Leita í fréttum mbl.is

Lánardrottnar Grikkja brýna kutana

Uggur er í fjármálafurstum evruríkjanna vegna stórsigurs andstćđinga stefnu ESB í Grikklandi í gćr. Grikkir hafa fengiđ sem svarar 40 ţúsundum milljarđa króna (í evrum!) gegn ţví ađ skera hressilega niđur í ríkisrekstrinum. Evrumilljarđarnir hafa ekki fariđ í ríkisreksturinn í Grikklandi heldur eru vćntanlega geymdir sem eins konar sýndarfé á reikningum lánardrottnanna sjálfra til ađ tryggja ađ viđskipti Grikkja viđ útlönd geti gengiđ eđlilega fyrir sig. En nú segjast lánardrottnarnir vilja fá sitt aftur međ vöxtum og engum refjum og brýna ţeir ţví nú kutana til ađ skapa sér vígstöđu gagnvart nýjum stjórnvöldum í Grikklandi.

Líklegasta ţróunin er ţó sú ađ ESB, seđlabanki evrunnar og AGS gefi eftir gegn ţeirri skýru kröfu grísku ţjóđarinnar sem felst í niđurstöđu kosninganna ađ skilmálum lánanna verđi breytt. ESB mun fremur samţykkja léttari skilmála fyrir Grikki en ađ missa ţá úr evrusamstarfinu međ öllum ţeim kollsteypum sem ţađ gćti haft í för međ sér.

Kutum lánardrottnanna er ţví bara ćtlađ ađ hrćđa - ţví verđi ţeim beitt munu ţeir á endanum beinast gegn lánardrottnunum sjálfum.

 


mbl.is Endalok evrunnar í Grikklandi?
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Háttsettur embćttismađur segir ástandiđ grafa undan stođum ESB

Benoit Coeure, sem á sćti í framkvćmdastjórn seđlabanka evrunnar, segir ađ vegna lítils hagvaxtar og langavarandi atvinnuleysis séu grunnstođir hins pólitíska samstarfs í Evrópu ađ veikjast. Ţetta ástand megi ekki vara mikiđ lengur, ţví ţá sé samstarfiđ hreinlega í hćttu.

Viđskiptablađiđ greinir frá ţessu.

Nánar segir blađiđ:

Háttsettur embćttismađur hjá evrópska seđlabankanum (seđlabanka evrunnar - innskot Heimssýnar) varar viđ ađ atvinnuleysi og lítill hagvöxtur á evrusvćđinu sé ađ grafa undan grunnstođum Evrópusambandsins. Fjallađ er um máliđ á vef BBC.

Benoit Coeure, sem á sćti í framkvćmdastjórn evrópska seđlabankans, hélt í gćr erindi á Alţjóđaefnahagsţinginu (World Evonomic Forum) í Davos í Sviss. Ţar sagđi hann ađ seđlabankinn gćti ekki einn síns liđs stuđlađ ađ langvarandi hagvexti á evrusvćđinu, heldur vćri ţađ hlutverk stjórnvalda. Hann hvatti stjórnvöld evruríkjanna til ađ reyna ađ örva efnahagslífiđ.

Á fimmtudaginn var tilkynnt um magnađgerđir Seđlabanka Evrópu en ţćr eru hugsađar til ađ örva efnahagslífiđ á svćđinu. Seđlabankinn mun verja 60 milljörđum evra í skuldabréfakaup mánađarlega ţar til í septembermánuđi á nćsta ári. Ađgerđirnar hefjast í marsmánuđi og mun endanleg fjárhćđ kaupanna ţví nema 1.200 milljörđum evra.

Ástandiđ má ekki vara mikiđ lengur

Coure sagđi ađ međ ađgerđunum vćri evrópski seđlabankinn ađ gera ţađ sem í ţeirra valdi stendur en bankinn hefđi ekki tök á ađ stuđla ađ langvarandi hagvexti einn síns liđs. Stjórnvöld ríkjanna ţyrftu líka ađ leggja lóđ á vogarskálarnar. „Viđ getum gert fjárfestingar ódýrari, en fólk ţarf ađ vilja fjárfesta og ţađ er hlutverk fjármálaráđherra og ríkisstjórna,“ sagđi Coure á efnahagsţinginu.

Hann sagđi jafnframt ađ vegna lítils hagvaxtar og langavarandi atvinnuleysis séu grunnstođir hins pólitíska samstarfs í Evrópu ađ veikjast. Ţetta ástand megi ekki vara mikiđ lengur, ţví ţá sé samstarfiđ hreinlega í hćttu. Á fundi Eurogroup á mánudaginn hyggst Coure greina fjármálaráđherrum ađildarríkjanna frá áhyggjum sínum.

 


ESB niđurlćgir og meiđir

alexixTsiprasAlexis Tsipras, leiđtogi Syrisa sem sigrađi í kosningunum í Grikklandi í gćr, segist ćtla ađ binda enda á fimm ára tímabil niđurlćgingar og sársauka grísku ţjóđarinnar sem ađgerđir ESB, SE og AGS hafa valdiđ. Viđ ţetta tćkifćri er ágćtt ađ hafa í huga kröfur ESB til íslenskra stjórnvalda viđ bankahrunuiđ hér á landi og enn fremur hollt ađ leiđa hugann ađ ţví hverjar kröfurnar hefđu getađ orđiđ ef viđ hefđum veriđ hluti af ESB.

Vitaskuld ţurfa Grikkir einnig ađ líta í eigin barm og taka til í sínum málum. En nćrtćkasta skýringin á ţví ađ stórfelldar ađhaldsađgerđir í fimm ár hafa engum merkjanlegum jákvćđum árangri skilađ fyrir grísku ţjóđina er ađild ţeirra ađ ESB og skrúfstykki evrunnar sem heldur efnahagslífinu viđ alkul.


mbl.is Vill binda enda á „niđurlćginguna“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Gauti B. Eggertsson telur evrusvćđiđ í hćttu statt

Gauti B. Eggertsson hefur getiđ sér gott orđ sem hagfrćđingur í Bandaríkjunum. Hann var í viđtali viđ Stöđ2 í kvöld vegna kosninganna og efnahagsástandsins í Grikklandi. Ţađ var á honum ađ heyra ađ efnahagsađgerđir ESB, SE og AGS í Suđur-Evrópu skiluđu ţađ slćmum árangri ađ hćtta vćri á ađ Suđur-Evrópa segđi skiliđ viđ evruna.

En skyldi vonarstjarna Samfylkingarinnar, bróđir Gauta, borgarstjórinn í Reykjavík, hafa látiđ sannfćrast af skýringum hagfrćđingsins um vanda evrunnar?

 


Syriza nálćgt meirihluta í Grikklandi

grikkland

Síđustu skođanakannanir benda til ţess ađ góđur möguleiki sé á ađ vinstrabandalagiđ Syriza nái meirihluta í ţingkosningunum í Grikklandi á morgun. Bandalagiđ hefur viljađ semja upp á nýtt um ţau skilyrđi sem ESB, AGS og SE hafa sett fyrir lánveitingum til Grikklands. Forystukólfar evrusvćđisins bíđa međ öndina hálsinum eftir niđurstöđu kosninganna ţví óttast er ađ stórsigur Syriza muni valda evrusvćđinu umtalsverđum vandrćđum.

Kosningakerfiđ í Grikklandi er međ ţeim hćtti ađ stćrsti flokkurinn fćr aukalega 30 ţingsćti. Nú er vinstrabandalagiđ Syriza nćst meirihluta, en ţar á eftir kemur hćgri Nýi Lýđrćđisflokkurinn sem nú fer međ stjórn landsins. Ađrir flokkar stefna í ađ fá 5% eđa minna.

Sjá hér Skynews fjalla um Grikkland

Sjá  hér Europaportalen fjalla um Grikkland

 


mbl.is Tímamót í Grikklandi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Jónas K. segir Evrópuţrjósku ESB-sinna vonlausa

Jónas Kristjánsson ritstjóri segir ađ ţrjóska Jóhönnu í ESB-málum hafi drepiđ ríkisstjórn hennar. Hann segir ađ ESB-máliđ sé dćmi um vitlausan bardaga sem stjórnin hafi valiđ sér og tapađ. Međ sömu ţrjósku í ESB-málum verđi Samfylkingin ekki stjórntćk.

Nú verandi ríkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstćđisflokksins hefur skýra og samstillta stefnu til ađ fara eftir í ESB-málum. Ţađ er eđlilegt ađ hún fylgi ţeirri stefnu eftir.

Sjá hér blogg Jónasar.


Evrurćfillinn hríđfellur um leiđ og Draghi eykur skuldabasl ESB

euromistakesNú verđa peningaprentvélar Seđlabanka evrusvćđisins settar á fullt og trilljónir notađar til ađ kaupa skuldabréf evruríkjanna. Evran sekkur eins og steinn og hefur gengi hennar ekki veriđ lćgra í áratug. Ţjóđverjar eru ósáttir, enda líklegt ađ ţeir munu ţurfa ađ borga skuldir ESB í ríkari mćli en ađrir.

Mario Draghi var hás af stressi á blađamannafundinum áđan ţegar hann útlistađi ţessa risavöxnu ađgerđ til ađ reyna ađ bjarga evrunni og evrusvćđinu út úr stöđnun og dođa.

Hann var jú búinn ađ segjast ćtla ađ gera allt sem hćgt vćri til ađ bjarga evrunni.

Međ ţessu eru hafnar stórfelldustu björgunarađgerđir sem nokkurn tímann hefur veriđ gripiđ til í ţví skyni ađ bjarga gjaldmiđli.

Má ţá ekki kalla evruna rćfilstusku?


mbl.is Svona á ađ bjarga evrusvćđinu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Afturköllun umsóknar er eđlilegt skref

Fyrri ríkisstjórn setti umsóknarferliđ út í fen og gafst upp. Ástćđan var hrođvirknislegur undirbúningur, ósćtti innan ríkisstjórnar um máliđ og óyfirstíganlegur ágreiningur viđ ESB um stćrstu málaflokka.

Ţví er rétt ađ núllstilla máliđ. Setja ţađ á byrjunarreit.

Ćđstu samkundur ríkisstjórnarflokkanna hafa skýra sýn í ţessu og stjórnarsáttmálinn er skýr. Nú er bara ađ klára ţetta svo hćgt verđi ađ snúa sér ađ öđru. 

Vilja menn kannski ađ forsetakosningarnar fari ađ snúast um ESB?


mbl.is ESB-tillaga lögđ fram fyrir 26. mars
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Jan. 2015
S M Ţ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 77
  • Sl. sólarhring: 128
  • Sl. viku: 1855
  • Frá upphafi: 1232023

Annađ

  • Innlit í dag: 67
  • Innlit sl. viku: 1650
  • Gestir í dag: 66
  • IP-tölur í dag: 64

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband