Leita í fréttum mbl.is

Hann þrengir að öndunarveginum

Það er furðu útbreidd skoðun að íslenska þjóðin dragi nánast andann gegnum EES-samninginn og að án hans væru Íslendingar að borða úldið mjöl í torfkofum.   Ekkert er fjær sanni.  EES-samningurinn skiptir í raun litlu máli.  Ferðamenn kæmu þótt ekki væri EES, afurðir stóriðju fara á alþjóðlegan markað og fríverslun með iðnvarning innan Evrópu er í skjóli EFTA. Þá flytja þjóðir utan EES fisk til Evrópusambandslanda án tolla. Það er líka út í bláinn að fullyrða að EES skipti miklu máli fyrir menningu eða vísindi; engar vísbendingar eru um að það fé sem rennur til þeirra mála aukist við það eitt að sjóðir Evrópusambandsins séu þar milliliðir. 

Núna vilja margir Alþingismenn samþykkja bókun 35 sem flytur enn meira vald frá lýðræðislega kjörnum fullrúum á Íslandi til Evrópusambandsins.  Af því tilefni skrifar Arnar Þór þarfa ádrepu sem tengt er á hér að neðan. 

Það er nefnilega þannig að í stað þess að útvega súrefni þrengir EES og allt frekara framsal valds að öndunarvegi þjóðarinnar. 

 

https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2314976/

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Bókun 35 færir ekkert vald "frá lýðræðislega kjörnum fullrúum á Íslandi til Evrópusambandsins". Þvert á móti er áréttað í aðfararorðum hennar að löggjafarvald sé ekki framselt.

"Þar eð með samningi þessum er stefnt að einsleitu evrópsku efnahagssvæði sem byggist á sameiginlegum reglum, án þess að samningsaðila sé gert að framselja löggjafarvald til stofnana Evrópska efnahagssvæðisins..."

Ef einhver vafi leikur á er alltaf hægt að vísa til þessarra orða eins og hverra annarra lögskýringargagna, til dæmis ef á það reynir í dómsmáli hver fari í raun með þetta vald.

Guðmundur Ásgeirsson, 12.6.2025 kl. 22:04

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og þrettán?
Nota HTML-ham

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.6.): 128
  • Sl. sólarhring: 321
  • Sl. viku: 2029
  • Frá upphafi: 1228934

Annað

  • Innlit í dag: 120
  • Innlit sl. viku: 1834
  • Gestir í dag: 119
  • IP-tölur í dag: 119

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband