Leita í fréttum mbl.is

Satt segir Sigmundur

Í umræðum á Alþingi þann 11. febrúar gagnrýndi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson harðlega að bókun 35 væri sett á dagskrá nýrrar ríkisstjórnar án þess að þingmenn hefðu fengið aðgang að lykilgögnum málsins. Hann benti á að varnir Íslands í málinu hefðu verið afhentar utanríkismálanefnd í trúnaði og veifaði um leið svartri möppu. Þetta þýddi að þeir þingmenn sem höfðu séð þau mættu ekki tjá sig um efni þeirra opinberlega. Það væri því krafa um að þingmenn samþykktu breytingar sem snertu fullveldi Íslands án þess að fá að kynna sér öll gögnin. Hann taldi þetta fyrirkomulag algjörlega óásættanlegt og fordæmalaust í jafn stóru máli.

Sigmundur Davíð lagði ríka áherslu á að viðhald fullveldis fælist ekki aðeins í formlegu sjálfstæði Íslands heldur líka í því hvernig landið nýtti rétt sinn til að setja eigin lög og taka sjálfstæðar ákvarðanir. Með því að samþykkja bókun 35 væri verið að grafa undan þeim rétti með því að skuldbinda Ísland til að láta Evrópureglur vega þyngra en íslensk lög. Ef stjórnvöld gengju sífellt til móts við Evrópusambandið án þess að nýta möguleika EES-samningsins til að standa fast á íslenskum hagsmunum, væri verið að veikja fullveldið í reynd. Hann líkti þessu við svokallaða salamitaktík, þar sem sneið eftir sneið væri tekin af sjálfstæðinu, þar til ekkert stæði eftir.

Hann benti einnig á fáránleikann í þeirri röksemdafærslu að innleiðing bókunar 35 væri nauðsynleg til að bæta neytendavernd. Ef íslensk lög væru ekki nægilega sterk til að vernda neytendur væri lausnin einföld: að breyta þeim með lýðræðislegri umræðu á Alþingi, en ekki að færa Evrópusambandinu aukið vald yfir íslenskri löggjöf. "Fullveldi snýst um það að íslensk stjórnvöld taki sjálfstæðar ákvarðanir byggðar á hagsmunum landsins, ekki að samþykkja erlendar reglur sjálfkrafa," sagði Sigmundur Davíð.

Sigmundur Davíð gerði jafnframt formlega athugasemd við að umræðan færi fram án þess að þingmenn hefðu fengið öll gögn málsins í hendur. Að ræða svo stórt fullveldisatriði í blindni væri óásættanlegt, og hann skoraði á forseta Alþingis að tryggja að 2. umræða málsins færi ekki fram fyrr en þingmenn hefðu fengið fullnægjandi upplýsingar.

Fullveldi og fásinnan um neytendavernd í innleiðingu bókunar 35 verða ekki rædd án þess að þingmenn fái öll gögn á borð til sín eins og Sigmundur Davíð benti skilmerkilega á. Það er erfitt að sjá hvernig hægt er að réttlæta innleiðingu bókunar 35 á forsendum neytendaverndar, þegar hún í raun skerðir rétt Íslands til að setja eigin lög og taka sjálfstæðar ákvarðanir. Ef við sem þjóð ætlum að standa vörð um fullveldi Íslands, verður það að birtast í raunverulegum aðgerðum, ekki aðeins í orðum.

FULLVELDIÐ ER SÍVIRK AUÐLIND


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk fyrir þessa góðu færslu þið Heimsýnarmenn, ykkur er ekki alls varnað þegar hugur ykkar er ekki bundinn við Kreml og Pútín.

Sigmundur Davíð er klettur í hafinu, og hann molnar ekki eins og Kolbeinsey.

Rök hans eru kristaltær, þau vega að skrumi og þeirrar vitsmunalegu lágkúru að gera algjört aukaatriði að aðalatriði.

Hversu heimsk er sú mannvera sem trúir að meintur skortur á neytendavernd sé forsenda þess að Alþingi fari gegn stjórnarskrá lýðveldisins??

Og í hvaða skúmaskoti fannst það fífl sem trúir að meint neytendavernd sé drifkraftur regluverks Evrópusambandsins??

Var sem sagt tvö- til þreföldunar á orkuverði í Noregi og Svíðþjóð vegna hinnar meintu neytendaverndunar??

Ég vona innilega Heimsýnarmenn að þið séuð loksins komnir aftur til byggða eftir langvarandi göngu um villuslóðir tálsýna og öfugmæla, að þið standið núna vörð um sjálfstæði þjóðarinnar.

Og sú varðstaða felist í málflutningi sem laðar að en fælir ekki frá.

Ef þið eruð í vafa, mér skilst að eftirköst tálsýna geti ruglað dómgreind raunveruleikans, talið þá við Sigmund Davíð.

Hann veit sínu viti, og í dag er enginn honum fremri á Alþingi hvað það varðar.

Þrátt fyrir allt hafið þið hlutverki að gegna.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 13.2.2025 kl. 16:59

2 identicon

Virkilega góð grein hjá Heimsýn fullkomnlega sáttur við ykkur og þakka ykkur fyrir þessi skrif.

Sigmundur er ljósið í myrkrinu og ekki margir sem eru fallbeygðir EU á þinginu en erfitt er að treysta á stjórnarandstöðunna á þingi þar sem óvíst er hverjir eru keyptir eður ei. 

Góð ummmæli hjá Ómari þegar hann er ekki upptekin af allri hans neikvæðni á Putin.. Virðist lítið sjá í gegnum þann storm og ólíklegt að hann geri það á hans lífsleið. En ekki eru allir fullkominir og sérstaklega ekki Ómar. :)

Trausti (IP-tala skráð) 13.2.2025 kl. 22:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.2.): 3
  • Sl. sólarhring: 322
  • Sl. viku: 1960
  • Frá upphafi: 1198224

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 1782
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband