Leita í fréttum mbl.is

Tíðindi frá VG i pípunni

VG heldur landsfund um helgina.  Þaðan er tíðinda að vænta.

Forystumenn VG boða að litið verði til grunngilda.  Enginn velkist í vafa um að meðal helstu grunngilda VG eru lýðræði og umhverfisvernd.

Á borðum þingflokks VG liggur tillaga um grundvallarbreytingu á stjórnkerfi Íslands.  Hún felst í nýrri forgagngsreglu handa löggjöf sem er upprunnin hjá gömlu stórveldunum á meginlandi Evrópu.  Tillagan heitir Bókun 35 og er furðusmíð sem miðar að því að gæta hagsmuna Evrópusambandsins gagnvart Íslandi.  Varla þarf að ræða lýðræði lengi á landsfundi VG til að bókun 35 lendi í ruslinu. 

Þá er það umhverfið.  Bókun 35 ryður leiðina að innlimun Íslands í orkubandalag Evrópu.  Evrópu þyrstir í hreina orku.  Þrýstingur á meiri orkuframleiðslu, með vatni eða vindi, mun aukast.  Sæstrengur mun þar bæta um betur.  

Og svo sakar ekki að rifja upp að stefna Evrópusambandsins er að orkuframleiðsla sé á frjálsum markaði.  Almenningur eigi á hinn bóginn að borga fyrir tengivirkin.  Núverandi fyrirkomulag á Íslandi passar ekki vel í þá mynd. 

Ef yfirvofandi skerðing lýðræðis dugir ekki til að VG-liðar hendi bókun 35 í ruslið, verður varla annað séð en að áhættan fyrir umhverfið og þrýstingur á einkavæðingu orkuframleiðslu ríði þar baggamuninn auðveldlega. 

Það verður sungið með um land allt þegar ruslakarfan í þingflokksherbergi VG verður tæmd eftir landsfundinn. 

https://vg.is/

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef Þórdís nær að koma þessu ákvæði gegnum þingið, sem ég raunar efast um að takist og vona líka, þá held ég við ættum að steinhætta að syngja þjóðernissöng Huldu skáldkonu einkum þar sem segir: "Svo aldrei verði íslensk þjóð öðrum þjóðum háð." - Ég held líka, að Þórdís ætti að vera í öðrum flokki en Sjálfstæðisflokknum, sem hún virðist ekki vita, að heitir svo, vegna þess að hann barðist fyrir sjálfstæði Íslands frá Dönum á sinni tíð. Menn virðast líka alveg vera búnir að gleyma sögunni, og hvernig var að vera undir aðra þjóð seld, og sækja allt vald og öll leyfi til Danakonungs. Það þarf greinilega að setja þetta fólk á skólabekk í sagnfræði Íslands frá þeim tíma, sem Ísland var í ríkjasambandi við Dani, og fyrirskipanir komu þaðan með haust- eða vorskipum til Íslands til Alþingis til samþykktar, og svo þurfti að senda öll lög héðan til Danmerkur, til Danakonungs og fá undirskrif hans. Það er eitthvað meira en lítið að því fólki, sem vill láta þá tíma koma aftur, og ræna okkur sjáfstæðinu, lýðræðinu og lýðveldinu. Ég leyfi mér að mótmæla slíku. Ég vil lifa í lýðveldinu Íslandi, þar sem við ráðum ein lögum okkar og lofum, og forseti vor undirritar lögin. Ég segi ekki annað.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 2.10.2024 kl. 15:47

2 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Tek undir allt sem Guðbjörg Snót segir

og engvu við það að bæta.

Sigurður Kristján Hjaltested, 2.10.2024 kl. 17:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.1.): 26
  • Sl. sólarhring: 269
  • Sl. viku: 1688
  • Frá upphafi: 1183272

Annað

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 1479
  • Gestir í dag: 20
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband