Miðvikudagur, 30. apríl 2025
Sundlaug smjörs og sykurs
Er ekki örugglega frábær hugmynd að láta Evrópusambandið ráða orkumálum á Íslandi? Það kostar svolítið, en hvað munar bakara um brauð?
Lægra verð, meira öryggi, betra bragð og eilíft líf í sundlaug smjörs og sykurs.
Spánverjar og nærsveitamenn hljóta að eiga kertisbúta frá því um jólin, svo varla kippa þeir sér upp við smábilun. Verst að enginn skuli skilja hana. Norðmenn eiga líka svo mikla peninga að þá munar varla um nokkur hundruð prósenta hækkun á rafmagninu.
Erna tekur púlsinn:
https://ernabjarnad.blog.is/blog/ernabjarnad/
Þriðjudagur, 29. apríl 2025
Dularfull uppgufun peninga
Margir blaðamenn fullyrða að peningar gufi upp hjá Evrópusambandinu. Himinháar upphæðir hverfi.
Kerfið virðist virka þannig að framkvæmdastjórnin kemst upp með að neita, eða draga út í hið óendanlega, að afhenda upplýsingar. Borið er við að bara sé um að ræða símaskilaboð eða eitthvað þvíumlíkt.
Bent hefur verið á að hér sé um að ræða margrómaða leyndarhyggju gömlu nýlenduveldanna, Frakklands og Þýskalands. Valdamenn í þeim ríkjum hafa aldrei haldið upp á blaðasnápa og finnst að þeir eigi að geta sinnt sínu í friði fyrir einhverjum dónum af götunni.
Hvernig þætti okkur ef íslenska ríkið væri rekið með þessum hætti?
Og svo vilja sumir ganga í Evrópusambandið í von um að spilling minnki.
Mánudagur, 28. apríl 2025
Fimm ný tromp, sem hvert um sig dugir
Aðstæður eru breyttar frá því sem var 2009, þegar Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu.
Hér eru fimm stórar breytingar:
- Það er ekki kreppa á Íslandi. Viðvarandi kreppa er í Evrópusambandinu
- Eitt helsta viðskiptaland Ísland, Bretland, er gengið úr sambandinu. Bretland gekk líka úr EES, en það reyndist vandræðalaust að semja um áframhaldandi viðskiptakjör
- Evrópusambandið er í tollastríði við Bandaríkin. Með aðild að Evrópusambandinu væri Ísland aðili að tollastríðinu með gríðarlegum og óþörfum herkostnaði
- Evrópusambandið á í blóðugu stríði í A-Evrópu og sambandið ætlar að vígvæðast sem aldrei fyrr. Þegnarnir borga
- Í ljós kom í Brexit að ekki er ætlast til að ríki yfirgefi sambandið. Bretar komust út í krafti stærðar sinnar og mikilvægis bresks markaðar fyrir það sem eftir er af Evrópusambandinu. Smáríki eru ekki mjög mikilvægur markaður, þau munu ekki komast vandræðalaust út
Ekki gekk að koma Íslandi inn í Evrópusambandið á árunum eftir umsóknina árið 2009. Fyrst það gekk ekki þá hljóta líkurnar að vera hverfandi á að það takist núna. Hvers vegna á þá að leggjast í gríðarlegan kostnað við að reyna það?
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 04:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 27. apríl 2025
Jæja, Halla
Reykjavík, 25. apríl 2025
Forseti Íslands
Halla Tómasdóttir
Staðarstað, Sóleyjargötu
101 Reykjavík
Heiðraði forseti
Enn á ný hefur ríkisstjórn Íslands lagt fyrir Alþingi frumvarp til laga um forgang löggjafar sem á sér rætur í EES-samningnum. Sama á við um skuldbindingar sem innleiddar eru með stjórnvaldsfyrirmælum. Frumvarpið er jafnan nefnt bókun 35.
Í stjórnarskrá lýðveldisins Íslands segir að Ísland sé fullvalda ríki og að löggjafarvaldið sé aðeins í höndum Alþingis og forseta Íslands. Sífellt vandséðara er að það fyrirkomulag að taka við löggjöf frá útlöndum, undir hótunum um refsingar verði hún ekki samþykkt, standist stjórnarskrána. Bókun 35 hnykkir rækilega á þessu fyrirkomulagi og færir stjórnkerfið því enn fjær þeim ramma sem stjórnarskráin setur.
Er þetta ekki aðeins álit Heimssýnar, heldur fjölda sérfræðinga sem tekið hafa málið til skoðunar. Hafa þeir allir efasemdir um að lögin standist stjórnarskrá. Þeirra rök verða ekki endurtekin hér, en vísað er til umsagna Arnars Þórs Jónssonar, fyrrverandi dómara, um frumvarpið, álits Jóns Steinars Gunnlaugssonar, fyrrverandi hæstaréttardómara og prófessors í lögum, sem gerð er grein fyrir í umsögn Hjartar J. Guðmundssonar um umrætt frumvarp. Einnig er vísað til greinar Markúsar Sigurbjörnssonar, fyrrverandi forseta hæstaréttar, í afmælisriti EFTA árið 2014, til greinar Stefáns Más Stefánssonar fyrrverandi prófessors í lögum í Morgunblaðinu, 17. febrúar 2025 og til umsagnar Skúla Sveinssonar hæstaréttarlögmanns um frumvarpið. Þá er einnig vísað til umsagna Ögmundar Jónassonar, fyrrverandi dómsmálaráðherra, fyrrnefndrar umsagnar Hjartar J. Guðmundssonar og umsagna Heimssýnar um ýmsa þætti þessa máls.
Einnig verður ekki annað séð en að drjúgur meirihluti þjóðarinnar, skv. skoðanakönnun sem gerð var að beiðni Heimssýnar, sé andvígur málinu. Samþykki Alþingi lögin um bókun 35 er því komin gjá milli þings og þjóðar.
Félagið Heimssýn, sem hefur að markmiði að standa vörð um fullveldi Íslands, hefur af þessu máli mjög miklar áhyggjur. Í því sambandi verður ekki hjá því komist að minna á að frumvarp það sem hér um ræðir var ekki hluti EES-lagabálksins þegar sá samningur var samþykktur. Það var meðal annars vegna þess að ef svo hefði verið, hefði samningurinn gengið gegn stjórnarskránni.
Förum við þess góðfúslega á leit við forseta Íslands að hann veiti máli þessu viðeigandi athygli og beini því til ríkisstjórnar og Alþingis að virða stjórnarskrána. Fari svo að Alþingi samþykki umrætt frumvarp förum við fram á að forseti staðfesti ekki þau lög, enda gangi þau gegn stjórnarská lýðveldisins.
Fyrir hönd Heimssýnar
Haraldur Ólafsson, formaður
Föstudagur, 25. apríl 2025
Bjartar miðaldir framtíðarlandsins
Serbi ætlar að fara í skrúðgöngu í Moskvu. Evrópubsambandið vill það ekki og embættismenn sambandsins hóta refsingu ef þeim er ekki hlýtt.
Í vissum skilningi má segja að aðild að Evrópusambandinu sé ferðalag nokkur hundruð ár aftur í tímann, þegar yfirvaldið var alvöru yfirvald sem bar að hlýða. Skipti þá ekki alltaf miklu hvort skipanirnar væru réttmætar eða ekki. Yfirvald er yfirvald.
Og þetta vilja sumir Íslendingar fyrir sig og okkar afkomendur. Er það ekki undarlegt?
https://kyivindependent.com/eu-warns-serbia-not-to-attend-russias-victory-parade/
Fimmtudagur, 24. apríl 2025
Einn snýst í hringi, aðrir sigla áfram
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur enn dregið úr hagvaxtarspá fyrir Evrópu. Vöxtur á evrusvæðinu er nú áætlaður 0,8 prósent árið 2025. Þýskalandi er spáð engum hagvexti og aðrir stórir virðast fylgja sama mynstri.
Á sama tíma sýna flestir aðrir heimshlutar viðsnúning. Í Asíu, Afríku og Miðausturlöndum er útlit fyrir aukna virkni og vöxt á næstu misserum. Evrópa stendur hins vegar í stað.
Hvers vegna gengur Evrópu svona illa?
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn bendir á að tollar, viðskiptahindranir og óljós skilyrði hafi dregið úr vexti og Evrópa sé sérstaklega viðkvæm. Þar sé of mikið um reglur, of lítið svigrúm og of mikil tregða í að breyta um stefnu.
Aðalhagfræðingur sjóðsins segir að hagvaxtarhorfur gætu batnað samstundis ef ríki einfalduðu reglurnar og settu skýrar og fyrirsjáanlegar leikreglur í viðskiptum.
Hvar viljum við vera?
Í umræðunni um Evrópusambandið virðist enginn velta því fyrir sér hvaða viðskiptastefnu Ísland vill fylgja. Því er haldið fram að innganga í ESB tryggi stöðugleika en staðreyndin er sú að sambandið sjálft dregst niður vegna eigin stefnu.
Er ekki tímabært að spyrja: Hvers vegna að festa Ísland við samvinnu sem stendur í stað – þegar heimurinn er á hreyfingu?
Miðvikudagur, 23. apríl 2025
Gott er að tjóðra sig við sökkvandi fley
eða ekki.
Stöðnun og sumpart afturför einkennir hagkerfi Evrópusambandslandanna. Dráttarklárinn Þýskaland liggur í núllvexti og aðrir stórir eru ekki langt frá því.
Það er þó engin heimskreppa. Flest önnur lönd eru á sæmilegri siglingu, önnur á blússandi ferð, sé litið til hagvaxtar.
Er ekki einkennilegt að nokkrum skuli detta í hug að munstra Íslendinga á þetta skip?
Mánudagur, 21. apríl 2025
Þorsteinn rifjaður upp
Hjörtur J. Guðmundsson rifjar upp orð Þorsteins Pálssonar varðandi það sem mætti kalla pólitískan ómöguleika - að sækja um að Ísland verði innlimað í Evrópusambandið án þess að fyrir því sé traustur meirihluti á Alþingi og í ríkisstjórn. Við þann lista má bæta þjóðinni við.
Því fer fjarri að þessum skilyrðum sé fullnægt. Flokkur fólksins er andvígur aðild og Samfylking lofaði að salta málið og hlaut fylgi að launum. Stjórnarandstaðan er öll a móti.
Í raun stendur bara einn stjórnmálaflokkur þarna að baki. Hann hefur 10% fylgi á góðum degi!
Aðildarferli að Evrópusambandinu kostar líklega 100-200 milljarða. Kannski meira. Það mætti gera sitthvað af viti fyrir mun minni pening.
Glóruleysið er fullkomið.
https://www.stjornmalin.is/?p=11779
Nýjustu færslur
- Það fást styrkir
- Húsfyllir og varnaðarorð
- Bara á Íslandi - og auglýsing um fund
- Er þetta eitt stórt A-Þýskaland í öðru veldi?
- Skondin mótsögn
- Það vill þetta enginn
- Blessaður orkupakkinn sem gaf okkur ódýrt rafmagn
- Það slapp í þetta sinn
- Dagur öryggis
- Sigurbjörn sprengir
- Meginmálið 1. maí
- Sundlaug smjörs og sykurs
- Dularfull uppgufun peninga
- Fimm ný tromp, sem hvert um sig dugir
- Jæja, Halla
Eldri færslur
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.5.): 138
- Sl. sólarhring: 314
- Sl. viku: 1132
- Frá upphafi: 1221344
Annað
- Innlit í dag: 122
- Innlit sl. viku: 993
- Gestir í dag: 122
- IP-tölur í dag: 118
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar