Leita í fréttum mbl.is

Eilífðarmálið og aðalmálið

Þessa dagana fjallar Alþingi um bókun 35 enn einu sinni.

Ýmsir angar þess máls kunna að vera flóknir.  Það eitt mælir gegn bókuninni. 

Aðalmálið er þó að bókun 35 er liður í því að færa vald frá lýðræðislega kjörnum fulltrúum á Íslandi til ókjörinna fulltrúa í erlendu ríkjasambandi.  Slíkt verður Íslendingum fyrr eða síðar til tjóns. 

 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hvaða vald myndu ókjörnir fulltrúar í erlendu ríkjasambandi fá hér á landi ef frumvarpið yrði samþykkt?

Guðmundur Ásgeirsson, 16.3.2025 kl. 14:32

2 Smámynd:   Heimssýn

Frumvarpið er geirnegling á framsali hluta löggjafarvaldsins til ESB sem farið hefur fram í gegnum EES, það er semsagt verið að festa óeðlilegt kerfi í sessi.   Svo eru furðu margir þræðir í þessu máli, sbr. sjónarmið Markúsar frá 2014 sem fjallað er um í umsögn Hjartar og fleira sem kemur fram í umsögnum Arnars Þórs, Ögmundar og Skúla.  Þær eru hér:   https://www.althingi.is/leit/?q=B%C3%B3kun+35     

Heimssýn, 16.3.2025 kl. 15:34

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta svaraði ekki spurningunni minni en kannski var hún ekki alveg nógu nákvæm. Ef gagnrýnin snýr að því að skyldan til að taka reglur sem hafa verið teknar inn í EES samninginn upp í landsrétt (þ.e. innleiðingarskylda) feli í sér framsal löggjafarvalds, þá er mikilvægt að hafa í huga að sú skylda kemur fram í 7. gr. EES samningsins sem hefur haft lagagildi á Íslandi frá 1. janúar 1994 en ekki í bókun 35. Umrætt frumvarp kveður ekki á um neina nýja eða aukna innleiðingarskyldu umfram það sem hefur alltaf gilt samkvæmt 7. gr EES samningsins.

Ég fæ á tilfinninguna að hér sé í raun fyrst og fremst verið að gagnrýna innleiðingarskylduna og þar með í raun EES samningin sjálfan. Ef litið er svo á að í innleiðingarskyldunni felist framsal valds til ókjörinna fulltrúa í erlendu ríkjasambandi, þá er það umræða sem á fullan rétt á sér. Það hefur samt ekkert með þetta umrædda frumvarp að gera því það felur ekki í sér neinar tillögur um nýja eða aukna innleiðingarskyldu.

Skýrir þetta betur hvað ég var nákvæmlega að spyrja um?

Hafa ókjörnir fulltrúar í erlendu ríkjasambandi eitthvað vald hér á landi? Ef svarið er já, myndi umrætt frumvarp bæta einhverju nýju þar við ef það yrði samþykkt og þá hvernig? Ef svarið er nei, myndi umrætt frumvarp færa þeim eitthvað slíkt vald ef það yrði samþykkt og þá hvernig? (Vonandi er þetta nógu nákvæmt.)

Guðmundur Ásgeirsson, 16.3.2025 kl. 16:26

4 identicon

Sælir; Heimssýnarmenn - sem og Guðmundur fornvinur Ásgeirsson !

Guðmundur minn. Í Guðanna bænum; vertu ekki svona barnalegur í viðhorfum:: Sovjet- Evrópa (Evrópusambandið) treður sjer inn í hverja þá smugu, þar sem aðildarlöndin og EES attaníossa löndin hafa skilið eftir, einhverjar smá glufur:: óútfylltar.

Brussel - Berlínar öxulinn; er svona ámóta viðurstyggilegur, sem gömlu Sovjetríkin (1922 - 1991) reyndust vera á sínni tíð, og leppríkin (Varsjárbandalagsríkin og COMECON) voru svona ámóta auðsveip þeim, sem Ísland og önnur EES lönd eru Brussel valdinu, hafir þú ekki með neinu móti eftir tekið, Guðmundur Ásgeirsson.

Hitt er annað mál; Haraldur Ólafsson Heimssýnar leiðari og dyggur varðmaður íslenzks fullveldis:: allsendis fölskva- og skrumlaust, að það rýrir stórum málflutning ykkar Heimssýnar fólks, að vera með linnulausar tilvitnanir í Hjört J. Guðmundsson:: dreng bjálfa, hver lagðist svo lágt að gerast sporgöngumaður Katrínar Jakobsdóttur,, illræmdrar landráða- og niðurrifs manneskju, í aðdraganda og eftirfylgni svonefndra forseta kosninga hjerlendis, í fyrrasumar.

Því miður; er Hirti J. Guðmundssyni ekki trystandi - fyrir næsta húshorn hvað þá hið þarnæsta, þegar um örlagaríkar tilhneigingar ýmissa áhangenda Brusssel valdsins til frekari yfirráða á Íslandi, er um að ræða.

Haraldur.

Minni þig enn og aftur; á áskorun mína til ykkar (í Maí mánuði 2021) þá jeg hvatti ykkur í Heimssýn til þess, að bjóða ykkur fram í kosningunum September mánuði, það sama ár.

Hefði það; ekki orðið ykkur til fremdar og ávinnings Haraldur að taka þeirri áskorun, hverri jeg beindi til þín þá - símleiðis ?

Með beztu kveðjum; sem endranær - og hættið að hafa Hjört J. Guðmundsson, sem einhvers konar mæniás - ykkar annarrs ágætu hugmyndafræði /    

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 16.3.2025 kl. 16:32

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og sextán?
Nota HTML-ham

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.3.): 149
  • Sl. sólarhring: 241
  • Sl. viku: 1963
  • Frá upphafi: 1205499

Annað

  • Innlit í dag: 125
  • Innlit sl. viku: 1762
  • Gestir í dag: 121
  • IP-tölur í dag: 121

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband