Föstudagur, 28. júní 2024
Leiguverð á peningum á svipuðu róli í Danmörku og á Íslandi
Það eru allnokkrar breytistærðir sem hirða þarf um þegar verð á íbúðalánum er borin saman milli landa. Sumir gera það með frjálslegum aðferðum, svo ekki verður hjá því komist að líta á málið hér á þessum vettvangi.
Raunvextir eru mælikvarði á leiguverð fjármagns. Raunvextir eru vextir umfram verðbólgu.
Á Íslandi má segja að raunvextir séu vextir á verðtryggðum lánum. Þeir eru samkvæmt vefsíðunni herborg.is frá 2,37% upp í 4,49% á Íslandi. Sex lánveitendur bjóða lán með 3-4% breytilegum vöxtum.
Íbúðalán í Danmörku virðast flest vera óverðtryggð. Íbúðalán í Danmörku er þéttur frumskógur verðs og skilyrða. Flestir lánveitendur hvetja viðskiptavini til að bóka tíma og koma í heimsókn. Í svoleiðis heimsóknum er ekki venjan að bjóða viðskiptavinum allt sem þeir vilja fyrir allra lægsta verð í töflu, en lítum samt á þær. Vaxtatafla Nordea (https://www.nordea.dk/Images/144-506880/Prisskilt%2027.06.2024%20Nordea.dk%20-%20BoligPuls.pdf) segir að íbúðalán kosti á bilinu 4,1-9,1%, en upplýsingasíðan https://www.raadtilpenge.dk/Gode-raad/boliglaan/tjekboliglaan/Criteriapage segir að margir bjóði lán á 5-5,2%. Er þá miðað við allt að 80% veðhlutfall og breytilega vexti. Verðbólga í Danmörku var síðast þegar fréttist 2,2% (1,6% ef miðað er við svokallaða kjarnavísitölu). Raunvextir á íbúðalánum í Danmörku eru með öðrum orðum 1,9-6,9% í Nordea og 2,8-3% samkvæmt raadtilpenge.dk. Sé miðað við kjarnavísitöluna eru raunvextirnir 2,5-7,5% og 3,4-3,6% á þessum tveimur stöðum í Danmörku.
Þessi stutta skoðun bendir til þess að verð á lánsfé til íbúðakaupa sé á svipuðu róli í Danmörku og á Íslandi þegar þetta er skrifað, í júní 2024.
Það vekur reyndar athygli að verðmunur milli lánveitenda í sama landi er töluverður, bæði í Danmörku og á Íslandi.
Það skyldi þó ekki vera að aðrir þættir en aðild að Evrópusambandinu ráði verði lánsfjár?
Fimmtudagur, 27. júní 2024
Eldheitir afsalsmenn
Stjórnmálaflokkur sópar ósk um innlimun Íslands í Evrópusambandið undir teppi og siglir í kjölfarið með himinskautum í skoðanakönnunum. Annar, og lítill, stjórnmálaflokkur hefur það helst á stefnuskránni að framselja Ísland Evrópusambandinu. Sá flokkur bætir engu fylgi við sig. Eru þó ríkisstjórnarflokkar óvinsælir og lítil samkeppni um atkvæði svokallaðra Evropusinna. Þeirra sem eftir eru.
Skýringin á þessu er líklega sú að þegar öllu er á botninn hvolft skiptast Íslendingar í megndráttum í tvo hópa, þá sem eru alfarið á móti því að framselja stjórnvaldið til Evrópusambandsins og hinn hópinn sem hefur ekki sterka skoðun á málinu. Það eru nefnilega fáir eldheitir afsalsmenn fullveldis.
Hjörtur J. Guðmundsson ræðir áhrif smáþjóða, fylgi Viðreisnar og fleira í ágætri grein í Vísi.
https://www.visir.is/g/20242589093d/dugdi-irum-og-donum-skammt
Miðvikudagur, 26. júní 2024
Ólíkar leiðir að sömu niðurstöðu
Það er vægt til orða tekið að á Íslandi séu mjög skiptar skoðanir um hermál. Þannig er það í Heimssýn, og líklega í flestum öðrum félögum á Íslandi, kannski að Varðbergi og Samtökum hernaðarandstæðinga frátöldum.
Nú eru horfur á að æðsti prestur Evrópusambandsins fái endurráðningu. Þá er rétt að rifja upp að sú kona telur mikið framfaramál að auka hernaðarmátt Evrópusambandsins.
Þeir sem telja að best sé fyrir Íslendinga að halla sér að NATÓ og Bandaríkjunum hrista þá höfuðið og spyrja: Til hvers ættu Íslendingar að tengjast slíku fjórðu deildar liði?
Þeir sem andsnúnir eru hernaðarbandalögum hrista líka höfuðið og segja: Fráleitt að koma nálægt starfsemi af því tagi.
Það er sama hvernig nálgunin er, niðurstaðan er alltaf sú sama: Best er að halda sig fjarri.
Þriðjudagur, 25. júní 2024
Brexitafmæli og það sem ekki má gleymast
Um þessar mundir er haldið upp á 8 ára afmæli Brexitkosninganna. Í tengslum við Brexit er tvennt sem verður ekki of oft rifjað upp.
Í fyrsta lagi er ekki ætlast til að ríki yfirgefi Evrópusambandið. Sambandið tekur á sig krók og kostnað við að gera þeim sem vilja fara lífið leitt.
Í öðru lagi skall á flóðbylgja af heimsendaspám, sem svo ekki rættust. Efnahagur Breta stendur ýmist í álika miklum eða meiri blóma en efnahagur stærstu ríkja sem enn eru eftir í Evrópusambandinu.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 11:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 23. júní 2024
Uppgefinn Evrópusinni
Á meginlandi Evrópu hafa margar sálir í mörg ár ræktað með sér draum um einhvers konar sameinaða Evrópu þar sem smjör drýpur af hverju strái og menn stilla sig að mestu um að drepa náunga sinn.
Líklega má telja Grikkjann Yanis Varufakis í þessum hópi, en hann var ráðherra í ríkisstjórn Grikkja á ólgutímum og skrifar nú bækur og heldur fyrirlestra. Varufakis telur að draumurinn um sameinaða Evrópu sé brostinn og tálsýn ein standi eftir, meðal annars vegna þess að valdamenn í Evrópusambandinu hafi dregið lappirnar í sameiningarmálum, ekki síst í fjármálum hins opinbera.
Hér má sjá stutt, en hressilegt viðtal við hinn uppgefna Evrópusinna, Yanis Varufakis:
https://www.youtube.com/watch?v=VCf6UjQ_XYM
Fimmtudagur, 20. júní 2024
Auðvitað engu!
Það er ekki bara yfirgengilega barnalegt að halda því fram að Íslendingar mundu ráða einhverju sem máli skipti í Evrópusambandinu ef þeir væru þar, það er líka í hrópandi andstöðu við evrópskar og íslenskar hugmyndir um lýðræði.
Hjörtur J. Guðmundsson fer yfir málin í kjölfar lítlsháttar umræðu um að Íslendingar mundu samt ráða einhverju og að þau völd lægju í töfrasprotum sem fást í Harrýpotterbúðinni.
Auðvitað mundu Íslendingar engu ráða í Evrópusambandi. Það væri hryllilega ólýðræðislegt og gæti aldrei staðist nema rétt á meðan verið væri að koma þeim inn.
https://www.fullveldi.is/?p=47724
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 18. júní 2024
Gull og blý
Blýhúðun (sem sumir nefna gullhúðun) kostar eflaust mikið, en óstöðvandi og vaxandi straumur reglna sem ekki eru skrifaðar með þarfir Íslendinga í huga kostar ennþá meira.
Hann er rándýr.
Mánudagur, 17. júní 2024
Hugvekja til Íslendinga 2024
Þá er lýðveldið Ísland áttrætt. Segja má að vegferðin til lýðveldis hafi byrjað með frægri Hugvekju Jóns Sigurðssonar til Íslendinga í Nýjum félagsritum árið 1848. Hugvekja Jóns er ekki aðeins hvatning til að Íslendingar taki stjórn Íslands í sínar hendur, heldur fjallar hún um sitthvað sem kalla má stjórnmálaheimspeki. Jón segir m.a.:
Þjóðin er ekki til handa embættismönnum sínum, heldur eru þeir handa henni; hún á því með að krefja þá reikningsskapar fyrir stjórn þeirra.
Á Íslandi eru stjórnmálamenn sífellt krafðir reikningsskapar fyrir stjórn sína og stóri dómur í kjörklefanum fellur ekki sjaldnar en á 4 ára fresti. En hver er krafinn reikningsskapar fyrir tilskipanir sem koma í pósti frá Brussel árið 2024? Stjórnmálamenn á Íslandi benda út í buskann, í átt að einhverjum sem ber ekki einu sinni nafn, enginn kaus og enginn veit hver er. Þegar hringt er til Brussel svarar auðvitað enginn. Ofan af þessu stjórnarfyrirkomulagi þarf að vinda og það fer vel á því að það verði gert með rökum Jóns Sigurðssonar sem eru 176 ára gömul, en síung.
Heimssýn óskar Íslendingum öllum til hamingju með von um farsælt og fullvalda samfélag um ókomna tíð.
https://timarit.is/page/2016419#page/n5/mode/2up
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 07:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Besta fyrirkomulagið
- Umboðið dularfulla
- Alltaf agnarögn hjá Hirti
- Mótsagnir ársins
- Óboðleg sölumennska Evrópuhreyfingarinnar
- Staðreyndir sussa á Hönnu Katrínu
- Pólitísk fjarvera forsætisráðherra
- Asninn gullið og Evrópuhreyfingin
- Snærós, asninn og gullið
- Vegir ástarinnar
- Frá Húnaflóa til Brussel reglugerðanetið gleypir allt
- Áhrifakapphlaup á norðurslóðum - djöflatertan er tilbúin, kre...
- Rennibraut fyrir lýðræðishalla
- Spilaborg Evrunnar og íslenska fáfræðin
- Lesa menn ekki heimspressuna í stjórnarráðinu?
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.9.): 18
- Sl. sólarhring: 46
- Sl. viku: 1520
- Frá upphafi: 1256596
Annað
- Innlit í dag: 14
- Innlit sl. viku: 1374
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar