Leita í fréttum mbl.is

Vefþjóðviljinn fjallar um Evrópumálin

vthAnnað slagið hefur skotið upp kollinum umræða um það hvort kasta beri krónunni og taka upp annan gjaldmiðil á Íslandi. Áður fyrr var einkum ræddur sá möguleiki að taka upp Bandaríkjadal og stundum heyrðust þær raddir að taka upp svissneskan franka. En eftir að evran kom til sögunnar hefur umræðan einkum snúist um hana. Um tvo kosti er að ræða varðandi evruna. Ganga í Evrópusambandið og gerast aðili að myntbandalaginu eða gera evruna að gjaldmiðli landsins án aðildar að myntbandalaginu og þá án nokkurs möguleika á að hafa áhrif á það.

Aðild að myntbandalaginu, og þar með Evrópusambandinu, er ekki beinlínis girnilegur kostur. Allt of margir fylgikvillar eru samfara aðild líkt og Vefþjóðviljinn hefur oft bent á. Sambandið er ólýðræðislegt, ógegnsætt, pólitísk elíta sambandsins ræður ríkjum og ríkin eru ósamstíga. Við það bætist að minni ríkin eru nær áhrifalaus sem mælir enn frekar gegn sambandsaðild Íslands. Valdamestu ríkin stjórna að mestu leyti því sem þau vilja stjórna í Evrópusambandinu. Þau eru jafnvel hætt að reyna að fara hljótt með það.

Greinina má lesa í heild á Vefþjóðviljanum.


"Leysum ekki vandamál með því að taka upp evruna"

bjarni_armannssonBjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, sagði í samtali við Vísi.is í gær að bankinn hefði ekki í hyggju að gera upp í evrum líkt og fjárfestingabankinn Straumur-Burðarás hafi ákveðið að gera og getgátur hafi verið uppi um að Kaupþing sé að íhuga. Bjarni sagði að það væri ekki mat forráðamanna Glitnis að það sé nauðsynlegt að gera upp í evrum og henda krónunni fyrir róða þó svo að starfsemi og umsvif Glitnis fari í síauknum mæli fram á erlendri grundu. Hann sagði að ekki mætti gleyma kostum íslensku krónunnar og vísaði frekar til ábyrgðar hins opinbera.

Bjarni sagðist frekar vilja sjá styrkari peninga- og fjármálastjórn hins opinbera hér á landi. "Þetta er ekki spurning um að hafa tröllatrú á íslensku krónunni, þetta er gjaldmiðilinn sem sé í gangi og hann endurspeglar styrk efnahagslífsins á hverjum tíma. Það er eðli gjaldmiðla." Aðspurður hvað honum þætti um orð margra að undanförnu um að íslenska krónan sé orðin það veik að það sé aðkallandi að íhuga aðra kosti, sagði Bjarni að íslenskt samfélag hefði gengið í gegnum mikið þenslutímabil að undanförnu og peningamálayfirvöld þyrftu að sjá til þess að lendingin yrði mjúk.

"Þeim mun verr sem lendingin verður, þeim mun meiri veikleika setjum við í krónuna. Ábyrgðin liggur í fjármálastjórninni og við leysum ekki vandamál með því að taka upp evruna," sagði Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, að lokum.

Frekari skoðanir Bjarna á þessum málum má lesa um á Rúv.is.


Evran og hagstjórn II

c_illugi_gunnarssonÍ kennslubók sem ber heitið „Jón Sigurðsson og hugmyndir 19. aldar. Saga fyrir unglingastig grunnskóla" og var gefin út af Námsgagnastofnun árið 2000, birtist eftirfarandi setning á blaðsíðu 45: „Meirihluti Íslendinga virðist á því að það yrði til mikilla hagsbóta að ganga í Evrópusambandið, en stjórnvöld eru ósammála því."

Blessuð börnin hljóta að spyrja sig að því til hvers að losa sig við danskan kóng ef í staðinn kom stjórnvald sem í einhverjum saman súrruðum andstyggilegheitum neitar að fara að vilja þjóðarinnar í jafn mikilvægu máli. Ég ætla höfundi bókarinnar reyndar ekki annað en það að hafa gripið einhverja skoðanakönnun sem þann daginn sýndi meirihlutafylgi við ESB aðild Íslands og ályktað nokkuð djarflega um málið. En þetta litla dæmi er lærdómsríkt.

Grein Illuga Gunnarssonar, hagfræðings, má lesa í heild á Vísi.is.


"Evran er engin töfralausn"

evranFréttablaðið birti þann 13. janúar sl. heilsíðuumfjöllun um evruna, krónuna og stöðu íslensks efnahagslífs undir fyrirsögninni "Evran er engin töfralausn" þar sem m.a. var rætt við Eddu Rós Karlsdóttur, forstöðumann greiningardeildar Landsbankans, Ernu Bjarnadóttur, hagfræðing Bændasamtaka Íslands, og Höllu Tómasdóttur, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs Íslands.

Edda Rós Karlsdóttir sagði m.a. að ef evran yrði tekin upp á Íslandi yrði að stjórna málum hér öðruvísi en gert hefur verið til þessa. "Staðreyndin er sú að evran sem gjaldmiðill verður hálfgerð spennitreyja. Við missum gjaldmiðil sem hefur séð um stóran hluta af aðlögun þjóðarinnar í efnahagsmálum og lagað samkeppnisstöðu atvinnugreina. Það hefur hingað til verið ómetanlegt því að sveiflurnar hafa verið svo miklar," sagði hún og ennfremur að ef dragi úr sveiflum og endurskoðun á fjármálum hins opinbera fari fram þá líði Íslendingum hvort sem er vel með krónuna. "Ef við lendum í vandræðum með efnahagsmálin og höfum ekki þessa aðlögun sem krónan hefur gefið þá kemur það fram í atvinnuleysi og rýrnun kaupmáttar. Það er hættan. Við Íslendingar höfum aldrei getað sætt okkur við þetta og okkur hefur tekist að afstýra því með krónunni."

Halla Tómasdóttir sagðist telja krónuna gerða að sökudólgi í umræðunni undanfarið eins og ofþenslan í hagkerfinu sé henni að kenna en ekki húsnæðisbreytingunum, ósamræmi í hagstjórn og framkvæmdunum á Kárahnjúkum. Hún sagði að umræðan ætti að snúast meira um aðhald hjá ríki og sveitarfélögum. Hún varaði við hugmyndum um að taka evruna upp einhliða án aðildar að Evrópusambandinu. Áður hafi aðeins illa stödd og lítt þróuð ríki með lítinn trúverðugleika kastað gjaldmiðli sínum og tekið einhliða upp evruna. "Þannig erum við ekki. Okkur er nær að ná jafnvægi í hagkerfið, taka síðan upp umræður til lengri tíma litið og setja fram áætlun um hvernig við ætlum að skipa málum til framtíðar."

Erna Bjarnadóttir sagðist ekki telja lausnina á efnahagsvanda þjóðarinnar felast í gjaldmiðilsskiptum því efnahagsvandinn verði áfram til staðar þó annar gjaldmiðill yrði tekinn upp hér á landi og þá yrðu ríkisfjármálin eina stjórntækið sem eftir yrði. Hún veltir upp umræðunni um afnám verðtryggingar frekar en að "gefast upp, leggja Seðlabankann niður og fá evruna."


Mun Airbus flytja starfsemi sína til Bandaríkjanna?

villepinFrönsk stjórnvöld kvarta þessa dagana mjög undan því að sterk staða evrunnar sé farin að skaða frönsk útflutningsfyrirtæki. Þetta kom m.a. fram hjá Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, á fundi með undirverktökum hjá franska flugvélaframleiðandanum Airbus í lok síðasta árs. Airbus hefur komið hvað verst út úr háu gengi evrunnar. Skuldir fyrirtækisins jukust um nær 200 milljónir evra á þriðja ársfjórðungi þessa árs sem er afleiðing þess að flugvélar þess eru seldar í dollurum á sama tíma og laun eru greidd í evrum. Óttast frönsk stjórnvöld jafnvel að svo kunni að fara að flugvélaframleiðandinn muni annað hvort leggja upp laupana eða sjá sig knúinn til að flytja starfsemi sína út fyrir evrusvæðið og þá hugsanlega til Bandaríkjanna.

Reglulega kemur upp sú staða að aðildarríki evrusvæðisins kvarti yfir of miklum sveiflum í gengi evrunnar, þá annað hvort að staða hennar sé of sterk eða of veik. Það vill nefnilega svo merkilega til að allir gjaldmiðlar heimsins eru háðir sveiflum og þ.m.t. evran þó sumir virðast halda að um sé að ræða eitthvað sem eingöngu sé bundið við íslensku krónuna.


Ætlar ekki að láta hafa sig að fífli aftur

bjorn_bjarnasonNýlega hitti ég stjórnmálamann úr Evrópusambandslandi, sem ekki hefur evru. Reynt var að innleiða evruna í landi stjórnmálamannsins en því var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann sagðist aldrei mundu mæla með því að nýju, eins og hann gerði fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna í landi sínu, að evran yrði gjaldmiðill þjóðar sinnar. Í kosningabaráttunni hefði hann farið mikinn í ræðum um hættuna af því að hafna evrunni – efnahagur þjóðarinnar myndi einfaldlega stórskaðast og hún dragast aftur úr öðrum. Hið gagnstæða hefði gerst, efnahagurinn utan evru-aðildar hefði blómstrað og styrkst meira en hjá evru-löndunum. Hann ætlað ekki að láta hafa sig að fífli aftur með því að mæla með evru með hrakspár á vörunum um lífið utan evru-lands.

Grein Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, má lesa í heild á heimasíðu hans Björn.is.


Evruhlátur breyttist í dollaraglott

c_ragnar_arnaldsHann gengur á með éljum í aðdraganda kosninga. Í því seinasta var ákaft fullyrt að fyrirtækin hefðu kveðið upp dauðadóm yfir krónunni og gerðu upp reikninga sína í evrum. Nú hefur því éli slotað. Í ljós kom að flest þessi fyrirtæki völdu dollarann!Áköfustu ESB-sinnar efndu til upphlaups sem stóð í nokkrar vikur og gekk út á að fyrirtækin í landinu væru að “yfirgefa krónuna og færðu ársreikninga sína í evrum”. Yfirlýsingar formanns stærsta stjórnarandstöðuflokksins, Ingibjargar Sólrúnar, í miðju áróðursélinu vöktu hvað mesta athygli, en hún hélt því fram hvað eftir annað að fyrirtækin væru með þessu að “flýja krónuna” enda væri hún “handónýt”! Við yrðum að taka upp evru. Svo var ákafinn mikill í þessu máli að helst leit út fyrir að reynt væri að hrópa krónuna niður. Markaðurinn var gripinn fáti og gengið féll á nokkrum dögum um 3%. Til viðbótar komu fréttir um að Kaupþing væri “að flytja eigið fé sitt yfir í evrur”. Nú hafa málin skýrst.

Grein Ragnars Arnalds, formanns Heimssýnar, má lesa í heild á bloggsíðu hans.


Formaður Heimssýnar í fjölmiðlum

c_ragnar_arnalds Það hefur sennilega ekki farið framhjá mörgum að talsverð umræða hefur skapast á undanförnum vikum um Evrópumálin og þá einkum evruna. Ragnar Arnalds, formaður Heimssýnar, hefur á undanförnum dögum verið boðið í viðtöl á nokkrum fjölmiðlum til þess að fara yfir þessi mál. Þannig ræddi hann við Jóhann Hauksson á Útvarpi Sögu 4. janúar sl. Síðastiðinn sunnudag 7. janúar mætti hann í Silfur Egils á Stöð 2 og ræddi þar við þá Össur Skarphéðinsson, þingmann Samfylkingarinnar, og Björn Inga Hrafnsson, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, auk þáttarstjórnandans Egils Helgasonar. Og loks var hann í viðtali í Speglinum á Rás 2 í gær 12. janúar þar sem einnig var rætt við Þorvald Gylfason, hagfræðiprófessor og einn ötulasta talsmann Evrópusambandsaðildar hér á landi.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Jan. 2007
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.7.): 37
  • Sl. sólarhring: 62
  • Sl. viku: 2010
  • Frá upphafi: 1240887

Annað

  • Innlit í dag: 35
  • Innlit sl. viku: 1835
  • Gestir í dag: 31
  • IP-tölur í dag: 31

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband