Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Evrópumál

Að kalla skóflu skóflu

Í yfirstandandi kosningabaráttu spyrja margir um afstöðu til Evrópusambandsaðildar. 

Þó það nú væri!   Eðilegt er að kjósendur fái að vita hvaða skoðun forseti hafi á því hver eigi að setja lög á Íslandi.

Í ljós hefur komið að sumir telja enn að hægt sé að sækja um aðild að Evrópusambandinu til að „sjá hvað sé í boði“.  Það hefur ávallt verið ljóst hvað í boði er, allir fulltrúar Evrópusambandsins eru á einu máli um það.  Í boði er að gangast undir vald sambandsins, lög og dóma, eins og þau eru nú og eins og þau verða í framtíðinni.  Flóknara er það ekki.   Aðildarferlið snýst um að laga sig að þeirri staðreynd.  „Samningaviðræður um aðild“ eru skrauthvörf fyrir aðildarferli. Á það hafa fulltrúar Evrópusambandsins líka margoft bent.

Umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu var skilyrðislaus ósk um aðild að sambandinu. Þegar ósk af því tagi hefur verið samþykkt fer í gang ferli sem miðar að því að laga löggjöf hins verðandi aðildarlands að löggjöf sambandsins.  Þegar því ferli er lokið má segja að landið sé í framkvæmd komið í sambandið og að atkvæðagreiðsla um aðild sé bara formsatriði.


Ástæða til upprifjunar

Sú sérkennilega staða virðist komin upp að sumir frambjóðenda til embættis forseta hafa unnið að því að koma Íslandi undir vald Evrópusambandsins, hver með sínum hætti.  Það væri óneitanlega sérkennileg niðurstaða ef í stöðu varðmanns lýðveldisins settist einstaklingur sem hefur unnið að því að grafa undan því sama lýðveldi. 

Að öðrum ólöstuðum verður seint annað sagt en að Jón Bjarnason, fv. ráðherra, hafi verið brimbrjóturinn í ólgusjó Evrópuumsóknarinnar. Jón bilaði ekki þá, og ekki bilar hann nú.  Jón rifjar upp ýmislegt sem ástæða er til að rifja upp í því sambandi hér: 

https://jonbjarnason.blog.is/blog/jonbjarnason/


Meginforsenda brostin

Hjörtur J. Guðmundsson fjallar um landamæramál í nýrri grein í Morgunblaðinu. 

Ýmis vandamál hafa verið tengd við þann sið að hafa landamæri galopin gagnvart öllum sem koma frá ríkjum Schengen, sem eru langflest ríki Evrópu. 

Einn flötur á marglaga umræðu um svokölluð útlendingamál er hvernig best sé að sinna skyldu gagnvart fátæku fólki.  Verður það best gert með því að bjóða hundrað þúsund fátækum til Íslands eða með því að styðja milljón fátæka til sjálfsbjargar í þeirra eigin heimalandi?   

 

https://www.fullveldi.is/?p=38287

 


Skrýtin rök II

Haft er eftir samningamanni Evrópusambandsins að allir fulltrúar sambandsins ættu sameiginlegt að bera hag Íslands fyrir brjósti.   Ótaldir eru þeir fulltrúar sem hafa, með hönd á brjósti, sagt að Ísland og Íslendingar hafi ekkert að óttast, þeir geti óhræddir afhent Evrópusambandinu lyklana.  Þannig talaði fyrrverandi sendiherra sambandsins í Reykjavík í tíma og ótíma.  

Í fyrsta lagi ættu menn að muna að sendistarfmenn erlendra ríkja tala eftir fyrirfram ákveðnu handriti og þeir mundu aldrei segja annað en eitthvað í þessum dúr.  Þeirra munnur er ávallt fullur af sméri.

Í öðru lagi skiptir engu hvort fulltrúar stórveldisins og vinir þess segja satt eða ósatt um ást sína á Íslandi og Íslendingum.  Eftir 10 ár verða aðrir komnir í þeirra stað.  Enginn veit hverjir það verða og því síður hvað þeir hugsa.  Kannski segja þeir við sig á fyrsta degi: „Hvað ætti ég að gera við þessa fámennu eyju norður í hafi, sem gæti gagnast vinum mínum hér suðurfrá?“


Skrýtin rök I

 

Þeir sem ræða svokölluð Evrópumál við þá fá sem eftir eru af frelsuðum aðildarsinnum komast fljótt að því að frelsunin byggir ekki á staðreyndum heldur á því að hinn frelsaði hefur misskilið eitthvað og heldur að raunveruleikinn sé öðruvísi en hann er.

Lítum á eitt dæmi.  Það er hugmyndin um að Íslendingar geti ekki stjórnað sér, geti ekki ekki rekið banka, geti ekki þetta eða hitt og þess vegna sé best að útlendingar taki verkið að sér.

 

Í fyrsta lagi er staðreyndin sú að Ísland er oftast mjög nálægt toppnum á öllum þeim alþjóðlegu listum þar sem þjóðum er raðað og gott þykir að vera efst.

Í öðru lagi sýnir 1150 ára Íslandssaga glettilega góða fylgni milli velsældar í landinu og hlutfalls stjórnvalds sem er innanlands.

Í þriðja lagi er best að fara afar varlega í að dæma fólk á forsendum þjóðernis, kynþáttar, kyns, hlutfallslegri lengd fingra eða öðru af svipuðu tagi.  Það er enginn eðlismunur á því að segja að Íslendingar séu ónytjungar og að Rúandamenn séu ónytjungar.


Norðmenn greina

Út er komin viðamikil skýrsla um Noreg og EES-samstarfið. 

Fjallað er um málið frá ýmsum sjónarhornum, en undirtónninn er að framtíðin hljóti að bera í sér fríverslunarsamning milli Noregs og Evrópusambandsins, ekki samning á borð við EES, þar sem löggjafarvaldið er framselt til vandalausra. 

Í skýrslunni er vakin athygli á ýmsu.  Má þar nefna velgengni Breta í kjölfar útgöngu úr Evrópusambandinu og tollfrelsi í fiskverslun, sem ekki er í EES, en í viðskiptum við vildarvini Evrópusambandsins á borð við Kanadamenn. 

https://neitileu.no/aktuelt/30-ar-med-eos-avtalen#_ftnref1

 


Barnaskapur

Hjörtur J. Guðmundsson ræðir í grein á Vísi um hagsmuni og vald í Evrópusambandinu.   Hann minnir m.a. á að neitunarvald einstakra ríkja er að verða liðin tíð. 

Reynslan frá EES-samstarfinu sýnir reyndar að neitunarvald virðist gufa upp á nokkrum áratugum. 

Niðurstaðan er auðvitað sú að það er barnaskapur að halda að hagsmunir örríkja á borð við Ísland muni einhverju skipta þegar Evrópusambandið tekur ákvarðanir um það hvernig málum skuli háttað.  

https://www.visir.is/g/20242560006d/hvad-eru-mikilvaegir-hagsmunir-

 


Blóm í grjóthrúgu

Í umræðu um svokölluð Evrópumál er því stundum haldið fram að það þurfi að rannsaka hvaða áhrif aðild, eða hægfara aðild í gegnum skapandi túlkun á EES, hefði á Íslendinga.  Þann stein klappar t.d. Guðjón Jensson í Morgunblaðinu nýlega.

Það er erfitt að mótmæla rannsóknum af því tagi, en það er vandséð að niðurstaða þeirra skipti miklu máli.  Það liggur nefnilega ljóst fyrir að með aðild færist mjög stór, og vaxandi, hluti stjórnvalds frá þjóðríkinu til sambandsins. 

Við vitum ekki hverjir munu stjórna sambandinu eftir 10 ár, og þó við vissum það gætum við ekki rannsakað hvaða ákvarðanir þeir munu taka.  Við getum reyndar gengið að því sem vísu að í því ferli mundi vægi hagsmuna Íslendinga vera svipað og framlag blóms til heildarmassa í grjóthrúgu.  

 

Og af Arnari Þór og Hrafnhildi er það að frétta að þau verða á Hornafirði föstudaginn 19. apríl, á Hellu og Hvolsvelli laugardaginn 20. apríl og á Fluðum, Selfossi og í Hveragerði sunnudaginn 21. apríl.

 

 

 


Á útlensku

Ástæða er til að vekja athygli á síðu Geirs Ágústssonar, samfélagsrýnis.  Hann fjallar í hnitmiðuðu máli um ýmis samfélagsmál.  Óháð efnisatriðum í dómi mannréttindadómstólsins og atburðarás í tengslum við síðustu Alþingiskosningar hittir Geir naglann á höfuðið hvað snertir viðkvæmni sumra ráðamanna fyrir befalíngum frá útlöndum. Stundum mætti halda að menn tryðu því að Ísland heyrði undir kóng í útlöndum. Geir segir:

Íslendingar þurfa líka að venja sig af því að falla á hnén í lotningu þegar kemur bréf frá útlöndum. Gagnrýni er góðra gjalda verð en á stundum engan rétt á sér, satt að segja. Heldur ekki sú sem er skrifuð á útlensku.

https://geiragustsson.blog.is/blog/geiragustsson/entry/2301393/

 

Og að öðru:  Arnar Þór Jónsson og Hrafnhildur verða á Hornafirði föstudaginn 19. apríl, á Hellu og Hvolsvelli laugardaginn 20. apríl og á Flúðum, Selfossi og í Hveragerði sunnudaginn 21. apríl. Opið er fyrir frammíköll.  Dagskráin er hér:

https://arnarthor.is/dagskra

 

Arnar Þór Jónsson er ágætur í útlensku, en fellur ekki í stafi fyrir öllu sem er skrifað á útlensku. 


Annars hafið þið verra af

Það fjarar hratt og örugglega undan EES-samningnum í Noregi.  Ekki mun útfallið minnka við nýjasta útspil Evrópusambandsins sem segir Norðmönnum að samþykkja lög sem sambandið setti um orkumál og heita Orkupakki 4.  Að öðrum kosti muni Norðmenn hafa verra af. 

Allur þorri Norðmanna lítur svo á að löggjöf sé í höndum lýðræðislega kjörinna fulltrúa í Stórþinginu í Osló, ekki í höndum embættismanna í Evrópusambandinu sem starfa eftir fyrirmælum frá Berlín og París.  

Hvað skyldi umbi Evrópusambandsins hafa sagt við íslensk stjórnvöld um þetta mál?

https://montelnews.com/news/0d1b4d1b-d099-4328-9253-a0d56a154dc8/adopt-green-directive-or-face-sanctions-eu-orders-norway

 

Og að öðru:  Arnar Þór Jónsson heldur fund á Sauðárkróki fimmtudaginn 11. apríl og á Akureyri föstudaginn 12. apríl.  Á laugardag verður hann á Dalvík og á sunnudag á Húsavík.  Það er sagt að það sjáist ekki milli veggja fyrir meitluðum setningum á þessum fundum. 

https://arnarthor.is/dagskra


« Fyrri síða | Næsta síða »

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 70
  • Sl. sólarhring: 122
  • Sl. viku: 1358
  • Frá upphafi: 1232298

Annað

  • Innlit í dag: 65
  • Innlit sl. viku: 1223
  • Gestir í dag: 62
  • IP-tölur í dag: 59

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband