Leita í fréttum mbl.is

Er líklegt að Noregur gangi í ESB?

norski_faninnEins og staðan er í dag verður það að teljast afar ólíklegt, ef ekki hreinlega útilokað, að Noregur muni nokkurn tímann ganga í Evrópusambandið. Afstaða Norðmanna til Evrópusambandsaðildar hefur á liðnum árum verið nokkuð fyrirferðamikill hluti af umræðunni um Evrópumálin hér á landi þar sem sumir hafa viljað meina að gengju Norðmenn í Evrópusambandið myndi samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES), sem Ísland er aðili að ásamt Noregi, Liechtenstein og aðildarríkjum Evrópusambandsins, heyra sögunni til. Staðreyndin er þó sú að ekkert segir að sú yrði raunin.

Í Noregi eru tveir af þeim sjö stjórnmálaflokkum, sem sæti eiga á norska Stórþinginu, hlynntir aðild að Evrópusambandinu, Verkamannaflokkurinn og Hægriflokkurinn. Það er þó talið útilokað að þeir geti myndað ríkisstjórn saman sem þýðir að jafnan eru í ríkisstjórn flokkar, einn eða fleiri, sem andvígir eru Evrópusambandsaðild.

Eins og kunnugt er hafa Norðmenn tvisvar hafnað Evrópusambandsaðild í þjóðaratkvæði, fyrst árið 1972 og síðan aftur 1994. Í bæði skiptin töldu stjórnvöld næsta víst að aðild yrði samþykkt enda bentu skoðanakannanir til þess að svo yrði. Niðurstaðan varð þó önnur eftir að andstæðar fylkingar höfðu tekizt á um málið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslanna.

Ljóst þykir að afleiðing þessa sé m.a. minni áhugi en áður hjá Evrópusambandinu á nýjum aðildarviðræðum við Noreg kæmi til þeirra. Leiðandi Evrópusambandssinnar í Noregi hafa fyrir vikið lýst því yfir að ekki verði látið reyna á aðild í þriðja skiptið nema svo gott sem öruggt sé að hún verði samþykkt í þjóðaratkæði. Ekki verði hætt á að aðild verði hafnað í þriðja skiptið.

Staða mála í Noregi er raunar slík að harðir Evrópusambandssinnar, eins og forsætisráðherrann Jens Stoltenberg, hafa gengizt við því opinberlega að Norðmenn séu meira en sáttir utan Evrópusambandsins, séu í dag að uppskera ávinninginn af þeirri ákvörðun að standa utan sambandsins og að ekki sé útlit fyrir að nokkurn tímann verði sótt um Evrópusambandsaðild þar í landi á nýjan leik.

Ennfremur var greint frá því í norskum fjölmiðlum í lok árs 2007 að Thorbjørn Jagland, fyrrum utanríkis- og forsætisráðherra Noregs og núverandi forseti norska Stórþingsins, væri búinn að gefa upp alla von um Noregur eigi eftir að ganga í Evrópusambandið, a.m.k. í náinni framtíð. Ástæðuna sagði hann þá að Norðmenn hefðu það einfaldlega of gott utan sambandsins. Þetta þóttu stórar fréttir í Noregi, enda hefur Jagland lengi verið helsti leiðtogi norskra Evrópusambandssinna. 

Skoðanakannanir í Noregi, um afstöðu fólks til Evrópusambandsaðildar, hafa í gegnum tíðina ýmist sýnt stuðningsmenn eða andstæðinga aðildar í meirihluta, en síðan fyrirhugaðri stjórnarskrá Evrópusambandsins var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslum í Frakklandi og Hollandi í byrjun sumars 2005 hefur meirihluti haldizt gegn aðild og þá iðulega mikill meiihluti.

Það er því fátt sem bendir til þess að Norðmenn muni ganga í Evrópusambandið í fyrirsjáanlegri framtíð ef nokkurn tímann.

Hjörtur J. Guðmundsson


Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 142
  • Sl. viku: 906
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 808
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband