Bloggfærslur mánaðarins, maí 2019
Fimmtudagur, 30. maí 2019
Orkupakkinn verri en Icesave
Í umræðum síðustu daga um Orkupakka 3 hefur komið fram að samþykkt hans á Alþingi getur haft miklar afleiðingar fyrir afkomu íslenska ríkisins og þar með þjóðarinnar allrar. Komið hefur í ljós að hinn svokallaði fyrirvari, sem virðist helst felast í einhverjum kunningjasamtölum í útlöndum, hefur enga þýðingu. Standi Alþingi í vegi fyrir lagningu sæstrengs, sem bresk fyrirtæki virðast nú þegar tilbúin að hefja undirbúning á (sæstrengur er sagður fullfjármagnaður), þá á íslenska ríkið yfir höfði sér himinháar bótakröfur frá viðkomandi fyrirtæki eða fyrirtækjum og verður að öllum líkindum dæmt til að greiða stórar fjárhæðir miðað við nýleg dómafordæmi.
Á hvaða vegferð er ríkisstjórnin eiginlega? Ríkisstjórnarflokkarnir berjast þarna gegn meirihlutasamþykktum eigin flokksfólks og vilja meirihluta þjóðarinnar. Fyrir hvern er ríkisstjórnin eiginlega að berjast?
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 10:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 28. maí 2019
Skorað á Alþingi að fresta orkupakkanum til hausts
Ótal spurningum er ósvarað í málinu. Þeim verður að svara áður en málið er afgreitt. Á meðan leitað er svara geta stjórnvöld reynt að sannfæra þjóðina um orkulagabálkurinn sé þjóðþrifamál.
Með því að líka við hér, styðja menn áskorun um frestun:
https://www.facebook.com/%C3%81skorun-til-forseta-Al%C3%BEingis-2338736622856754/
https://kjarninn.is/skodun/2019-05-28-hvers-vegna-ad-fresta-orkupakkamalinu/
Laugardagur, 25. maí 2019
Steingrímur getur bjargað heiðri VG
Steingrímur Sigfússon, forseti Alþingis, getur bjargað því litla sem eftir er af heiðri VG varðandi afstöðu til orkumálanna með því að leyfa umræðunni um þau að halda eins lengi áfram og þingmenn vilja.
Útifundurinn í dag og sú þverpólitíska hreyfing sem myndast hefur gegn Orkupakka 3 endurspeglar andstöðu þjóðarinnar við pakkann og þann ótta að hann geti leitt yfir þjóðina miklar ógöngur. Þess vegna er mikilvægt að halda andstöðunni áfram og þökk sé þeim sem standa vaktina í þeim efnum.
Þess vegna skulum við sem flest mæta og sýna okkur á útifundinum á Austurvelli klukkan 14 í dag.
Ekki farinn að hugleiða umræðustöðvun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 24. maí 2019
Orkumótmæli á Austurvelli kl.14, laugardaginn 25. maí 2019
Þingmenn Miðflokks spyrja nú á hverri nóttu áleitinna spurninga um ýmsar afleiðingar allra þeirra bálka sem kallaðir hafa verið 3.orkupakki Evrópusambandsins. Stjórnvöld og flestir þingmenn láta það allt sem vind um eyru þjóta og virðast vilja samþykkja allt að óathuguðu máli af ástæðum sem eru óskýrðar.
Krafan um að spurningum verði svarað og málinu frestað a.m.k. til hausts mun verða höfð í frammi á Austurvelli kl.14, laugardaginn 25. maí.
Ávörp flytja Birgitta Jónsdóttir, Haraldur Ólafsson, Styrmir Gunnarsson og Vigdís Hauksdóttir
https://www.facebook.com/events/2337268616525513/?notif_t=plan_user_associated¬if_id=1558702091476413
Þriðjudagur, 21. maí 2019
Orkupakkinn færir EES í EES-plús
Ýmislegt er óljóst í huga margra varðandi svokallaðan orkupakka númer þrjú. Hins vegar virðist lang flestum orðið ljóst að samþykkt orkupakkans snýst ekki um að tryggja tilvist EES-samningsins heldur að auka við hann í eins konar EES-plús, eða jafnvel EES++. Með þessu minnkar alltaf bilið sem var á milli ESB og upprunalega EES.
Þetta eru bara góðar umræður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 18. maí 2019
3 OP: náttúrunni fórnað fyrir markaðsöflin
Ef Ísland innleiðir 3. orkupakkann mun Evrópusambandið krefjast þess að ESB-reglur gildi um virkjanir hér á landi. Út á það gengur regluverk ESB, eitt skal yfir alla ganga.
Það hefur í för með sér að evrópskum markaðsöflum verður gefinn laus taumurinn í náttúru Íslands.
Íslendingar munu ekki lengur ráða virkjunarframkvæmdum hér á landi. ESB-reglur gilda framar landslögum.
Er eitthvað vit í því að framselja ákvörðunarvald yfir náttúruauðlindum okkar til Brussel?
Ber að krefjast markaðsverðs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 10:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sunnudagur, 12. maí 2019
Þverpólitísk samstaða gegn orkupakkanun
Meirihluti þjóðarinnar tekur afstöðu gegn orkupakkanum. Áberandi stjórnmálamenn úr öllu pólitíska litrófinu taka afstöðu gegn orkupakkanum. Nú síðast bættist Sturla Böðvarsson, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins og forseti Alþingis, í hóp fyrrverandi ráðherra úr Sjálfstæðisflokki, Vinstri grænun, Framsóknarflokki og úr hópi jafnaðarmanna.
Andstaðan við orkupakkann, eins flókinn og hann virðist vera við fyrstu sýn, er í raun megn.
Samþykkt hans þýðir hættu á að við séum að kasta frá okkur fjöreggi þjóðarinnar.Við þurfum óskoruð yfirráð yfir orkumálum hér á landi ekki síður en sjávarútvegsmálum. Fólk er smám saman að gera sér grein fyrir því.
Óforsvaranlegt að samþykkja orkupakkann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 12. maí 2019
Skoðanakúgun í Samfylkingunni?
Fregnir berast af því að mismunandi skoðanir varðandi orkupakkann margfræga séu ekki liðnar í Samfylkingunni. Til er umræðuvefur á vegum flokksins þar sem ætlunin var að gefa flokksfólki kost á að skiptast á skoðunum og ræða málin. En ekki orkumálin.
Viðri einhver efasemdir um orkupakkann mætir viðkomandi þvílíkur fúkyrðaflaumur og skammir sem ekki er hægt að verjast með öðru en draga sig út úr umræðunni. Þetta kemur svo sem ekki á óvart miðað við það að til langs tíma hefur aðeins ein skoðun varðandi ESB verið liðin í flokknum. Það er þó athyglisvert að það séu talsverðar efasemdir meðal Samfylkingarfólks um orkupakkann, eins og komið hefur fram á umræðuvef flokksins og í því að fyrrverandi ráðherrar Samfylkingar og Alþýðuflokks vara við samþykkt orkupakkans.
Opin og frjáls skoðanaskipti eru forsenda virks lýðræðis. Það er því hægt að hafa samúð með Össuri Skarphéðinssyni þegar hann kvartar yfir skömmum sem hann hefur fengið yfir sig á netinu. Honum ætti að vera í lófa lagið að draga úr slíku í sínum heimahögum og gera umræðuna opnari og málefnalegri í Samfylkingunni með því að leyfa andstæðingum orkupakkans að tjá sig án þess að fá yfir sig ómálefnalegan fúkyrðaflaum.
Varðandi þessa umræðu er hins vegar spurningin hvort umræða af þessu tagi geti orðið opin og frjáls þegar annars vegar stenda einstaklingar í lítt skipulögðum hreyfingum og hins vegar sameinað ríkisvaldið hér á landi, stór hagsmunasamtök hér innanlands, ríkisstjórnir annarra landa og samband á borð við ESB. Miðað við þetta ójafna valdahlutfall í umræðunni er það stórfrétt að meirihluti landsmanna skuli vera andvígur orkupakkanum.
En ræður hér vilji lýðsins eða verða það innlendar og erlendar valdastofnanir sem keyra sinn vilja í gegn?
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 9. maí 2019
Friðarverðlaunahafi vill leggja niður Evrópusambandið
Það vekur athygli að Lech Walesa, verkalýðshetja, friðarverðlaunahafi Nóbels og fyrrverandi forseti Póllands, leggur til að Evrópusambandið verði lagt niður. Hann segir það komið á leiðarenda, í öngstræti, og að Evrópubúar þurfi að byrja upp á nýtt. Þessi gamla kempa segir Evrópusambandið vera allt annað en lagt var upp með og að ósætti á milli ríkja sambandsins um leiðir sé varla yfirstíganlegt.
Ummæli Walesa vekja athygli, ekki hvað síst vegna þess að han hefur verið heldur hliðhollur ESB til þessa.
Nýjustu færslur
- Jólakveðja
- Friðarganga og Evrópusamband
- Nokkur hundruð milljarðar út um gluggann
- Við bíðum enn, Þorsteinn
- Skyggnigáfa Össurar?
- Villugjarnt á Kögunarhóli
- Tollabandalag eða tollfrelsi á grundvelli fríverslunarsamninga
- Nýtt örlagatímabil fer nú í hönd. Hver vinnur að þessu sinni?
- Eruð þið ekki örugglega staðföst í Flokki fólksins?
- Alltaf sama blíðan í Eyjum eða hvað?
- Mýtan um vexti
- Hörmungarsagan
- Vont, og versnar líklega
- Gott fyrir svefninn
- Lokuð leið
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 39
- Sl. sólarhring: 72
- Sl. viku: 2002
- Frá upphafi: 1176856
Annað
- Innlit í dag: 36
- Innlit sl. viku: 1824
- Gestir í dag: 36
- IP-tölur í dag: 36
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar