Leita í fréttum mbl.is

Jæja, Halla

Reykjavík, 25. apríl 2025

 

Forseti Íslands

Halla Tómasdóttir

Staðarstað, Sóleyjargötu

101 Reykjavík

 

Heiðraði forseti

Enn á ný hefur ríkisstjórn Íslands lagt fyrir Alþingi frumvarp til laga um forgang löggjafar sem á sér rætur í EES-samningnum.  Sama á við um skuldbindingar sem innleiddar eru með stjórnvaldsfyrirmælum.  Frumvarpið er jafnan nefnt „bókun 35“.

Í stjórnarskrá lýðveldisins Íslands segir að Ísland sé fullvalda ríki og að löggjafarvaldið sé aðeins í höndum Alþingis og forseta Íslands.  Sífellt vandséðara er að það fyrirkomulag að taka við löggjöf frá útlöndum, undir hótunum um refsingar verði hún ekki samþykkt, standist stjórnarskrána.  Bókun 35 hnykkir rækilega á þessu fyrirkomulagi og færir stjórnkerfið því enn fjær þeim ramma sem stjórnarskráin setur.

Er þetta ekki aðeins álit Heimssýnar, heldur fjölda sérfræðinga sem tekið hafa málið til skoðunar.  Hafa þeir allir efasemdir um að lögin standist stjórnarskrá.  Þeirra rök verða ekki endurtekin hér, en vísað er til umsagna Arnars Þórs Jónssonar, fyrrverandi dómara, um frumvarpið, álits Jóns Steinars Gunnlaugssonar, fyrrverandi hæstaréttardómara og prófessors í lögum, sem gerð er grein fyrir í umsögn Hjartar J. Guðmundssonar um umrætt frumvarp.  Einnig er vísað til greinar Markúsar Sigurbjörnssonar, fyrrverandi forseta hæstaréttar, í afmælisriti EFTA árið 2014, til greinar Stefáns Más Stefánssonar fyrrverandi prófessors í lögum í Morgunblaðinu, 17. febrúar 2025 og til umsagnar Skúla Sveinssonar hæstaréttarlögmanns um frumvarpið.  Þá er einnig vísað til umsagna Ögmundar Jónassonar, fyrrverandi dómsmálaráðherra, fyrrnefndrar umsagnar Hjartar J. Guðmundssonar og umsagna Heimssýnar um ýmsa þætti þessa máls.

Einnig verður ekki annað séð en að drjúgur meirihluti þjóðarinnar, skv. skoðanakönnun sem gerð var að beiðni Heimssýnar, sé andvígur málinu.  Samþykki Alþingi lögin um bókun 35 er því komin gjá milli þings og þjóðar.

Félagið Heimssýn, sem hefur að markmiði að standa vörð um fullveldi Íslands, hefur af þessu máli mjög miklar áhyggjur. Í því sambandi verður ekki hjá því komist að minna á að frumvarp það sem hér um ræðir var ekki hluti EES-lagabálksins þegar sá samningur var samþykktur. Það var meðal annars vegna þess að ef svo hefði verið, hefði samningurinn gengið gegn stjórnarskránni.

Förum við þess góðfúslega á leit við forseta Íslands að hann veiti máli þessu viðeigandi athygli og beini því til ríkisstjórnar og Alþingis að virða stjórnarskrána.  Fari svo að Alþingi samþykki umrætt frumvarp förum við fram á að forseti staðfesti ekki þau lög, enda gangi þau gegn stjórnarská lýðveldisins.

 

Fyrir hönd Heimssýnar

Haraldur Ólafsson, formaður

 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Ágætt bréf, en mér hefði fundist vanta að fara fram á það í lokin, að málið verði sett í þjóðaratkvæðagreiðslu, líkt og Ólafur Ragnar hefði gert, ef forseti neitar að skrifa undir. Það væri að mínu mati næsta skrefið, og vert að taka það fram í bréfinu. Ekki veitir af, því að ég treysti því ekki, að Halla mundi gera það óbeðin. Það yrði þá að safna saman undirskriftum til þess að fara fram á þjóðaratkvæðagreiðslu, og raunar ætti þetta mál að fara þá leiðina. Annað er ekki fært. Þetta varðar þjóðarhag. Svo einfalt sem það er.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 27.4.2025 kl. 10:44

2 Smámynd:   Heimssýn

Þökk fyrir skeytið, Guðbjörg Snót.  Hafni forseti að skrifa undir fer málið sjálfkrafa til þjóðaratkvæðagreiðslu.  Alþingi getur þó "hætt við" og það hefur gerst, en það var umdeilt hvort það mætti. 

Hitt er svo að það er ekki sjálfgefið að eðlilegt sé að 50,1% atkvæða eigi að duga til óafturkræfs valdaframsals, eins og rætt er um varðandi inngöngu í Evrópusambandið.    

Heimssýn, 27.4.2025 kl. 11:00

3 Smámynd: Jónatan Karlsson

Þið ágætu félagar í Heimssýn, sem kalla má áhugamenn um vörslu fjöreggs íslensku þjóðarinnar gerið hér heiðarlega tilraun í bréfi þessu til að höfða til samvisku og óumdeilds valds þjóðkjörins Forseta Íslands.

Það er nú þannig, að í hita kosningabaráttu segja frambjóðendur mikið og lofa mörgu, en þegar að efndum fagra fyrirheita kemur, þá hættir gamninu gjarna til að kárna.

Halla hefur beygt sig, hneigt og bugtað með mesta sóma fyrir henni þóknanlegum aðli heimsins, á meðan aðrir eru áberandi, eða jafnvel ögrandi afskiftir.

Ég óttast að Halla hafi öðrum áhugaverðari hnöppum að hneppa, en að fetta fingur út í hagsmunabrölt og áform innlimunarsinna, þannig að jafnvel minnstu viðbrögð við frómri ættjarðarbæn ykkar ágætu föðurlandsvinir, kæmu mér á óvart, því fas hennar allt, ber með sér hverra hag hún helst ber fyrir brjósti, eftir því sem ég, því miður, best fæ séð.

Jónatan Karlsson, 27.4.2025 kl. 11:58

4 identicon

Alveg rétt, Jónatan Karlsson, enda kaus ég ekki Höllu, því að ég treysti henni ekki. Nú vantar okkur Ólaf Ragnar Grímsson, eða mann eins og hann, sem hefði brugðist hart við í þessu máli. Mér finnst mikil eftirsjá í Ólafi. Halla segist hafa Vigdísi sem fyrirmynd, en ég er ekki viss um, að Vigdís hefði skrifað undir lög um bókun 35. Hún hefur alltaf verið meiri Íslendingur en það að gera slíkt. Arnari Þór var hafnað, því miður. Hann hefði þurft að vera forseti í dag og fá þessi lög á sitt borð. Hann hefði sennilega farið sömu leiðina og Ólafur Ragnar hefði gert. Það err víst ábyggilegt.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 27.4.2025 kl. 13:39

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og þrettán?
Nota HTML-ham

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 374
  • Sl. sólarhring: 402
  • Sl. viku: 1457
  • Frá upphafi: 1216222

Annað

  • Innlit í dag: 339
  • Innlit sl. viku: 1311
  • Gestir í dag: 329
  • IP-tölur í dag: 326

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband