Leita í fréttum mbl.is

Regluverk ESB hentar hvorki Íslandi né ESB!

Á undanförnum áratugum hefur regluverkið í Evrópusambandinu þanist út og starfsmenn í hverju skrifstofuhorni í höfuðborgum álfunnar hamast við að skoða hvort samstarfsmenn og aðrir fari reglum, svona eins og að lögreglumaður væri á hverju götuhorni að hafa auga með vegfarendum. Í ViðskiptaMogganum í dag segir Haraldur Þórðarson forstjóri Skaga að regluverkið á íslenskum fjármálamarkaði sé hannað fyrir mun stærra markaðsumhverfi sem geri það að verkum að fjármálaþjónusta á Íslandi sé dýr miðað við það sem gengur og gerist annars staðar. Haraldur er alls ekki einn um þessa skoðun. Hún er útbreidd í öllu Evrópusambandinu. Forstöðumenn fjármálaeftirlita, m.a. hér á Íslandi, hafa ítrekað haldið svipuðu fram, nefnilega því að stórir hópar starfsmanna væru löngum stundum að tikka í óþörf box um að allt væri í lagi í stað þess að einbeita sér við það sem raunverulegum vanda gæti valdið. Mál er að linni.

Sjá m.a. hér:

Of flókið regluverk!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Regluverk EES á sviði neytendaverndar hentar íslenskum neytendum frábærlega eins og öðrum og góðu fréttirnar eru þær að við þurfum ekki að vera í ESB til að innleiða það hér á landi.

Því miður hafa fjármálafyrirtækin aldrei haft mikinn áhuga á að fylgja því regluverki og oft getað komist hjá því, gjarnan í skjóli annmarka á innleiðingu regluverksins.

Þetta þarf að laga, íslenskum neytendum til hagsbóta.

Guðmundur Ásgeirsson, 3.7.2025 kl. 00:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 344
  • Sl. viku: 2084
  • Frá upphafi: 1239429

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1845
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband