Leita í fréttum mbl.is

Hruni evrunnar afstýrt með tveimur atkvæðum

kypmotmÞessi frétt endurspeglar hina gífurlega viðkvæmu stöðu sem ESB og evrusvæðið eru í. Það munaði aðeins tveimur atkvæðum á kýpverska þinginu að Kýpverjar hefðu sagt skilið við evruna. Slíkt hefði haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir evrusamstarfið.

RUV greinir frá því að þingið á Kýpur hafi fyrir stundu naumlega samþykkt samkomulag ríkisstjórnar landsins við Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um 10 milljarða evra neyðaraðstoð.

Tuttugu og níu þingmenn greiddu atkvæði með samkomulaginu, 27 greiddu atkvæði gegn því. Georgiades, fjármálaráðherra Kýpur, sagði samkvæmt RUV að ef þingið samþykkti samkomulagið ekki yrði algjört efnahagshrun í landinu Kýpur yrði að segja skilið við evruna.


Atvinnuleysið á evrusvæðinu heldur bara á fram að vaxa

atvleysiTugþúsundir bætast við á atvinnuleysisskrár í evrulöndunum í hverjum mánuði. Fjórðungur þeirra sem eru undir 25 ára aldri eru án atvinnu á svæðinu og tveir af hverjum þremur á Spáni og í Grikklandi.

Letta, nýr forsætisráðherra á Ítalíu, segir að aðhaldsaðgerðir ESB séu að ganga af Ítölum dauðum.

Er það þetta sem Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ og fylgdarsveinar hans vilja?


mbl.is Enn eitt atvinnuleysismetið á evrusvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsta maí-kaffi Heimssýnar eftir kröfugöngu og útifund í Reykjavík

Heimssýn óskar öllum launþegum til hamingju með baráttudaginn fyrsta maí og hvetur félaga í Reykjavík til að mæta í kröfugöngu á Hlemm kl. 12:45, en þar verða afhent spjöld og fleira í tilefni dagsins. 

Að kröfugöngu verkalýðsfélaganna og útifundi loknum býður Heimssýn öllum sem vilja í kaffi á meðan húsrúm leyfir og kaffi er til.

Á þessum hátíðisdegi er rétt að muna eftir því hversu miklu það skiptir fyrir launþega að atvinnuástand sé gott. Því miður hefur atvinnuleysi stóraukist í löndum ESB að undanförnu og er nú svo komið að það er að meðaltali um 12 prósent, en farið að nálgast 30% á Spáni og Grikklandi, en þar er um helmingur ungs fólks án atvinnu.

Höldum því á lofti að það er íslenskum verkalýð ekki til heilla að ganga í ESB.

Reykvíkingar og nærsveitamenn! Mætum í kröfugönguna og hlýðum á ræður verkalýðsforingjanna minnug þess hve miklu láni við höfum átt að fagna udanfarin ár í því að hafa verið fyrir utan ESB- og evrusvæðið.

Gleðjumst því á morgun og gæðum okkur á kaffinu hjá Heimssýn í Hafnarstræti 18 í miðbæ Reykjavíkur að útifundi loknum.


Skýr meirihluti gegn ESB-aðild

Niðurstaða kosninganna er skýr hvað ESB-málið varðar. Þeir flokkar sem eru andvígir inngöngu í ESB eru í yfirgnæfandi meirihluta. Þeir fengu 71% þingsæta og 66,3% stuðning í kosningunum sjálfum. Eini flokkurinn sem er fylgjandi aðild að ESB fékk 14% þingsæta og 13% stuðning í kosningunum. Aðrir flokkar hafa annað hvort óljósa stefnu eða eru opnir á ýmsar leiðir.

Miðað við þessa niðurstöðu kosninganna er það mjög skýr pólitískur vilji meðal íslensku þjóðarinnar að það eigi ekki að ganga í Evrópusambandið.

Þess vegna er eðlilegt að viðræðunum verði hætt sem fyrst.

Áhugaverðar vangaveltur um stöðuna er meðal annars að finna á Evrópuvaktinni og Vinstrivaktinni.

Í þessu samhengi er einnig athyglisvert að sjá að mjög skýr meirihluti er gegn ESB-aðild í Noregi.


mbl.is 20,2% fylgjandi aðild en 69,5% á móti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður meirihluti fyrir fullveldi

Niðurstaða kosninganna felur í sér góðan stuðning við áherslu á fullveldi Íslands, andstöðu við aðild að Evrópusambandinu og stöðvun viðræðna um aðild að sambandinu.

Í útlöndum eru blaðamenn og einstaklingar farnir að skrifa og tísta um að niðurstaða kosninganna hafi það í för sér að viðræður við ESB verði stöðvaðar.

Það er ein af niðurstöðum þessara kosninga. Því ættu stjórnmálaflokkarnir og næsta ríkisstjórn að huga að öðrum og brýnni málum. Nú þurfa tugir opinberra starfsmanna að fara að sinna öðru en að undirbúa breytingar á íslenskum lögum, reglum, vinnubrögðum og stofnanagerð til að slíkt þóknist stjórnsýslu ESB.

Nú er hægt að fara að snúa sér að þeim úrlausnarefnum sem kjósendur telja brýnni miðað við niðurstöður kosninganna.

Til glöggvunar er hér endurbirt ESB-stefna þeirra flokka sem fá fulltrúa á Alþingi í þessum kosningum:

Framsóknarflokkurinn: Framsóknarflokkurinn telur hag lands og þjóðar best borgið utan Evrópusambandsins. Ekki verði haldið lengra í aðildarviðræðum við Evrópusambandið nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.
http://www.framsokn.is/wp-content/uploads/2013/03/ályktanir.pdf

Sjálfstæðisflokkurinn telur hagsmunum Íslands betur borgið utan Evrópusambandsins en innan. Kjósendur ákveði í þjóðaratkvæðagreiðslu á kjörtímabilinu hvort aðildarviðræðum skuli haldið áfram. http://www.xd.is/malefnin/utanrikismal/


Vinstri hreyfingin - grænt framboð:
Landsfundur Vinstri grænna telur að Íslandi sé best borgið utan ESB en vill ljúka aðildarviðræðum við ESB og setja ferlinu tímamörk, til dæmis 1 ár frá kosningum. Þjóðin kjósi síðan um niðurstöður aðildarviðræðnanna. Vinstrihreyfingin – grænt framboð mun ennfremur beita sér fyrir því að tryggðar verði breytingar á stjórnarskrá þannig að þjóðaratkvæðagreiðslan um ESB verði bindandi en ekki aðeins ráðgefandi.
http://www.vg.is/wp-content/uploads/2013/02/alyktanapakkinnallur_loka_efnisyfirlit.pdf


Píratar: Það er ekki hlutverk stjórnmálaflokka að taka afstöðu með eða á móti aðild en aftur á móti eiga þeir að vera undirbúnir undir hvora niðurstöðuna sem er.
http://www.piratar.is/stefnumal/

Björt framtíð: Löndum góðum samningi við ESB sem þjóðin getur eftir upplýsta umræðu samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu.Þá opnast leið til gjaldmiðilssamstarfs við Evrópska seðlabankann (ERM II), sem strax getur aukið stöðugleika. Svo getum við tekið upp evru þegar skilyrði skapast til þess. Það er auðvitað ekki töfralausn en þó að öllum líkindum sigurstranglegasta leiðin í átt að efnahagslegum stöðugleika.
http://www.bjortframtid.is/aherslur/


Samfylkingin: Það er forgangsatriði jafnaðarmanna að halda aðildarviðræðum áfram af fullri einurð og að leggja fullbúinn samning í þjóðaratkvæði. Aðild að Evrópusambandinu og upptaka evru eru mikilvægasta skrefið í átt til efnahagslegs stöðugleika, hagvaxtar og betri rekstrarskilyrða fyrir heimili og fyrirtæki. http://www.samfylkingin.is/Portals/0/1_Skjalasafn/Landsfundur%202013/Stj%C3%B3rnm%C3%A1la%C3%A1lyktun%20Samfylkingarinnar%202013.pdf


mbl.is Geta myndað stjórn með 51% fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn syrtir í álinn í evrulandinu Spáni

Atvinnuleysið á Spáni er nú þegar 27% og búast má við að það aukist heldur, því stjórnvöld á Spáni gera nú ráð fyrir að hagkerfi landsins dragist saman um 1,3% á þessu ári en samkvæmt síðustu spá þeirra var búist við samdrætti upp á 0,5%.


mbl.is Reiknað með meiri samdrætti á Spáni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefna flokkanna í ESB-málum

Stefna þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða fram til Alþingis er þessi í málefnum er varða ESB:


Alþýðufylkingin
berst skilyrðislaust gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu.
http://www.althydufylkingin.blogspot.com/p/drog-stefnuskra-alyufylkingarinnar.html


Flokkur heimilanna er andvígur aðild Íslands að ESB.
http://flokkurheimilanna.is/malefnin/


Framsóknarflokkurinn
: Íslendingar skulu áfram leita eftir samstarfi við þjóðir innan og utan Evrópusambandsins á grundvelli frjálsra og sanngjarnra samninga og samvinnu sem byggir á jöfnuði og ábata allra aðila. Með slíkum samskiptum geta íslensk stjórnvöld best tryggt hagsmuni Íslands á hverjum tíma. Framsóknarflokkurinn telur hag lands og þjóðar best borgið utan Evrópusambandsins. Ekki verði haldið lengra í aðildarviðræðum við Evrópusambandið nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.
http://www.framsokn.is/wp-content/uploads/2013/03/ályktanir.pdf

Húmanistaflokkurinn: Við viljum ekki að Ísland gangi í Evrópusambandið. Í ESB hafa bankarnir og fjármálaöflin öll völd og útilokað væri að hafa sjálfstæði innan þess til að taka þær ákvarðanir sem nauðsynlegar eru til að koma á nýju peningakerfi og hindra annað hrun.


Regnboginn: Fullveldi Íslands verði tryggt. Sem alþjóðasinnar höfnum við aðild Íslands að Evrópusambandinu og viljum tafarlaus viðræðuslit og stöðvun á því aðlögunarferli sem nú á sér stað. Við teljum að Ísland eigi í samvinnu við Norðmenn að hefja endurskoðun á EES samningnum. Við teljum viðskiptafrelsi þjóða mikilvægt og viljum stuðla að auknum viðskiptum Íslands við aðrar þjóðir óháð viðskiptablokkum.
http://regnboginn.is/stefnuyfirlysing-regnbogans/fullveldi-og-sjalfstaed-utanrikisstefna/


Sjálfstæðisflokkurinn
telur hagsmunum Íslands betur borgið utan Evrópusambandsins en innan. Kjósendur ákveði í þjóðaratkvæðagreiðslu á kjörtímabilinu hvort aðildarviðræðum skuli haldið áfram. http://www.xd.is/malefnin/utanrikismal/


Vinstri hreyfingin - grænt framboð:
Landsfundur Vinstri grænna telur að Íslandi sé best borgið utan ESB en vill ljúka aðildarviðræðum við ESB og setja ferlinu tímamörk, til dæmis 1 ár frá kosningum. Þjóðin kjósi síðan um niðurstöður aðildarviðræðnanna. Vinstrihreyfingin – grænt framboð mun ennfremur beita sér fyrir því að tryggðar verði breytingar á stjórnarskrá þannig að þjóðaratkvæðagreiðslan um ESB verði bindandi en ekki aðeins ráðgefandi. 
http://www.vg.is/wp-content/uploads/2013/02/alyktanapakkinnallur_loka_efnisyfirlit.pdf
 


Lýðræðisvaktin: Við viljum
•  Að ákvörðun um inngöngu í ESB verði ekki tekin nema í bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu í samræmi við ákvæði nýrrar stjórnarskrár
Aðild að ESB felur í sér framsal á fullveldi. Þjóðin er yfirboðari Alþingis og hún ein getur ákveðið, hvort Ísland gengur í ESB eða ekki. Alþingi á aldrei að leyfast að taka ákvörðun um aðild að ESB upp á sitt eindæmi. Alþingi þarf að lúta vilja fólksins í landinu í öllum málum sem varða framsal fullveldis. Lýðræðisvaktin tekur ekki afstöðu til aðildar Íslands að ESB, þar eð málinu verður ráðið til lykta í þjóðaratkvæðagreiðslu.
• Ljúka samningaviðræðum við ESB
Samningaviðræður við ESB standa yfir og þeim ber að ljúka, svo unnt sé að halda áfram innan eða utan ESB í samræmi við vilja þjóðarinnar
http://xlvaktin.is/stefnan/veraldarvaktin/


Landsbyggðarflokkurinn: Engin stefna fannst um málaflokkinn.
http://www.landsbyggdin.is/n

Sturla Jónsson: Engin stefna fannst um málaflokkinn

Hægri grænir: 
Í hnotskurn:
• Þjóðaratkvæðagreiðsla innan 6 mánaða um hvort það eigi að halda áfram viðræðum.
• Nota reynslu ESB samninganefndar og niðurstöður hennar til þess að gera tvíhliða sérsamninga við ESB í anda Sviss.
• Endurskoða EES samninginn og setja í þjóðaratkvæði.
• Hlúa að EFTA samstarfinu, sem og öðrum fríverslunarsamningum.
• Þjóðin ræður alltaf – bindandi þjóðaratkvæðagreiðsla – beint lýðræði.
http://www.afram-island.is/stefnumal/esb-malefni/



Dögun: Um aðildarviðræður við ESB segir í Kjarnastefnu Dögunar:
„Við leggjum áherslu á opið og lýðræðislegt ferli, óháða upplýsingagjöf og fræðslu og treystum þjóðinni til að ráða niðurstöðunni. Ef aðildarviðræðum verður ekki lokið fyrir samþykkt nýrrar stjórnarskrár og þjóðin ákveður að hætta aðildarviðræðum í samræmi við 66. grein frumvarps Stjórnlagaráðs, munum við styðja þá niðurstöðu. Að öðrum kosti verði aðildarviðræður við Evrópusambandið kláraðar og niðurstaðan borin undir þjóðaratkvæði.“
http://xdogun.is/stefnan/stefna-dogunar-i-utanrikis-og-althjodamalum/


Píratar: Það er ekki hlutverk stjórnmálaflokka að taka afstöðu með eða á móti aðild en aftur á móti eiga þeir að vera undirbúnir undir hvora niðurstöðuna sem er.
http://www.piratar.is/stefnumal/

Björt framtíð: Löndum góðum samningi við ESB sem þjóðin getur eftir upplýsta umræðu samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu.Þá opnast leið til gjaldmiðilssamstarfs við Evrópska seðlabankann (ERM II), sem strax getur aukið stöðugleika. Svo getum við tekið upp evru þegar skilyrði skapast til þess. Það er auðvitað ekki töfralausn en þó að öllum líkindum sigurstranglegasta leiðin í átt að efnahagslegum stöðugleika.
http://www.bjortframtid.is/aherslur/


Samfylkingin: Það er forgangsatriði jafnaðarmanna að halda aðildarviðræðum áfram af fullri einurð og að leggja fullbúinn samning í þjóðaratkvæði. Aðild að Evrópusambandinu og upptaka evru eru mikilvægasta skrefið í átt til efnahagslegs stöðugleika, hagvaxtar og betri rekstrarskilyrða fyrir heimili og fyrirtæki. http://www.samfylkingin.is/Portals/0/1_Skjalasafn/Landsfundur%202013/Stj%C3%B3rnm%C3%A1la%C3%A1lyktun%20Samfylkingarinnar%202013.pdf


Tekist á um efnahagsstefnuna í ESB

Eins og meðfylgjandi frétt ber með sér er mikill ágreiningur á milli Frakka og Þjóðverja þessa dagana um hversu langt eigi að ganga í sparnaðaraðgerðum í evruríkjunum. Þjóðverjar vilja halda sig við gömlu sparnaðarleiðirnar sem meira að segja fulltrúar AGS eru farnir að gagnrýna. Frakkar vilja hins vegar draga eitthvað úr sparnaðinum til að koma í veg fyrir frekari samdrátt í efnahagslífinu.
mbl.is Óttast versnandi sambúð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2013
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 161
  • Sl. viku: 742
  • Frá upphafi: 1232513

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 637
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband