Leita í fréttum mbl.is

Blessaður orkupakkinn sem gaf okkur ódýrt rafmagn

Verið er að færa völd yfir orkuauðlind Íslendinga til erlends ríkjasambands sem stjórnað er af gömlu nýlenduveldunum á meginlandi Evrópu.   Valdatilfærslan gerist í mörgum misstórum skrefum.  Skrefin eru bálkar laga og reglugerða og eru oft kölluð orkupakkar.  

Nýlega samþykkti Alþingi orkupakka 3 og orkupakki 4 er í farvatninu.

Rökin gegn þessu ferli eru að það sé best að Íslendingar stjórni sjálfir eigin orkumálum.  Þeirra hagsmunir fari ekki endilega saman við hagsmuni ríkja á meginlandi Evrópu, enda eru aðstæður þar allt öðruvísi en á Íslandi. Fyrr eða síðar kæmi þetta Íslendingum í koll.

Rökin með ferlinu voru þokukennd, en gengu annars vegar út á að Evrópusambandið vildi þetta og að það væri alls ekki öruggt að hið nýja fyrirkomulag yrði Íslendingum til mikils tjóns.  Þá var stundum fullyrt að rafmagnið yrði ódýrara og öruggara. Hið síðarnefnda var þó í mikilli þoku, enda vissu allir að það var bara bull, eins og komið hefur á daginn.  Ekki bara á Íslandi, heldur enn frekar í Noregi, þar sem fleiri og fleiri andvarpa þegar minnst er á EES.

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2025/05/03/haekkun_a_raforkuverdi_virdist_blasa_vid/


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Að sjálfsögðu er það bara bull og þvæla, sem heilaþvegnir ESB-sinnar á borð við ÞKG hafa gleypt við og halda fram til þess að hafa einhver "rök" fyrir stefbu sinni, en heilbrigð hugsun segir, að sé tóm tjara, og ekkert vit í. Það er eins og þetta fólk átti sig ekki á, eða hirði að öðru leyti ekki um, að við erum eyþjóð fjarri öðrum þjóðum og höfum ekki landamæri að neinu öðru ríki, og þurfum því ekkert að lúta neinum þeim lögum eða lofum, sem ESB er að senda frá sér og miða allt við Mið-Evrópu. Samfóar og Viðreisnarfólk vilja bara hvorki skilja það né virða, að við höfum ekkert við þær reglur að gera, sem miðast við landamæralönd í Mið-Evrópu, enda er þetta fólk með hugann annars staðar en á frjálsu einstaka eylandi, sem er hér uppá hjara veraldar langt fjarri öllum landamæralöndum. Allt hringsnýst í hausunum á Samfylkingar- og Viðreisnarfólki í samræmi við það, og að Ísland sé áfast við eitthvað af ríkjum Mið-Evrópu. Það sér hver heilvita maður, hvers konar áttavilltar manneskjur eru hér á ferðinni. Það er það versta, að alltof margir gleypa við ruglinu og vitleysunni í þessu fólki eins og nýju neti, því að það virðist enginn hugsa neina sjáfstæða hugsun af viti í dag, því miður. Ekki bætir þessi gervigreind um betur. Það þarf að fara að segja við fólk í dag, eins og Guðni rektor MR sagpu svo oft við okkur á ensku: Use the brain. Fólk þarf að fara að nota heilann í stað þess að einblína alltaf á það, sem stendur í snjalltsímunum og trúir öllu því, sem þar stendur og þetta æsta ESB-fólk segir, líkt og Guð hafi sagt það. Svo er það bara ekki. Þetta er ömurlegt ástand. Ég get ekki sagt annað.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 6.5.2025 kl. 12:00

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og fimm?
Nota HTML-ham

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 134
  • Sl. sólarhring: 217
  • Sl. viku: 1795
  • Frá upphafi: 1219124

Annað

  • Innlit í dag: 118
  • Innlit sl. viku: 1590
  • Gestir í dag: 117
  • IP-tölur í dag: 116

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband