Leita í fréttum mbl.is

Meira af misskilningi Ágústs Ólafs

Fullveldissinnar dreifast víða og sumir skrifa af kappi.  Einn skrifar undir nafninu "Áhorfandinn".  Áhorfandanum þykir greinilega Ágúst Ólafur ganga óhóflega langt í lýðskrumi og svarar honum, lið fyrir lið. 

 

1. Vextir eru þrisvar sinnum lægri hjá ESB en á Íslandi.
Seðlabankinn stjórnar vöxtum á Íslandi eftir þörfum efnahagslífs okkar. Lækkun vaxta í þennslutímabilli væri ávísun á efnhagssjálfsmorð.
 
2. Verðlag á Íslandi er það hæsta í Evrópu.
Og launin með þeim hæstu líka. Ekkert myndi breytast við inngöngu í ESB. Það er ekkert sem stöðvar ESB fyrirtæki að opna útibú hér núna og lækka verðið.
 
3. Verðbólga er venjulega 2-3 hærri á Íslandi en í Evrópu.
Það er algjörlega eðlilegt að Ísland sem ungt og öflugt efnahagsríki hafi hærri verðbólgu en eldri ríki Evrópu sem eru að berjast við að ná upp efnahagsvexti.
 
4. Flest stærri fyrirtækja landsins, eða um 230 talsins, og þar á meðal eru sjávarútvegsrisarnir, hafa yfirgefið krónuna
Það er ekkert óeðlilegt við það að stór fyrirtæki með erlendar tekjur geri upp í erlendri mynt. Þetta er gert allstaðar.
 
5. Samkvæmt reglum ESB fá eingöngu þjóðir með nýlega veiðireynslu að veiða fisk í lögsögu aðildarríkja.
Fiskveiðilögsaga Íslands fer úr 200 mílum niður í 12 mílur. Reglur ESB geta síðan breyst á morgun og þá er ekkert tillit tekið til lítilla ríkja.
 
6. Aðild Íslands að ESB hefur engin áhrif á eignarhald og nýtingu orkuauðlinda.
ESB setur reglurnar. Þær geta breyst á morgun og enginn skal halda að væl í einhverjum Íslendingum muni stöðva þær breytingar.
 
7. Evrópuþingmenn raða sér í þingflokka eftir stjórnmálaskoðunum en ekki eftir þjóðernum. Íslenskir Evrópuþingmenn yrðu því í hópi stærri þingflokka sinna skoðanasystkina.
En samt áhrifalaus, enda Evrópuþingið áhrifalítil stofnun.
 
8. Með aðild yrðu öll viðskipti og netinnkaup Íslendinga án tolla og annarra gjalda milli Evrópuríkja.
Það er alls ekki rétt. Tollarnir heita bara öðrum nöfnum. Við erum í EES sem ætti að tryggja tollaleysi, þangað til ESB ákvað að breyta því einhliða.
 
9. Með aðild sæti Ísland við borðið og það skiptir máli.
Völd Ísland væru engin. Lítil ríki eru ánægð á meðan þau eru sammála öllu sem kemur frá Brussel.
En það er rétt það væru mörg matar- og kokteilboð í Brussel þar sem fulltrúi Samfylkingar eða Viðreisnar væri við borðið. Skál!
 
10. Ef ESB væri stofnun á Íslandi væri hún með svipaðan starfsmannafjölda og Skógræktin.
Þ.e.a.s. ef Skógræktin væri með skattlausa starfsmenn og löggjafarvald yfir heilli heimsálfu.
 
11. Aðild tryggir betur öryggishagsmuni Íslendinga
Við erum með varnarsamning við öflugasta herveldi heims. Það að flækja okkur í ESB með tilvonandi her Evrópu er ávísun á herskyldu barna okkar og enga vernd.
 
12. Danmörk og fleiri allt fullvalda ríki með eigin fjárlög, eigin skattastefnu og sín eigin innlendu deilumál þrátt fyrir að vera aðilar að ESB.
Danmörk var látið setja hafnarbann á eigin þegna að kröfu Brussel árið 2013 án þess að danir gætu neitt við ráðið.
Evrópusambandið hefur ítrekað sýnt Íslandi fyllstu hörku í málum eins og Icesave, bankahruninu, tollamálum, fiskveiði og fleiru.
Það hlakkar í embættismönnum Brussel að ná báðum krumlum utan um okkur.
 

 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Einn punktur í viðbót: Verðtryggingin.

Ágúst Ólafur þreytist ekki á að halda því fram að "eina leiðin" til að losna við verðtryggingu sé að ganga í ESB og taka upp evru og gefur jafnframt í skyn að þá myndi það gerast sjálfkrafa. Þetta hefur verið staðfest sem lygi af engum öðrum en sjálfri sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi fyrir 15 árum síðan.

Á þessum fundi á sendiskrifstofu ESB var sendifulltrúanum sýnilega brugðið þegar var útskýrt fyrir honum að íslenskir aðildarsinnar væru að nota þessa lygi sem rök fyrir aðild.

Staðreynd málsins er sú að verðtrygging eru skrifuð á lánasamninga en ekki peningaseðla. Á lánasamningum stendur heiti gjaldmiðils við hliðina á lánsupphæð en kveðið er á um verðtryggingu allt annars staðar í skriflegum skilmálum lánsins (smáa letrinu). Prófum svo að breyta heiti gjaldmiðils, umreikna upphæðina miðað við gengismun og færa þá breytingu inn á skjalið. Viti menn, útkoman verður þá verðtryggt lán í öðrum gjaldmiðli!

Þessa tilraun getur hver sem er endurtekið með því að taka ljósrit af verðtryggðum lánssamningi og prófa að krota inn á það heiti annars gjaldmiðils og samsvarandi upphæð og athuga hvort það hefur nokkur áhrif á verðtryggingarskilmálann.

Guðmundur Ásgeirsson, 18.8.2025 kl. 13:18

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sex og tuttugu?
Nota HTML-ham

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.8.): 341
  • Sl. sólarhring: 680
  • Sl. viku: 3513
  • Frá upphafi: 1248171

Annað

  • Innlit í dag: 310
  • Innlit sl. viku: 3126
  • Gestir í dag: 299
  • IP-tölur í dag: 296

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband