Leita í fréttum mbl.is

Ísland borgar 15 milljarða fyrir ESB-aðild

Ísland mun greiða með sér til Evrópusambandsins um 15 milljarða króna, samkvæmt áætlun utanríkisráðuneytisins og er það án efa varleg áætlun. Ráðuneytið gerir ráð fyrir að Ísland fái í formi styrkja um 12 milljarða tilbaka af meðgjöfinni.

Styrkirnir verða einkum til landbúnaðarmála og dreifðra byggða. 

Samfylkingin vill að við göngum í Evrópusambandið vegna þess að embættismenn í Brussel vita betur en Íslendingar hvernig eigi að reka landbúnað hér á landi og hvernig styrkjum til byggðamála skuli deilt út hérlendis.

Það heitir að sækja vatnið yfir lækinn.

(Tekið héðan.)


Reykjavík tapaði vegna ESB-umsóknar

Reykjavík kom ekki til greina sem aðsetur skrifstofu Norðurskautsráðsins vegna þess að íslensk stjórnvöld eru í aðlögunarferli að Evrópusambandinu. Óhugsandi væri fyrir Norðmenn, Rússa, Bandaríkjamenn og Kanadamenn að samþykkja að höfuðstöðvar Norðurskautsráðsins væru í aðildarríki Evrópusambandsins.

Össur Skarphéðinsson og Samfylkingin bera alla ábyrgð á því að Reykjavík fékk ekki höfuðstöðvar Norðurskautsráðsins.


mbl.is Skrifstofan verður í Tromsø
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríkin sýna norðurslóðum aukinn áhuga

Grænlandsför utanríkisráðherra Bandaríkjanna til að sitja fund Norðurskautsráðsins sýnir vaxandi áhuga Bandaríkjanna á norðurslóðum. Athygli stórveldanna á landssvæðinu skýrist af náttúruauðlindum sem þar er að finna og opnun siglingaleiða.

Ísland er í þjóðleið siglingaleiðarinnar frá Asíu til Evrópu og Ameríku. Það er ástæðan fyrir áhuga Evrópusambandsins á inngöngu Íslands. Með Ísland innanborðs ætti Evrópusambandið tilkall til að setjast við háborðið þar sem vélað verður um málefni norðurslóða.

Í dag talar Ísland sjálfstæðri röddu á alþjóðavettvangi. Samfylkingarhluti ríkisstjórnarinnar stefnir að því að framselja alþjóðlega viðurkennd réttindi Íslands til embættismannanna í Brussel og láta þá tala okkar máli.  


mbl.is Clinton á leið til Nuuk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Írland gegn Evrópska seðlabankanum

Þekktur írskur hagfræðingur segir í grein í Irish Times að eina von Írlands sé að losa sig við ,,björgunarpakka" Evrópusambandsins. Valið stendur á milli gjaldþrota ríkissjóðs Írlands og bankanna, segir Morgan Kelly.

Láti Írar bankana rúlla komast þeir óðara í eigu Evrópska seðlabankans, sem hingað til hefur stjórnað atburðarásinni. Grein Kelly rekur þróunina frá þeim óhappadegi þegar írska ríkið ákvað að ábyrgjast innistæður í írskum bönkum. Ísland með sína krónu gat valið aðra leið - Írland var upp á náð og miskunn Evrópusambandsins.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn kom að írska björgunarpakkanum en það var á forsendum Evrópusambandsins. Kelly skrifar

Lending to an insolvent state, which has no hope of reducing its debt enough to borrow in markets again, breaches the most fundamental rule of the IMF, and a heated debate continues there over the legality of the Irish deal.

Írland og evran verða til umræðu á fundi Heimssýnar og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands þann 25. maí næstkomandi.


Lærir ASÍ eitthvað í Aþenu?

Evrópusamtök verkalýðsfélaga halda ráðstefnu í Aþenu í vikunni. Búast má við að Alþýðusamband Íslands sendi þangað fulltrúa enda segir á heimasíðuað samstarfið við ETUC sé í dag ,,þungamiðjan í starfi ASÍ á vettvangi alþjóðlegrar verkalýðshreyfingar."

Grikkland logar vegna fjármálakreppunnar sem má rekja beint til þátttöku landsins í evru-samstarfinu. Evrópusamtök verkalýðsfélaga hafa ályktað gegn harðræði Evrópusambandsins gegn Grikkjum.

ASÍ, á hinn bóginn, óskar sérstaklega eftir aðkomu Evrópusambandins í íslensk málefni.

Vonandi vitkast ASÍ í Aþenu.

 


Drakma besta lausn Grikklands

Einn þekktasti hagfræðingur Þýskalands Hans-Werner Sinn hjá IFO-stofnuninni telur að besta lausnin á fjármálakreppu Grikklands sé að landið fari úr evrusamstarfinu og taki upp drökmu, sem var grískur lögeyrir áður en evran kom til sögunnar.

Hinn kosturinn, segir Sinn, er að lækka laun og kostnað um 20-30 prósent með inngripum i kjarasamninga samhliða niðurskurði í opinberri þjónustu og hækkun skatta. Grikkland skuldar tæp 150 prósent af þjóðarframleiðslunn og sú skuld er ekki sjálfbær. Gjaldþrot blasir við.

Sinn talar fyrir bestu hagfræðilausninni á vanda Grikklands. Á hinn bóginn er pólitísk framtíð Evrópusambandsins veðsett evruverkefninu. Það flækir málið, svo ekki sé meira sagt.


Krugman: evran er elítuverkefni

Evran er að deyja drottni sínum. Spurt er um dánarstund og hvernig fer fyrir þrotabúinu. Paul Krugman nóbelsverðlaunaður bandaríkur hagfræðingur er ekki í vafa um hvar ábyrgðin á evru-klúðrinu liggur - hjá valdaelítunni.

Leiðtogar Evrópu skópu sameiginlegan gjaldmiðil, evruna,  án þess að búa til stofnanir sem þarf til að glíma við hæðir og lægðir evrusvæðisins. Áherslan á sameiginlegan evrópskan gjaldmiðil var öll í efstu lögum samfélagins, draumsýn elítunnar var þvinguð á almenning sem var tregur í taumi.
(The real story of Europe’s crisis is that leaders created a single currency, the euro, without creating the institutions that were needed to cope with booms and busts within the euro zone. And the drive for a single European currency was the ultimate top-down project, an elite vision imposed on highly reluctant voters.)

Smitið frá valdaelítunni í Evrópu barst til Íslands. Samfylkingin er hýsilinn. Nú þegar greining liggur fyrir ætti að vera hægt að koma í veg fyrir meira tjón með því að kjósa Samfylkinguna út úr íslenskum stjórnmálum.


Fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins: kjósum Samfylkingu

Þorsteinn Pálsson var einu sinni formaður Sjálfstæðisflokksins, þar á eftir talsmaður Baugs sem ritstjóri Fréttablaðsins og er núna orðinn kosningasmali fyrir Samfylkinguna. Hjörtur J. Guðmundsson rýnir í nýjasta útspil Þorsteins og kemst að eftirfarandi niðurstöðu

Ég get ekki skilið skrif hans öðruvísi en svo að hann vilji að Evrópusambandssinnar í öðrum flokkum kjósi Samfylkinguna í næstu þingkosningum til þess að tryggja "örugga og ábyrga forystu" flokksins og Össurar Skarphéðinssonar í Evrópumálum.

Ástæða er að óska Samfylkingunni til hamingju með nýja liðsmanninn.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2011
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.7.): 167
  • Sl. sólarhring: 208
  • Sl. viku: 1802
  • Frá upphafi: 1234734

Annað

  • Innlit í dag: 137
  • Innlit sl. viku: 1515
  • Gestir í dag: 131
  • IP-tölur í dag: 129

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband