu. Lýðveldið lifi!

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 9.7.2024 kl. 14:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Okt. 2024
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.10.): 388
  • Sl. sólarhring: 536
  • Sl. viku: 2623
  • Frá upphafi: 1150333

Annað

  • Innlit í dag: 349
  • Innlit sl. viku: 2316
  • Gestir í dag: 323
  • IP-tölur í dag: 317

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband