Bloggfærslur mánaðarins, júní 2025
Miðvikudagur, 25. júní 2025
Lítil vinna fyrir ungdóminn á evrusvæðinu
Atvinnuleysi hefur verið mikið meðal ungs fólks í Evrópusambandinu. Í apríl voru 2,9 milljónir ungmenna undir 25 ára aldri, eða 14,8%, án atvinnu samkvæmt Eurostat. Í heild meðal allra aldurshópa var atvinnuleysið á þessum tíma um 5,9%. Á bak við þá tölu eru 13 milljónir manna án atvinnu. Atvinnuleysið hefur almennt verið aðeins meira á evrusvæðinu þar sem það er nú um 6,2%. Einna mest hefur atvinnuleysið verið á jaðarsvæðum Evrópusambandsins, s.s. á Spáni, Ítalíu, Finnlandi og víðar þar sem stífur og stirður vinnumarkaður heldur fólki lengi án vinnu. Nýjustu tölur um atvinnuleysi hér á landi eru 3,1% samkvæmt vef Hagstofu Íslands.
Þriðjudagur, 24. júní 2025
Aðeins meira um veikleika Evrópusambandsins
Stjórnskipulag Evrópusambandsins gerir það að verkum að það bregst seint og illa við aðsteðjandi vanda. Það sást vel í evrukreppunni sem varaði nánast í um áratug eftir fjármálakreppuna 2008, en einnig í viðbrögðum við COVID og það má einnig heimfæra þetta upp á viðbrögðin við stöðu heimsmála nú. Þannig á ESB erfitt með að takast á við ýmsar innri og utanaðkomandi áskoranir, svo áraun vegna landfræðilegrar spennu, eins og sést á viðbrögðum við mannflutningum yfir Miðjarðarhafið og vegna viðskiptadeilna. Í öllu þessu eru það þjóðarleiðtogar í Evrópu sem stíga fram og takast á við vandann um leið og þeir keppast um að staðfesta áhrif sín meðal þjóðarleiðtoga heims.
Mánudagur, 23. júní 2025
Veikleikar Evrópusambandsins
Evrópusambandið hefur staðið frammi fyrir ýmsum vandamálum, sem sum hefðu ekki átt að koma á óvart ef litið hefði verið raunsætt á málin og varast að trúa á blindni á kennisetningar. Í fyrsta lagi er mjög mikill mismunur á efnahagslegum styrk á milli aðildarríkja sem skapar spennu í samstarfi ríkja sambandsins. Evran átti meðal annars a koma í veg fyrir þetta með sameiginlegri peningastefnu, sem átti að stuðla að sams konar útlánsvöxtum, sama verðlagi og hagvexti. Reyndin hefur orðið önnur. Í öðru lagi hefur sameiginlegt landamæraeftirlit skapað gífurlegan vanda og spennu í samstarfinu vegna mikilla og sveiflukenndra fólksflutninga og mismunandi viðbragða hinna ýmsu ríkja sem vilja fara þvert gegn stefnu ESB. Lýðræðishallinn er þekkt vandamál. Veigamiklar ákvarðanir eru teknar víðsfjarri lýðræðislegum vettvangi aðildarþjóðanna og lýðræðislegt aðhald að þeim sem taka veigamiklar ákvarðanir er veikt og óljóst, enda margar ákvarðanir teknar af embættismönnum í Brussel sem þurfa ekki að standa kjósendum reikningsskil gerða sinna. Þessu tengt er hið óheyrilega skrifræði ESB og kostnaður við ótrúlegan hægagang við margar sjálfsagðar ákvarðanir. Til dæmis hefur tekið óratíma að vinda ofan af skrifræðiseftirliti Evrópusambandsins á fjármálamarkaði þar sem ótölulegur fjöldi embættis- og starfsmanna situr daglangt við að tikka í eftirlitsbox um það sem ekkert er í stað þess að beina sjónum sínum að raunverulegum og fyrirsjáanlegum vanda sem hægt væri að vinna með mun færri starfsmönnum. Þannig er með regluveldisbáknið að það fer ekkert burt heldur er það nokkurn veginn kjurt.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 07:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 21. júní 2025
Kári sveiflar sverði
Kári heitir penni sem fær rými hjá Ögmundi Jónassyni. Í nýlegum pistli fjallar hann um bókun 35, andóf nokkurra þingmanna gegn henni og EES-samninginn.
Þar eru nokkur sannleikskorn sem vert er að staldra við. Eitt þeirra er hugmyndin um að Evrópulög verði "íslensk lög" við það að Alþingi stimpli þau. Það eru ekkert annað en skrauthvörf til að breiða yfir fullveldisafsalið sem fylgir núverandi fyrirkomulagi á samstarfi Íslands við Frakkland, Þýskaland og fylgiríki þeirra.
Kári mælir gegn því að aðgangur að markaði sé keyptur með fullveldi. Það er rétt, og óhætt er að bæta við að aðgangur Íslendinga að markaði Evrópusambandsins er aðeins að litlu leyti háður EES. Alþjóðlegir samningar og fríverslunarsamningur EFTA við Evrópusambandið skipta þar mun meira máli. Ísland er með öðrum orðum að kaupa sáralítið fyrir mikið.
Niðurlag pistils Kára er þetta:
"Er ekki kominn tími til að segja skilið við óttann og leita nýrra leiða og gera viðskiptasamninga sem víðast, án fullveldisafsals?"
https://www.ogmundur.is/static/files/pdfskjol/fullveldisafsal-bokun35.pdf
Fimmtudagur, 19. júní 2025
Svaraði Markús ekki?
Undarleg orðaskipti urðu 6.júní á Alþingi.
Fyrir liggur að Markús Sigurbjörnsson, fv. forseti hæstaréttar skrifaði fyrir nokkrum árum það sem ekki hefur verið túlkað öðruvísi en að bókun 35 gengi gegn stjórnarskrá íslenska lýðveldisins.
Kl. 20:28 upplýsir Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins að neitað hafi verið að óska eftir að Markús kæmi á fund nefndarinnar. Örfáum mínútum síðar segir Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingar hið gagnstæða, að Markúsi hafi verið boðið.
Ef Ingibjörg hefur rétt fyrir sér, hvers vegna mátti ekki bjóða Markúsi á fund nefndarinnar? Vilja Alþingismenn ekki hlýða á sjónarmið fv. forseta hæstaréttar um hvort eða hvers vegna frumvarp sem liggur fyrir Alþingi gangi gegn stjórnarskrá?
Ef Dagbjört hefur rétt fyrir sér vaknar upp spurningin hvers vegna Markús kom ekki fyrir nefndina. Svaraði hann hvorki tölvupósti né síma?
Umræðan á Alþingi:
https://www.althingi.is/altext/upptokur/raeda/?raeda=rad20250606T203641
Umfjöllun Hjartar J. Guðmundssonar um þetta sama mál:
https://www.stjornmalin.is/?p=18671
Miðvikudagur, 18. júní 2025
Einföld lausn
Átök eru um bókun 35. Stjórnarflokkunum finnst réttlátt og sanngjarnt að "áframhald á viðræðum" sem eru skrauthvörf fyrir "umsókn um innlimun" gangi til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hvers vegna skyldi þetta sama fólk ekki vilja hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um bókun 35 um leið og kosið er til sveitarstjórna á næsta ári?
Getur það tengst því að trúin á að Íslendingar muni ekki, þegar til kastanna kemur, skilja hina djúpu hugsun sem segir að framsal á valdi til ókjörinna manna í útlöndum séu "réttarbætur"?
Þriðjudagur, 17. júní 2025
Gleðilega þjóðhátíð
Segja má að 17. júní 1944 hafi verið lokadagur einnar aldar verkefnis sem fólst í að flytja stjórnvald inn í landið, í hendur kjörinna fulltrúa íslensku þjóðarinnar.
Með mátulegri einföldun má segja að það sem tapaðist á einum degi í fyrndinni tók öld að endurheimta.
Tíminn eftir lýðveldisstofnun er efalítið farsælasti tími Íslendinga. Það er varla tilviljun, það er nefnilega farsælast að þjóðir stjórni sér sjálfar. Það er kjarni málsins.
Heimssýn óskar landsmönnum nær og fjær gleðilegrar þjóðhátíðar.
Mánudagur, 16. júní 2025
Nagli Hjartar og nokkrar einfaldar staðreyndir
Í pistli dagsins hittir Hjörtur nagla á höfuðið. Niðurlagið er efnislega að hagsmunir Dana fari mun nær hagsmunum kjarna Evrópusambandsins, en hagsmunir Íslendinga mundu nokkru sinni gera.
Ísland er vissulega óralangt frá þeim sem ráða í Evrópusambandinu, en það skiptir ekki mestu máli. Önnur atriði á borð við fámenni, dreifbýli, örtungusamfélag, herleysi, mikla fjarlægð frá stórum mörkuðum, hlutfallslega mikið vægi ferðaþjónustu, sjávarútvegs og orkuframleiðslu eru allt atriði sem vega þungt þegar kemur að þvi að velta fyrir sér hvort best sé að Alþingi eða embættismenn Evrópusambandsins setji Íslandi lög.
https://www.stjornmalin.is/?p=16335
Sunnudagur, 15. júní 2025
Horft í gegnum þokuna í bókunarmálinu
Frumvarp um valdaframsal frá lýðæðislega kjörnum fulltrúum til Evrópusambandsins er til umfjöllunar á Alþingi. Einn flokkur virðist ekki ætla að bila í því máli. Óvíst er með hina. Rifjum upp nokkrar staðreyndir um þetta mál:
Um er að ræða valdaframsal sem klætt er í búning réttarbóta. Það eru álíka góð föt og þau sem allsberi keisarinn skrýddist.
Réttarbætur fást með löggjöf sem Alþingi setur. Fráleitt er að leita réttarbóta með almennu valdaframsali til vandalausra með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Meirihluti þjóðarinnar vill ekki bókun 35, samkvæmt skoðanakönnun prósents.
Bókun 35 er ljómandi gott tækifæri fyrir ríkisstjórn Íslands að sýna í verki ást sína á lýðræði og þjóðaratkvæðagreiðslum. Hvers vegna grípur hún ekki það tækifæri?
Einn ríkisstjórnarflokkanna gekk til kosninga með þá afdráttarlausu og skýru afstöðu að hafna bæri bókun 35. Meirihluti Alþingismanna hefur ekkert umboð frá kjósendum sínum til valdaframsalsins sem fylgir bókun 35.
Einn núverandi ráðherra ríkisstjórnarinnar sagði afdráttarlaust að bókun 35 stæðist ekki stjórnarskrá skömmu fyrir kosningar. Það hefur líka landsliðið í lögfræði gert.
Bókun 35 stenst ekki stjórnarskrá. Alþingi getur ekki leyft sér að setja lög sem ekki standast stjórnarskrá lýðveldisins. Slíkt hefur óhjákvæmilega eftirmál.
Ekkert kallar á samþykkt bókunar 35. Viðsnúningur stjórnvalda í málinu er óútskýrður. Allt tal um réttarbætur er augljóslega yfirvarp. Svara þarf spurningunum: Hvaða hagsmunir liggja að baki og hverju hótaði eða lofuðu embættismenn Evrópusambandsins?
Ef bókun 35 er sett í salt gerist ekki neitt sem skiptir máli.
Að lokum er vert að velta fyrir sér hvernig á því stendur að þingmenn vilja iðulega fullveldi fyrir kosningar, en ganga í björg með þeim sem vilja framselja sem mest af völdum til gömlu nýlenduveldanna að kosningum loknum. Hvað er það sem togar? Von um disk kúfaðan baunum með floti?
Laugardagur, 14. júní 2025
Landráð?
Hvað gerir þjóð þegar margir af fulltrúum hennar sem valdir hafa verið til löggjafar ganga meðvitað til þess verks að brjóta stjórnarskrá, færa erlendu stórveldi aukið vald á Íslandi, undir hótunum um refsiaðgerðir, verði valdið ekki framselt?
Um svona lagað hefur verið notað orðið "landráð". Margir tengja það við blóðugar styrjaldir þar sem menn taka sér stöðu með liði sem aðrir telja að þeir eigi ekki að styðja, en merkingin er auðvitað víðtækari.
Kæra hóps manna sem sagt er frá í hjálögðum tengli kann að hljóma undarlega í eyrum sumra, en þegar betur er að gáð er hún rökrétt viðbrögð við fyrirætlun stjórnvalda um lögfestingu bókunar 35.
https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2315027/
Nýjustu færslur
- Lítil vinna fyrir ungdóminn á evrusvæðinu
- Aðeins meira um veikleika Evrópusambandsins
- Veikleikar Evrópusambandsins
- Kári sveiflar sverði
- Svaraði Markús ekki?
- Einföld lausn
- Gleðilega þjóðhátíð
- Nagli Hjartar og nokkrar einfaldar staðreyndir
- Horft í gegnum þokuna í bókunarmálinu
- Landráð?
- Öskrandi stríðsvagn fyrir Íslendinga
- Hann þrengir að öndunarveginum
- Það er ekki smæðin
- Bréfið
- Einföld útskýring Jóns Steinars - og upprifjun Jóns Bjarnason...
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 99
- Sl. sólarhring: 132
- Sl. viku: 1877
- Frá upphafi: 1232045
Annað
- Innlit í dag: 86
- Innlit sl. viku: 1669
- Gestir í dag: 85
- IP-tölur í dag: 83
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar