Leita í fréttum mbl.is

Heimta endurgreiðslu á áróðursstyrkjunum fyrst Íslendingar létu ekki segjast

Þessi breski Evrópuþingmaður telur greinilega að Íslendingar eigi að endurgreiða þessa áróðurs-IPA-styrki fyrst þeir dugðu ekki til að hafa áhrif á það hvernig Íslendingar greiddu atkvæði í þingkosningunum.

Kannski að það þurfi bara að endurgreiða líka alla styrkina sem háskólarnir hafa fengið frá ESB, sem Háskólinn í Reykjavík hefur fengið, sem Háskóli Íslands hefur fengið og sem Bifröst hefur fengið.

Það væri nú handleggur.

Það þarf nú einhver Evrópufræðingurinn að fara í saumana á þessu!


mbl.is Spyr hvort ESB heimti styrki til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrstu viðbrögð ESB sýna hroka í garð ríkisstjórnarinnar og Íslendinga

Það var eftir því tekið að fulltrúar ESB sögðust í dag ekki vilja tjá sig um stefnu nýrrar ríkisstjórnar fyrr en það kæmi raunverulega í ljós hver stefnan væri. Raunverulega! Það er ekki laust við að þessi viðbrögð sem RUV endurflutti í dag sýni talsverðan hroka í garð Íslendinga.

Af þessum ummælum mætti ætla að fulltrúar ESB telji að það sé ekkert að marka það sem stendur í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar!

Það er skiljanlegt að einhverjir embættismenn og pólitíkusar í ESB séu í áfalli yfir því að ný ríkisstjórn á Íslandi ætli að stöðva viðræðurnar við ESB. Það sem er hins vegar áhugavert er hvort forysta ESB fari í verulega fýlu og reyni að vinna gegn Íslendingum á einhverja lund. Ýmsir hafa látið slíkt í veðri vaka.

Það er því spurning hvort ekki þurfi að ræða eitthvað við fulltrúa ESB hér á landi og jafnvel hjálpa þeim undirbúa fyrirséða brottför sína. Fulltrúar ESB hafa svo sem verið ákafir til þessa að ræða sín mál við Íslendinga.


mbl.is Áfall fyrir Evrópusambandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

180 gráðu beygja í ESB-málunum á Íslandi segir danski Börsen

Danski vefmiðillinn Börsen.dk segir að Íslensk stjórnvöld hafi nú tekið 180 gráðu beygju í ESB-málunum. Aðildarumsóknin að ESB verði nú lögð til hliðar. Ný ríkisstjórn á Íslandi segi nei við ESB.

Fréttir um viðsnúning í Evrópumálunum á Íslandi eru nú fljótar að berast um álfuna. Það má búast við því að þær verði efasemdarfólki um ESB á meginlandi Evrópu og í Bretlandi hvatning til að herða róðurinn.

 


mbl.is Jákvæð og bjartsýn ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB-málin í stjórnarsáttmálanum

Í sáttmála ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks segir um umsóknina um aðild að ESB: Gert verður hlé á aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið og úttekt gerð á stöðu viðræðnanna og þróun mála innan sambandsins. Úttektin verður lögð fyrir Alþingi til umfjöllunar og kynnt fyrir þjóðinni. Ekki verður haldið lengra í aðildarviðræðum við Evrópusambandið nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.

Það er fróðlegt að bera sáttmálatextann við samþykktir æðstu stofnana flokkanna sem að ríkisstjórninni standa.

Landsfundarsamþykkt Sjálfstæðisflokksins hljóðar svo: „Landsfundur telur að hagsmunum Íslands sé betur borgið með því að standa fyrir utan Evrópusambandið. Áréttað er að aðildarviðræðum við ESB verði hætt og þær ekki teknar upp aftur nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.“

Flokksþingssamþykkt Framsóknarflokksins hljóðar svo: „Framsóknarflokkurinn telur hag lands og þjóðar best borgið utan Evrópusambandsins. Ekki verði haldið lengra í aðildarviðræðum við Evrópusambandið nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.“


mbl.is Mun starfa í ungmennaanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. maí 2013

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 161
  • Sl. viku: 742
  • Frá upphafi: 1232513

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 637
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband