Leita í fréttum mbl.is

Evrukreppan er ađ ná til Danmerkur, Svíţjóđar og Hollands

„Fram ađ ţessu hafa vandamál evruríkjanna fyrst og fremst veriđ viđ Miđjađarhaf og á Írlandi. Grikkland, Spánn, Portúgal og Írland hafa ţurft á neyđarlánum ađ halda og nú síđast Kýpur. Ţó ber ađ taka fram ađ ađstođin viđ Spán snýr til ţessa eingöngu ađ spćnskum bönkum.“

Svo segir Styrmir Gunnarsson á vef Evrópuvaktarinnar.

Hann segir ennfremur:

„Nú eru vaxandi umrćđur um ađ Ítalía eigi eftir ađ lenda í sömu stöđu og verđi ađ leita neyđarláns og er bandaríska matsfyrirtćkiđ Moody´s í hópi ţeirra, sem ţađ hafa sagt opinberlega. Jafnframt eru vaxandi áhyggur af efnahagslegri stöđu Frakklands.

En ţađ sem ţó vekur mesta athygli ţessa dagana er ađ vandamálin eru ađ leita enn norđar en til Frakklands. Í gćr á 1. maí var ađsúgur gerđur ađ Helle Thorning-Schmidt, forsćtisráđherra Danmerkur, ţegar hún hugđist halda rćđu í tilefni af hátíđisdegi verkalýđsins, Forsćtisráđherrann, sem jafnframt er leiđtogi danskra jafnađarmanna varđ ađ hćtta viđ flutning rćđunnar vegna mótmćla, sem ađ henni beindust. Sú reiđi, sem ţarna braust fram beindist ekki bara ađ forsćtisráđherranum heldur líka ađ öđrum fulltrúum ríkisstjórnarinnar, sem töluđu eđa ćtluđu ađ tala á 1. maí.

Ţessi viđbrögđ almennings hafa ađ vonum vakiđ mikla athygli í Danmörku og benda til ţess ađ ekki sé allt međ felldu í dönsku ţjóđlífi. Evrukreppan sé líka farin ađ láta finna fyrir sér ţar.

Hingađ til hefur veriđ litiđ á Holland í sama flokki efnahagslega og Ţýzkaland. Nú er upplýst í Daily Telegraph ađ svo er ekki og fullyrđir blađiđ ađ Holland sé komiđ nálćgt ţví ađ falla í svipađa kreppu skuldsetningar og verđhjöđnunar og hrjáđ hefur Japan í tvo áratugi. Ţetta ţýđir ađ ţađ er heldur ekki allt međ felldu hjá Hollendingum og rétt ađ halda ţví til haga ađ bćđi Danir og Hollendingar töluđu niđur til Íslendinga haustiđ 2008.

Í fréttum Evrópuvaktarinnar í dag kemur fram, ađ ţegar námufyrirtćki í Norđur-Svíţjóđ auglýsti 400 störf laus sóttu hvorki meira né mina en 22 ţúsund manns um ţau störf. Í ljós kemur ađ atvinnuleysi í Svíţjóđ er komiđ í 8,8% sem ţýđir ađ nćr hálf milljón Svía er án atvinnu. Jafnvel í ţví mikla velmegunarríki Svíţjóđ er nú svo komiđ ađ evrukreppan og fjármálakreppan í heild teygir anga sína ţangađ.

Evrukreppan er ekki lengur stađbundiđ vandamál Miđjarđarhafsríkjanna og Írlands. Hún er ađ breiđast út um allt evrusvćđiđ og til ESB-ríkja, sem ekki hafa tekiđ upp evru.

Ţađ er gott fyrir Ísland ađ Samfylkingin mun ekki öllu lengur ráđa ríkjum í utanríkisráđuneytinu.“


Evrusóttin breiđist út í Slóveníu

Moody's lánshćfismatsfyrirtćkiđ stađfestir hér ađeins ţađ mat sem áđur hefur komiđ fram: Evrusóttin breiđist enn út á nýjum svćđum, og ţótt hámarki hafi veriđ náđ í öđrum löndum reynist sóttin ţar einnig lífseig, ţví vírusinn - sem sagt evran - er enn til stađar í nćgum mćli.


mbl.is Slóvenía í ruslflokk
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 2. maí 2013

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 161
  • Sl. viku: 742
  • Frá upphafi: 1232513

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 637
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband