Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2025

Það vill þetta enginn

Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingarinnar talar afdráttarlaust á Útvarpi sögu. Hann er algerlega andvígur vígvæðingarstefnu Evrópusambandsins og styrjaldarrekstri.  

Allt bendir til að Guðmundur Árni og meginþorri íslensku þjóðarinnar séu sammála í þessu máli.

Það liggur í eðli málsins að Guðmundur Árni er allt annað en ákafamaður um að gera Íslendinga þegna í þessu stríðsæsta verðandi herveldi.  Hann segir það nánast beint út.  Líklega eru þau sammála um þetta, formaðurinn og varaformaðurinn. 

Þau vita sem er að fylgi Samfylkingarinnar byggir á því að reyna ekki að færa Íslendinga undir vald Evrópusambandsins, frekar en orðið er. 

Í raun er það bara einn stjórnmálaflokkur sem vill þröngva Íslendingum þarna inn.  Hann heitir Viðreisn.  Viðreisn fékk töluvert fylgi í síðustu kosningum með því að tala ekki um Evrópusambandið.  

Væri það ekki einkennilegt lýðræði ef þessi litli flokkur kæmi til leiðar, með brögðum, að Ísland óskaði eftir innlimun í Evrópusambandið með þeim gríðarlega kostnaði sem því fylgir og botnlausum ófriði. 

 

 https://utvarpsaga.is/varar-vid-vaxandi-hernadarstefnu/


Blessaður orkupakkinn sem gaf okkur ódýrt rafmagn

Verið er að færa völd yfir orkuauðlind Íslendinga til erlends ríkjasambands sem stjórnað er af gömlu nýlenduveldunum á meginlandi Evrópu.   Valdatilfærslan gerist í mörgum misstórum skrefum.  Skrefin eru bálkar laga og reglugerða og eru oft kölluð orkupakkar.  

Nýlega samþykkti Alþingi orkupakka 3 og orkupakki 4 er í farvatninu.

Rökin gegn þessu ferli eru að það sé best að Íslendingar stjórni sjálfir eigin orkumálum.  Þeirra hagsmunir fari ekki endilega saman við hagsmuni ríkja á meginlandi Evrópu, enda eru aðstæður þar allt öðruvísi en á Íslandi. Fyrr eða síðar kæmi þetta Íslendingum í koll.

Rökin með ferlinu voru þokukennd, en gengu annars vegar út á að Evrópusambandið vildi þetta og að það væri alls ekki öruggt að hið nýja fyrirkomulag yrði Íslendingum til mikils tjóns.  Þá var stundum fullyrt að rafmagnið yrði ódýrara og öruggara. Hið síðarnefnda var þó í mikilli þoku, enda vissu allir að það var bara bull, eins og komið hefur á daginn.  Ekki bara á Íslandi, heldur enn frekar í Noregi, þar sem fleiri og fleiri andvarpa þegar minnst er á EES.

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2025/05/03/haekkun_a_raforkuverdi_virdist_blasa_vid/


Það slapp í þetta sinn

Fullyrt er að hefðu Frakkar ekki haft trausta orkugjafa á borð við kjarnorku hefði bilunin á Spáni breiðst út um allt á meginlandi Evrópu. 

Magnús Þór Pálsson hefur eftir ónefndum manni að kerfið hafi ekki verið rekið á verkfræðilegum forsendum, heldur bjartsýni. 

Er ekki undarlegt að einhver á Íslandi skuli vilja að menn sem hafa hannað svona kerfi fái að stjórna orkumálum á Íslandi?  

 

https://www.facebook.com/watch/?v=704218405381708

 

 


Dagur öryggis

Dagur B. Eggertsson leitar í örvæntingu að ástæðu fyrir því að ganga í Evrópusambandið og hann kemst að því í nýlegri Moggagrein að Íslendingar verði fyrst öruggir þegar þeir gerast þegnar í sambandinu.

Af lagni tekst honum að skauta framhjá þeirri grundvallarstaðreynd að Íslandi er á áhrifasvæði Bandaríkjanna og Breta.  Þau veldi munu aldrei líða að ríki þeim fjandsamlegt fengi fótfestu á Íslandi.

Ekki segir hann heldur neitt um að stríðsæsingur valdamanna í Evrópusambandinu er meiri en hann hefur verið í mannsaldur.  Sambandið ætlar að vígvæðast fyrir himinháar upphæðir, enda er það í blóðugu stríði í A-Evrópu.  Allt bendir til þess að Íslendingar hafi minni en engan áhuga á því að borga þann reikning, enda væri jafngott, ef ekki betra, að sturta þeim peningum í sjóinn.


Sigurbjörn sprengir

Sigbjörn Svavarsson skrifar grein í Vísi í dag um EES-samninginn.  Hann er í stuttu máli veginn, metinn og léttvægur fundinn.  Sú niðurstaða, sem líklega er nokkuð rétt, er í raun sprenghlægileg í ljósi þess að hópur manna trúir því að Íslendingar dragi andann í gegnum þennan samning og landauðn væri, nyti hans ekki við. 

Það er kominn timi til að kanna hvað þessi samningur kostar Íslendinga.  Það er nefnileg ekki ókeypis að framfylgja öllum fyrirmælum Evrópusambandsins sem berast í stríðum straum út til Íslands frá Brussel.

https://www.visir.is/g/20252720910d/hver-er-vidskiptalegur-avinningur-af-ees-samningnum-


Meginmálið 1. maí

Heimssýn færir alþýðu Íslands bestu kveðjur og minnir á að til skemmri og lengri tíma er stærsta hagsmunamál launþega og allra annarra Íslendinga að geta valið sér stjórnendur sem stjórna í umboði fólksins í landinu og engra annarra.


« Fyrri síða

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 160
  • Sl. viku: 1804
  • Frá upphafi: 1223010

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 1576
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband