Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2025

Evrópuher, tollheimta Evrópusambands o.fl. á Útvarpi sögu

Pétur Gunnlaugsson og Haraldur Ólafsson fóru yfir allnokkur atriði varðandi Ísland og Evrópusambandið, m.a. þá einföldu staðreynd að aðild og þar með aðildarferli gengur gegn stjórnarskrá lýðveldisins.  Nokkuð var rætt um yfirvofandi hervæðingu Evrópusambandsins, tollastríð og fleira.

https://utvarpsaga.is/islendingar-vilja-ekki-fodra-hergagnaidnad-evropu-2/


Fyrirspurnir og fyrirgreiðsla – næsta skref í forskriftinni?

Ríkisstjórnin hefur nú lýst því yfir að hún hyggist verja tugum milljóna af almannafé til þess að efla "lýðræðislega umræðu" í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Einkum er rætt um stuðning við félagasamtök, þar á meðal stéttarfélög sem eigi að fá hlutverk í upplýsingagjöf og umræðu.

En hvers konar umræða er þetta eiginlega?

Í bæklingi Evrópusambandsins "Understanding Enlargement" kemur skýrt fram að það sé markmið sambandsins að tryggja stuðning almennings í umsóknarríkjum. Til þess séu notaðar beinar aðgerðir: styrkir, samstarfsverkefni og sérstakt samtal við félagasamtök sem tali réttum rómi. Þar stendur að stuðla skuli að "skilningi á áskorunum aðildar" og að nauðsynlegt sé að ná í gegn þeim skilningi að stækkunin sjálf sé af hinu góða.

Það vekur því spurningar þegar ríkisstjórn Íslands hyggst verja háum fjárhæðum til að undirbúa "umræðu" með fyrirfram ákveðnu sniði og samstarfsaðilum sem hafa ítrekað lýst sig fylgjandi inngöngu. Þarna er ekki um að ræða hlutlausa upplýsingagjöf, heldur hluta af samþykkisaðgerð, sem Evrópusambandið hefur sjálft skilgreint sem nauðsynlegan þátt í aðildarferlinu.

Nú vantar bara síðasta skrefið í forskriftinni: að merkja sem "upplýsta lýðræðislega umræðu" það sem í reynd er afrakstur fyrirfram ákveðinnar stefnu, þar sem aðgangur og aðstoð eru aðeins í boði fyrir þá sem er


Forskirftinni fylgt!

Eitt af því sem Evrópusambandið leggur þunga áherslu á í tengslum við aðildarumsóknir er að fá almenning í umsóknarríkjum með í lið. Þetta kemur fram í margvíslegum gögnum frá sambandinu, þar á meðal í bæklingnum "Understanding enlargement" en í honum segir orðrétt að tryggja verði "stuðning almennra borgara" og að mikilvægt sé að „miðla betur árangrinum af stækkuninni og áskorunum vegna hennar til þess að afla stuðnings almennings.

Af þessum sökum hefur sambandið beitt sér sérstaklega fyrir því að efla samtal í umsóknarríkjum m.a. á vettvangi stéttarfélaga, neytendasamtaka og annarra félagasamtaka.

Í ljósi þessa er áhugavert að sjá hvernig ríkisstjórnin hyggst verja tugum milljóna króna af skattfé í "lýðræðislega umræðu" í aðdraganda þjóðaratkvæðis um hvort hefja skuli viðræður við ESB. Þar er sérstaklega minnst á stéttarfélögin. Það er augljóslega ekki tilviljun, nei alls ekki heldur er forskrift Evrópusambandsins fylgt í hvítvetna.


Ekki eitt einasta skref í átt að inngöngu - Bylgjan í dag

Planið er auðvitað að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um eitthvað sem fáir eru ósammála, eins og til dæmis að "talast við".  Í skjóli hennar er svo ætlunin að setja í gang aðildarferli meö öllu sem því fylgir, þar á meðal gríðarlegum fjárútlátum. 

Haraldur Ólafsson ræðir málin á Sprengisandi á Bylgjunni hér:

https://www.visir.is/k/6e12a9f7-ca74-4bf0-bc21-b2630a606ef1-1751803377289


Gegn stjórnarskrá og enn til umræðu - erindi til forseta áréttað og Jón lesinn

Í skeyti Heimssýnar til forseta Íslands í dag, 4. júlí 2025, segir m.a.:
 
Við þökkum fyrir skeyti embættisins, dags. 10. júní sl., til staðfestingar á móttöku á beiðni Heimssýnar um fund með forseta, og leyfum okkur að árétta beiðnina. 
 
Það er mikið áhyggjuefni að frumvarp sem ekki verður betur séð en að gangi þvert gegn stjórnarskrá sé enn til umræðu á Alþingi.
 
 
Bréfið er hér:
 
 
 
 
Ástæða er til að vekja athygli á tímabærri upprifjun Jóns Bjarnasonar á orðum Steingríms Hermannssonar:
 
 
Bæði Steingrímur og Guðni Ágústsson efuðust um EES-samninginn og það fór vel á því að sá síðarnefndi talaði hlýlega um forvera sinn á fjölsóttum Þingvallafundi í gær. 
 
 
 
 
 
 
 
 

Norðmaður fær vinnu hjá okkur

Í Noregi vill lítill minnihluti manna ganga í Evrópusambandið.  Flestir þeirra sem vilja ganga inn telja þó ekki tímabært að ræða það mál.  Þeir eru þó til sem vilja ræsa umræðuna um málið - eina ferðina enn. 

Ein þeirra sem vilja bæði að Norðmenn verði þegar í Evrópusambandinu og koma umræðu um það af stað er Hilde nokkur Björnland.  Hilde er hagfræðingur, en spennt fyrir Evrópusambandinu m.a. vegna þess sem menn hafa kallað "sæti við borðið" og vegna "öryggis", hvað sem það nú þýðir. 

Það síðasta sem fréttist af Hilde er að hún er komin í vinnu hjá íslenska ríkinu við að gefa Íslendingum góð ráð. 

 https://www.nrk.no/norge/bor-norge-ha-euro_-eksperter-rykende-uenige-1.17373426


Regluverk ESB hentar hvorki Íslandi né ESB!

Á undanförnum áratugum hefur regluverkið í Evrópusambandinu þanist út og starfsmenn í hverju skrifstofuhorni í höfuðborgum álfunnar hamast við að skoða hvort samstarfsmenn og aðrir fari reglum, svona eins og að lögreglumaður væri á hverju götuhorni að hafa auga með vegfarendum. Í ViðskiptaMogganum í dag segir Haraldur Þórðarson forstjóri Skaga að regluverkið á íslenskum fjármálamarkaði sé hannað fyrir mun stærra markaðsumhverfi sem geri það að verkum að fjármálaþjónusta á Íslandi sé dýr miðað við það sem gengur og gerist annars staðar. Haraldur er alls ekki einn um þessa skoðun. Hún er útbreidd í öllu Evrópusambandinu. Forstöðumenn fjármálaeftirlita, m.a. hér á Íslandi, hafa ítrekað haldið svipuðu fram, nefnilega því að stórir hópar starfsmanna væru löngum stundum að tikka í óþörf box um að allt væri í lagi í stað þess að einbeita sér við það sem raunverulegum vanda gæti valdið. Mál er að linni.

Sjá m.a. hér:

Of flókið regluverk!


« Fyrri síða

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.9.): 9
  • Sl. sólarhring: 269
  • Sl. viku: 1921
  • Frá upphafi: 1262236

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 1776
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband