Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Evrópumál

Heimsendir í nánd!

Eitt helsta einkenni Evróputrúboðsins eru heimsendaspárnar.  Aldrei ganga þær eftir, en samt koma þær aftur og aftur.  Jafnvel útgefendur kolvitlausra heimsendaspáa fara á kreik aftur, strax að lokinni rangri spá, og byrja að spá á ný.

Þannig var þetta í Icesave-málunum.  Íslandi var spáð öllu illu í tvígang.  Ekkert gekk eftir, en spámennirnir ganga um bísperrtir og halda áfram að mala eins og ekkert hafi í skorist.  Í Bretlandi var spáð efnhagshörmungum ef BREXIT gengi eftir.  Ekki urðu þær og nú eru horfur Breta bjartari en stórríkjanna sem enn eru í Evrópusambandinu.  Í Noregi er búið að hóta myrkum miðöldum í tvígang, árið 1972 og 1994.  Í bæði skiptin afþökkuðu Norðmenn aðild að bandalaginu og heimsendaspárnar fór rakleitt í vaskinn.

Nú eru nokkrar hjáróma raddir, m.a. Evrópuspekúlantsins Róberts Spanó, að reyna að gefa til kynna að illa fari ef Íslendingar samþykki ekki bókun 35, eftir 30 ára umhugsun.  Því trúir auðvitað ekki nokkur maður, og líklega ekki einu sinni heimsendaspámennirnir sjálfir.


Fæstir nenna að hlusta

Sagt er að Róbert Spanó sem skrifaði um bókun 35 í Morgunblaðið 22. febrúar sl. hafi um hríð gist sali embættismanna á meginlandi Evrópu og fengist við að segja Evrópuríkjum til.  Alkunna er að í þeim menningarheimi er talið mikið framfaramál að færa sem mest vald í Evrópusalina og skilja sem minnst af því eftir hjá óupplýstum skríl í afkimum Evrópu.   Við reynum að taka því fólki af umburðarlyndi, þótt fæstir nenni að hlusta á það lengi í einu.

Það hefði þó verið vert að hlusta ef Róbert hefði útskýrt hvers vegna bókun 35 varð eftir þegar EES var samþykktur fyrir 30 árum síðan. Hann gerði það ekki, svo það er best að við gerum það hér.

  1. EES hefði að öllum líkindum ekki komist í gegnum Alþingi með bókun 35.
  2. Meiri samstaða hefði verið með þeirri túlkun að EES gengi gegn stjórnarskrá lýðveldisins.

Hvort um sig hefði dugað til að slátra EES-samningnum á sínum tíma.  

Við svona aðstæður bregða Evrópusinnar á gamalkunnugt ráð.  Ef bitinn er of stór, þá er bara að skera í smærri bita og koma þeim þannig niður.   Fyrst má koma EES strípuðum í gegn, svo getur bókun 35 fylgt þegar meltingarfærin eru tilbúin.


Trúmaður vitnar gegn lýðræði

Bókunarmálið tekur á sig sérkennilegar myndir.  Róbert nokkur Spanó er mikill trúmaður á gæsku Evrópusambandsins og leynir því ekki.  Hann reynir að koma því inn hjá lesendum Morgunblaðsins 22. febrúar að bókun 35 sé mikilvæg fyrir neytendur. 

Undirtónninn í greininni er að Alþingi gæti aldrei staðið Evrópusambandinu á sporði við að setja sanngjarnar reglur um neytendarétt.  Róbert er með öðrum orðum búinn að gefast upp á lýðræðinu, a.m.k. á þessu sviði – og reyndar á flestum öðrum sviðum ef litið er til fyrri skrifa Róberts. 

Sú skoðun á sér ýmis nöfn sem þykja misviðeigandi en eiga sameiginlegt að vera andheiti við lýðræði.

    


Stimpilangist

 

Fleira forvitnilegt en hugmyndina um að EES útvegi erlent vinnuafl má heyra í ræðu háttvirts þingmanns Gísla Rafns Ólafssonar þann 13. febrúar sl. þar sem rætt var um bókun 35 og EES.   Hann var nefnilega við störf í Evrópusambandinu bæði FYRIR og EFTIR gildistöku EES-samningsins. 

Það hlýtur að koma þeim á óvart sem halda að Evrópa hafi verið lokuð Íslendingum fyrir EES.  

Það var þó ekki þannig að EES hefði engin áhrif á Gísla Rafn.  Stimplun yfirvalda í vegabréf Gísla Rafns breyttist nefnilega.  Nú skal ekki gert lítið úr áhuga ungs fólks á stimplum, en er kannski fulllangt gengið að fórna fullveldi landsins fyrir stimpil sem engu breytir öðru en hugarástandi stimpilhafa? 

 

https://www.althingi.is/altext/154/02/l13163820.sgml


Hvað segir furstinn í Katar um það?

Það voru fleiri en Bjarni Jónsson sem stóðu vaktina fyrir fullveldi Íslands á Alþingi 13. febrúar sl.  Ingu Sæland, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og Berþóri Ólafssyni mæltist vel, eins og menn geta heyrt eða lesið ef smellt er á tengilinn hér að neðan.

Afstaða nokkurra svokallaðra bókunarþingmanna er þeim örugglega erfið vegna þess að þorri kjósenda þeirra hefur ekki áhuga á að afhenda Evrópusambandinu meiri völd á Íslandi en það hefur nú þegar fengið.  Þeir ættu að íhuga það og jafnframt skoða betur hvort nokkuð vit sé í því að halda þessu máli til streitu.

Margt skrýtið kemur fram í málflutningi bókunarþingmanna.  Eitt af því er hugmynd Gísla Rafns Ólafssonar, þingmanns Pírata, sem virðist telja að EES sé nauðsynleg forsenda þess að fá útlendinga í vinnu á Íslandi. 

Hvernig skyldi ganga að útskýra slíkt fyrir furstanum í Katar þar sem erlendir verkamenn eru fleiri en aðrir íbúar landsins og Katar samt ekki í EES?

    

https://www.althingi.is/altext/154/02/l13163820.sgml


Bjarni stendur vaktina

Það er ánægjulegt að þingmenn standi vaktina.  Bjarni Jónsson sneri niður frumvarp um bókun 35 með snyrtilegum hætti.  Hann sagði m.a.:

Hversvegna voru slíkar þjóðréttarlegar skuldbindingar ekki upp á borðum þegar fjallað var EES samninginn á sínum tíma og hann samþykktur á Alþingi? Að setja yrði ákvæði inn í íslensk lög til þess að geta tekið evrópskar reglur fram yfir íslenskar lagareglur. Nú tala jafnvel fyrrverandi þingmenn sem þá sátu á þingi og hafa síðan gerst sjálfskipaðir sérfræðingar um EES samninginn og skuldbindingar honum tengdum, um vonum seinni efndir á meintri skuldbindingu sem íslenska ríkið tók á sig við gerð EES-samningsins.  Skuldbindingu sem hvorki þeir, eða aðrir sem til þekktu, færðu orð að þegar málið var til umfjöllunar.

 

 

 


Leiðindaskýrsla fyrir Alþingi 13. febrúar  

Utanríkisráðherra hefur látið semja skýrslu um EES, Ísland og margrædda bókun 35.  Nú vill hann að Alþingi tali um skýrsluna.   Því er skemmst frá að segja að skýrslan er löng og leiðinleg.   

Sagt er frá ýmsu í sögu EES og minnir sú upptalning helst á frásögn Pútíns af sögu Úkraínu síðasta árþúsund, í nýlegu sjónvarpsviðtali við bandarískan blaðamann.   

Í skýrslunni er samsafn trúarjátninga á EES og fullyrðinga um að framsal löggjafarvalds sé eiginlega ekki framsal löggjafarvalds og að það sé auk þess í góðu lagi vegna þess að fundinn hafi verið gullinn meðalvegur með bókun 35.  

En fyrst Alþingi fær málið til meðferðar er rétt að minna á eftirfarandi:

  1. Engar alvöru vísbendingar eru um að lífið á Íslandi væri að neinu leyti verra en það er í dag, ef ekki hefði verið EES-samningur.  
  2. EES-samningurinn kostar Íslendinga mikið, bæði beint og óbeint. Það er tímabært að endurskoða hann með fríverslun í huga.
  3. Vandséð er annað en að í EES-samningnum felist í framkvæmd framsal löggjafarvalds. Það leyfir stjórnarskráin ekki.  Svokölluð bókun 35 hnykkir rækilega á lögleysunni.  Nær væri að vinda ofan af þessari furðuflækju löggjafar en að auka á flækjuna sem umlykur íslenskt samfélag.

https://www.althingi.is/altext/pdf/154/s/0948.pdf


Ekki ónýtt loforð

Arnar Þór Jónsson, fv. dómari og frambjóðandi til embættis forseta Íslands gefur afdráttarlaust loforð um að standa vörð um fullveldi Íslands og hafna löggjöf sem vegur að því. 

Það er ekki ónýtt. Geri aðrir betur. 

https://www.facebook.com/photo/?fbid=10161452569412905&set=gm.605808271711801&idorvanity=439592811666682


Fullveldismál í Bítinu

Farið var yfir nokkur helstu atriði fullveldismála í útvarpsþættinum Bítið.  Haraldur Ólafsson rifjaði upp nokkur atriði sem gætu hafa farið framhjá hlustendum í önn dagsins.

 

https://www.visir.is/k/361b35ca-f823-4ba5-82ea-298a023bfd09-1707380510217


Ekki á þá logið

Rifjað hefur verið upp öðru hverju á þessum vettvangi að Evrópusambandið færir sig sífellt upp á skaftið í ritskoðun.   Síðustu fréttir herma að sambandsmenn íhugi að refsa bandarískum blaðamanni fyrir að velja rangan viðmælanda. 

Það verður ekki á þetta lið logið. 

 

https://www.newsweek.com/tucker-carlson-sanctions-eu-putin-interview-1867655

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 451
  • Frá upphafi: 1121150

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 405
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband