Leita í fréttum mbl.is

Blindir fjölmiđlar í ESB og umbótatilraunir úti í mýri

Ţađ er merkileg lesning á vefmiđlinum Eyjunni um árangurslausan leiđtogafund ESB og lok kreppunnar í augum fjölmiđla. Textinn lýsir fálmkenndum umbótatilraunum leiđtoga ESB og alvarlegum efnahagserfiđleikum víđa í álfunni.

Hćgr er ađ skođa textann hér: Árangurslaus leiđtogafundur í ESB - kreppunni er lokiđ í augum fjölmiđla

Eitt er víst: Kreppunni er ekki lokiđ í augum ţeirra tugmilljóna sem ganga atvinnulausar í ESB. 


Vigdís segir dönsku stjórnina taka hagsmuni ESB umfram eigin ţegna

vigdisŢađ er einkennilegt ađ horfa upp á Danmörku standa međ ESB í deilu viđ smáríki sem er hluti af Danmörku, segir Vigdís Hauksdóttir formađur Heimssýnar og ţingmađur Framsóknarflokksins í nýlegri fćrslu á vefsíđu sinni.

Vigdís segir ađ í verknađi stjórnvalda í Danmörku kristallist tryggđ ríkja sem eru í ESB viđ Evrópusambandiđ sjálft og ađ ţar séu hagsmunir hluta ţegna Danaveldis víkjandi.

Vigdís minnir enn fremur á ađ mikilvćgt sé ađ ţjóđirnar í norđri vinni saman ađ sameiginlegum hagsmunum. Ţá segir hún ađ viđ megum ekki gleyma ţví vinarţeli sem Fćreyingar sýndu okkur á haustdögum 2008.

Pistill Vigdísar er hér: Ísland, Fćreyjar og Grćnland.


Bjarni Benediktsson fjármálaráđherra vill ekki evruna

BjarniBjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráđherra vill ekki evruna og segir íslensku krónuna vera eina kostinn fyrir Íslendinga í gjaldeyrismálum. Ţetta kemur fram í vefritinu News of Iceland.

Í frásögn vefritsins segir Bjarni enn fremur ađ ţađ sem skipti máli sé hagstjórnin í landinu. Evran muni ekki bćta ţar úr.


Ekki má bogna undan hótunum ESB

jonbŢađ á ekki ađ ganga til nauđasamninga viđ ESB um makríl. Viđ megum alls ekki bogna fyrir ríkjasambandi sem í krafti stćrđar og óskammfeilni heldur uppi hótunum um beitingu valds eins og ESB hefur gert gagnvart Íslendingum og Fćreyingum. Fćreyingar hafa ţó enn haldiđ haus í deilunum viđ ESB um fiskveiđimálin, enda mikiđ í húfi, yfir 95% af útflutningstekjum ţeirra.

Svo segir í nýlegri bloggfćrslu Jóns Bjarnasonar, varaformanns Heimssýnar og fyrrverandi sjávarútvegsráđherra.

Jón segir enn fremur ađ makríl hafi fjölgađ mjög mikiđ í íslenskri lögsögu og ađ hann innbyrđi óhemjumikiđ af fćđu í samkeppni viđ ađra nytjafiska.

Sjá bloggfćrslu Jóns hér: Gefum ekki eftir okkar hlut í makrílveiđunum


Bloggfćrslur 26. október 2013

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 29
  • Sl. sólarhring: 39
  • Sl. viku: 913
  • Frá upphafi: 1232348

Annađ

  • Innlit í dag: 27
  • Innlit sl. viku: 814
  • Gestir í dag: 26
  • IP-tölur í dag: 25

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband