Færsluflokkur: Evrópumál
Þriðjudagur, 8. október 2024
Markús í sarpi Hjartar
Markús Sigurbjörnsson heitir maður sem fékkst við lög um margra ára skeið, og gerir líklega enn. Hann hafði innivinnu í hæstarétti og var sagður röskur á penna. Markús hafði skoðun á innihaldi bókunar 35 og Hjörtur J. Guðmundsson rifjar í Vísi upp þessi merku orð Markúsar:
Staðreyndin er hins vegar sú að ekki var mögulegt að ganga lengra innan þess ramma sem stjórnarskrá Íslands setur. Stjórnarskráin gerir hvorki ráð fyrir því að takmarka megi fullveldi lýðveldisins með framsali löggjafarvalds til alþjóðastofnana né að landslög, sem byggjast á alþjóðlegum skuldbindingum eins og EES-samningnum, geti eingöngu af þeim sökum öðlast ríkari stöðu en önnur almenn löggjöf,
Annar maður, sem líka sinnti hæstarétti um hríð, heitir Jón Steinar Gunnlaugsson. Þeir Jón og Markús voru stundum ósammála svo að eftir var tekið.
En þeir voru sammála um að bókun 35 gengi ekki.
https://www.visir.is/g/20242630966d/stenzt-ekki-stjornarskrana
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 08:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 7. október 2024
Skoðanakönnunin mætt
Fleiri andvígir bókun 35 en hlynntir
Fleiri eru andvígir frumvarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið (EES) vegna bókunar 35 við samninginn en hlynntir eða 39% á móti 35% samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem Prósent vann fyrir Heimssýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum.
Frumvarp utanríkisráðherra gengur sem kunnugt er út á það að innleitt regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn gangi framar löggjöf sem á sér innlendan uppruna. Frumvarpið var upphaflega lagt fram í mars 2023 en var ekki afgreitt á því þingi. Til stendur af hálfu ráðherrans að leggja það fram á ný á yfirstandandi þingi.
Mest andstaðan við frumvarpið er á meðal stuðningsmanna Miðflokksins samkvæmt könnuninni eða 61% á móti 16% sem eru því hlynnt. Næst koma stuðningsmenn Framsóknarflokksins og Flokks fólksins með 45% andvíg frumvarpinu en 23% og 20% hlynnt því. Þá eru 42% stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins andvíg frumvarpinu en 16% hlynnt. Loks er tæpur þriðjungur stuðningsmanna Sósíalistaflokksins andvígur eða 32% en 22% hlynnt.
Mestur stuðningur við frumvarp Þórdísar Kolbrúnar er á meðal stuðningsmanna Viðreisnar eða 58% á meðan 12% eru því andvíg. Næst koma stuðningsmenn Samfylkingarinnar með 45% hlynnt og 16% andvíg. Þá eru 40% stuðningsmanna VG hlynnt því en 24% andvíg. Loks styður tæpur þriðjungur stuðningsmanna Pírata frumvarpið eða 32% en 12% andvíg því.
Könnunin sýnir það svart á hvítu að fleiri eru andvígir en hlynntir frumvarpi utanríkisráðherra um að innleitt regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn verði gert æðra innlendri lagasetningu. Þá er til að mynda ljóst miðað við niðurstöðurnar að miklu meiri andstaða er við málið í röðum stuðningsmanna flokks ráðherrans sjálfs en stuðningur, segir Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar.
Könnunin var gerð dagana 18. september til 3. október 2024. Úrtakið var 2.150 einstaklingar, 18 ára og eldri, og var svarhlutfallið 51%.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 10:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 7. október 2024
Margboðaður sjálfsmorðsleiðangur
Bókun 35 felur í sér tilfærslu á valdi til útlanda. Erfitt er að sjá fyrir hvaða afleiðingar það getur haft og enn erfiðara getur reynst að ná þessu valdi til baka. Bókunin gengur gegn stjórnarskrá og EES-samningurinn hefði aldrei verið samþykktur á sínum tíma hefði bókunin fylgt með eins og ætlunin er að hún geri núna.
Þetta, sjálfsmorðsleiðangur stjórnarflokka og fleira var rætt í Bítinu á Bylgjunni í morgun
https://www.visir.is/k/76ab28bc-7139-4e1b-82c2-e57852801276-1728287926642
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 10:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 6. október 2024
Viðreisn tekin til skoðunar
Segja má að einn stjórnmálaflokkur hafi beinlínis að meginmarkmiði að færa stjórnvald á Íslandi til útlanda.
Þegar valdið er farið til manna í útlöndum sem þurfa ekki að standa skil á sínu gagnvart fólki á Íslandi felast áhrif landsmanna á landstjórnina í að senda bænaskjöl til Brussel. Bænaskjölin fara vitaskuld í ruslið, enda hagsmunir annarra en Íslendinga sem þar ráða ferð.
Hjörtur J. Guðmundsson ræðir þá sérkennilegu stöðu sem Viðreisn er í og lýsir sér meðal annars í að vilja minnka umsvif hins opinbera, en á sama tíma ganga í Evrópusamband sem gerir beinlínis krófu um stórfellda aukningu á umsvifum og stærð stjórnsýslunnar - samkvæmt heimdildum Evrópusambandsins sjálfs.
Það er nefnilega óleysanleg mótsögn að vilja ganga í Evrópusambandið og að vilja hafa hemil á útþenslu stjórnsýslu.
https://www.visir.is/g/20242629419d/treystandi-fyrir-stjorn-landsins-
Laugardagur, 5. október 2024
Lengi getur lítið minnkað
Tveir stjórnmálaflokkar fara með himinskautum í skoðanakönnunum. Annar þeirra er grjótharður fullveldisflokkur og hinn er nýbúinn að setja blauta Evrópusambandsdrauma í salt.
Flokkarnir sem standa að ríkisstjórn um þessar mundir virðast lengi geta horast, og voru þeir þó ekki feitir síðast þegar spurt var. Þeirra helsta mál þessa dagana er einmitt að færa meira vald til Evrópusambandsins, í gegnum bókun 35. Tilviljun? Ætli það.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/10/05/fylgi_stjornarflokka_enn_a_nidurleid/
Föstudagur, 4. október 2024
Kveðja til VG
Heimssýn sendir landsfundi VG bestu kveðjur og minnir á að félagshyggjufólk hefur jafnan gert sér
glögga grein fyrir mikilvægi þess að landinu væri stjórnað í umboði þeirra sem það byggðu og að valdamenn stæðu fyrst og fremst til ábyrgðar gagnvart þjóðinni, en ekki gagnvart embættismönnum í fjarlægum borgum, sem væri sama um hvort Ísland flyti eða sykki.
https://www.visir.is/g/20242629807d/kvedja-fra-heimssyn-til-landsfundar-vg-2024
Fimmtudagur, 3. október 2024
Kjarninn og VG
Sú var tíð að herstöðvaandstæðingar, síðar hernaðarandstæðingar, áttu sér helst skjól hjá VG, þótt sumir þeirra væru í öðrum flokkum. Engu að síður var einn og einn liðsmaður VG hallur undir Evrópusambandið. Það var á þeim árum þegar menn trúðu því að Evrópusambandið væri aðeins félag um staðla og almennt hjálpræði.
Mikið vatn hefur til sjávar runnið síðan það var. Nú á Evrópusambandið í stórstyrjöld í A-Evrópu sem ekki sér fyrir endann á. Sambandið kaupir sprengjur og fallstykki fyrir himinháar upphæðir, sendir svo dótið austureftir með hvatningu um að þeir sem fái það dragi í engu af sér. Líklega er búið að drepa hátt í milljón unga menn og viðbúið er að yfir milljón menn séu limlestir.
Þá koma frá utanríkisráðherra til Alþingis boð um að þetta sama Evrópusamband þurfi að ráða meiru á Íslandi. Á borðum þingflokks VG liggur tillaga um að fyrirmæli frá Evrópusambandinu sem við hæfi þykir að gildi á Íslandi skuli njóta sérstaks forgangs umfram heimagerða löggjöf. Tillagan heitir Bókun 35.
Það verður væntanlega fyrsta verk þingmanna VG að afþakka þessa Bókun 35 þegar þeir mæta til vinnu eftir landsþing.
Það stóð aldrei til að gera Ísland að deild í hernaðarbandalagi gömlu evrópsku nýlenduveldanna.
Miðvikudagur, 2. október 2024
Tíðindi frá VG i pípunni
VG heldur landsfund um helgina. Þaðan er tíðinda að vænta.
Forystumenn VG boða að litið verði til grunngilda. Enginn velkist í vafa um að meðal helstu grunngilda VG eru lýðræði og umhverfisvernd.
Á borðum þingflokks VG liggur tillaga um grundvallarbreytingu á stjórnkerfi Íslands. Hún felst í nýrri forgagngsreglu handa löggjöf sem er upprunnin hjá gömlu stórveldunum á meginlandi Evrópu. Tillagan heitir Bókun 35 og er furðusmíð sem miðar að því að gæta hagsmuna Evrópusambandsins gagnvart Íslandi. Varla þarf að ræða lýðræði lengi á landsfundi VG til að bókun 35 lendi í ruslinu.
Þá er það umhverfið. Bókun 35 ryður leiðina að innlimun Íslands í orkubandalag Evrópu. Evrópu þyrstir í hreina orku. Þrýstingur á meiri orkuframleiðslu, með vatni eða vindi, mun aukast. Sæstrengur mun þar bæta um betur.
Og svo sakar ekki að rifja upp að stefna Evrópusambandsins er að orkuframleiðsla sé á frjálsum markaði. Almenningur eigi á hinn bóginn að borga fyrir tengivirkin. Núverandi fyrirkomulag á Íslandi passar ekki vel í þá mynd.
Ef yfirvofandi skerðing lýðræðis dugir ekki til að VG-liðar hendi bókun 35 í ruslið, verður varla annað séð en að áhættan fyrir umhverfið og þrýstingur á einkavæðingu orkuframleiðslu ríði þar baggamuninn auðveldlega.
Það verður sungið með um land allt þegar ruslakarfan í þingflokksherbergi VG verður tæmd eftir landsfundinn.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 1. október 2024
Já, það er deginum ljósara
Utanríkisráðherra segir að samþykkja verði bókun 35, annað gangi ekki gagnvart EES-samningnum.
Ef EES-samningurinn krefst frekara valdaframsals til ókjörinna embættismanna í fjarlægum gömlum nýleduveldum er deginum ljósara að það þarf að endurskoða þann samning, en ekki halda áfram á þeirri háskabraut valdaframsals sem verið er að feta.
Hjörtur J. Guðmundsson rifjar sitthvað upp í sambandi við bókun 35 í nýrri grein. Hvöss orð háskólamanna í lögum eru þar á meðal. Hjörtur segir:
Fram kom enn fremur í umsögn um frumvarp Þórdísar sem Stefán Már sendi til utanríkisráðuneytisins í byrjun marz 2023 ásamt Arnaldi Hjartarsyni, aðjúnkt við lagadeild Háskóla Íslands, að sú breyting á lögum um Evrópska efnahagssvæðið sem frumvarpið myndi hafa í för með sér vekti ekki aðeins upp áleitin stjórnskipuleg álitamál heldur einnig almennar spurningar um hlutverk Alþingis og framtíð lýðræðis á Íslandi. Færa þeir þar haldbær rök fyrir því að efni frumvarpsins standist í reynd ekki lögfræðilega skoðun.
https://www.visir.is/g/20242628491d/hljomar-kunnuglega-ekki-satt-
Mánudagur, 30. september 2024
Engin þjóð
hefur bætt lífskjör sín til langframa með því að selja valdið til fjarlægra manna.
Þannig kemst Arnar Þór Jónsson að orði (22. mín), með eðlilegum fyrirvörum, því enginn þekkir alla sögu mannskyns, ekki einu sinni Arnar Þór.
Þetta er meginatriði í sambandi við tengsl Íslands og Evrópusambandsins, bókun 35 og reglugerðafæribandið frá Brussel til Íslands.
Viðtalið við Arnar Þór var í Þjóðólfi og er hér í heild:
Nýjustu færslur
- Lítil vinna fyrir ungdóminn á evrusvæðinu
- Aðeins meira um veikleika Evrópusambandsins
- Veikleikar Evrópusambandsins
- Kári sveiflar sverði
- Svaraði Markús ekki?
- Einföld lausn
- Gleðilega þjóðhátíð
- Nagli Hjartar og nokkrar einfaldar staðreyndir
- Horft í gegnum þokuna í bókunarmálinu
- Landráð?
- Öskrandi stríðsvagn fyrir Íslendinga
- Hann þrengir að öndunarveginum
- Það er ekki smæðin
- Bréfið
- Einföld útskýring Jóns Steinars - og upprifjun Jóns Bjarnason...
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 136
- Sl. sólarhring: 141
- Sl. viku: 1914
- Frá upphafi: 1232082
Annað
- Innlit í dag: 122
- Innlit sl. viku: 1705
- Gestir í dag: 120
- IP-tölur í dag: 118
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar