Leita í fréttum mbl.is

Evrulandið Írland enn í djúpri kreppu

irlandNýjar hagtölur benda til að evrulandið Írland sé enn í djúpri kreppu. Framleiðsla hefur dregist saman, atvinnuleysi hefur margfaldast frá því evrukreppan hófst og húsnæðisverð hefur lækkað um helming að jafnaði.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýlegri frétt Reuters-fréttastofunnar, sem að jafnaði er talin ein hin traustasta af hinum stóru alþjóðlegu fréttastofum.

Hagvöxtur var neikvæður á Írlandi á fyrsta fjórðungi þessa árs eftir nokkurn samdrátt á síðari hluta síðasta árs.

Opinber útgjöld hafa verið skorin niður á Írlandi í verulegum mæli til að bregðast við himinháum skuldum sem ríkisvaldið tók á sig vegna bankakreppunnar. Írar hafa tekið niðurskurðinum af meira æðruleysi en margar aðrar þjóðir. Samt hafa margir Írar orðið fyrir launalækkun sem nemur um 20 prósentum, auk þess sem skattar hafa verið hækkaðir. Atvinnuleysið er nú 14%.

Írland var annað evrulandið sem AGS og ESB aðstoðuðu með björgunaraðgerðum í nóvember 2010, en þeim björgunaraðgerðum hefur enn ekki verið lokið. Það er hins vegar mikilvægt fyrir ESB að Írland komist á eigin fætur sem fyrst. Afturkippurinn sem efnahagslífið á Írlandi hefur orðið fyrir síðustu ársfjórðunga bendir þó ekki til að það muni takast vel.


Sigmundur Davíð segir aðildarviðræður nú algjörlega út í hött

SigmundurÍ fróðlegu viðtali á Sprengisandi Bylgjunnar nú fyrir hádegi sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í raun að aðildarviðræður við ESB væru algjörlega út í hött. Þjóðin er á móti aðild, þingið sem þjóðin kaus er á móti aðild og ríkisstjórnin sem kjósendur kusu til valda er á móti aðild.

Aðspurður um hvort ekki þyrfti að ganga hreinlegra til verks gagnvart ESB minnti Sigmundur á að Svisslendingar hefði verið með umsókn að ESB í frysti í nokkra áratugi. Þótt það taki nokkra mánuði að ganga frá þessum málum hér á landi þurfa menn því ekki að fara af hjörunum.

Þá hefði sú aðferð sem síðasta ríkisstjórn viðhafði við umsóknar- og aðildarferlið verið fyrir neðan allar hellur. Það þýddi ekki, eins og síðasta ríkisstjórn gerði, að senda inn umsókn og bíða svo eftir tilboði um samning. Það væri mjög óeðlilegur gangur í aðildarferlinu. Það yrði að vera svo að þegar umsókn væri send inn þá meintu menn eitthvað með því, ekki hvað síst ríkisstjórnin, og það yrði að vera ríkur vilji til þess meðal þjóðarinnar og stjórnmálaaflanna að ganga í ESB. Slíku hefði ekki verið til að dreifa í tilviki fyrri ríkisstjórnar og því væri síður en svo til að dreifa nú.

Það þarf vilja þjóðar, þings og ríkisstjórnar til að endurvekja aðildarumsóknina eins og Vinstrivaktin segir í pistli.

Sigmundur hittir Barroso aðalframkvæmdastjóra ESB um miðjan næsta mánuð og mun þá gera honum nánari grein fyrir stöðunni.

Sigmundur ítrekaði að núverandi stjórnarflokkar vildu ekki að Ísland yrði aðili að ESB og að í stjórnarsáttmálanum stæði að ef til þess kæmi að halda ætti viðræðum áfram þá yrði slíkt að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrst.

Sá tími er ekki kominn - og það er ekkert sem bendir til þess að hann komi á næstunni þar sem ríkisstjórnin og þjóðin eru á móti aðild að ESB.

Sigmundur bætti því svo við að sérfræðingar efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD teldu það mjög óhentugt fyrir Íslendinga að standa í aðildarviðræðum nú.

Í lokin sagði Sigmundur að það yrði í hæsta máta hjákátlegt að vera að standa í viðræðum við ESB þegar sambandið hótaði okkur refsiaðgerðum vegna makrílveiða.

Það yrðu ámóta ólögmætar refsiaðgerðir og hryðjuverkastimpillinn sem Bretar settu á okkur í október 2008 sem kostuðu íslenskt þjóðarbú ómælda fjármuni.


Sigmundur Davíð segir krónuna og fiskinn bjargvætti

SigmundurSigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir krónuna vera einn þeirra þátta sem hefur hjálpað Íslandi út úr kreppunni og að nýta eigi áfram þá möguleika sem krónan veitir til bjargar út úr þeim erfiðleikum sem enn blasa við.

Þetta kom fram í viðtali Sigurjóns M. Egilssonar á Sprengisandi Bylgjunnar í morgun.

Í þættinum undirstrikaði Sigmundur einnig mikilvægi neyðarlaganna svokölluðu á sínum tíma. Þá sagði Sigmundur að með sjálfstæðum gjaldmiðli, þ.e. krónunni, væri hægt að leysa mun betur en ella þann vanda sem fylgir svokallaðri snjóhengju, þ.e. þann vanda sem krónueign erlendra aðila skapar.

Í þættinum undirstrikaði Sigmundur einnig hversu mikilvægar fiskveiðar og fiskvinnsla væru Íslendingum og að góður gangur í þeim atvinnugeirum væru einnig að hjálpa Íslendingum út úr kreppuvandanum.

Sem sagt: Sjálfstæður gjaldmiðill og trygg yfirráð landsmanna yfir fiskveiðiauðlindinni eru grundvallaratriði sem við eigum ekki að gefa eftir í samskiptum við aðrar þjóðir. Það er lífsspursmál að þjóðin geti notið afraksturs fiskveiðiauðlindarinnar sem best, hér eftir sem hingað til.


Bloggfærslur 30. júní 2013

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 111
  • Sl. sólarhring: 115
  • Sl. viku: 941
  • Frá upphafi: 1232463

Annað

  • Innlit í dag: 81
  • Innlit sl. viku: 825
  • Gestir í dag: 79
  • IP-tölur í dag: 79

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband