Leita í fréttum mbl.is

Gálgafrestur Grikkja ađ renna út?

Margir spá ţví ađ til tíđinda dragi eftir páska í samskiptum Grikkja, ESB og AGS. Grikkir ţurfa nýtt neyđarlán til ađ gríska ríkiđ geti stađiđ viđ skuldbindingar sínar og hefur gríska stjórnin sent framkvćmdastjórn ESB og AGS lista yfir ađgerđir til ađ bćta fjárhagsstöđu gríska ríkisins en slíkar ađgerđir eru forsenda ţess ađ Grikkir fái nýtt lán. Listinn ţykir ţó bćđi ófullnćgjandi og of seint fram kominn. Samtímis halda ráđherrar í grísku ríkisstjórninni ţví fram ađ evrusamstarfiđ standi á brauđfótum.

Međal ţess sem ríkisstjórn Grikklands hyggst gera til ađ bćta fjárhagsstöđu ríkissjóđs er ađ taka ákveđnar á skattaundanskotum og selja hluta hafnar í borginni Píreus til Kínverja. Í nćstu viku á Grikkland ađ endurgreiđa AGS sem svarar um 70 milljörđum króna af láni sem landiđ fékk frá sjóđnum. Grikkland getur ekki bćđi greitt af ţví láni og stađiđ viđ ađrar skuldbindingar án ţess ađ til komi ný fyrirgreiđsla frá ESB og/eđa AGS.

Umrćđa um ţađ hvort Grikkland muni haldast innan evrusamstarfsins skýtur upp kollinum međ reglulegu millibili. Ýmsir, svo sem Anders Borg, fyrrverandi fjármálaráđherra Svíţjóđar, telja ađ rétt sé ađ gera allt til ađ halda Grikkjum innan evrusamstarfsins, m.a. annars ţar sem tímabundnar afleiđingar af útgöngu fyrir grískan almenning gćti orđiđ mjög erfiđar.

Ađrir, eins og fjárfestirinn mikli, Warren Buffet, segir ađ ţađ ţurfi ekki ađ vera svo slćmt ţótt Grikkir yfirgefi evrusvćđiđ.

 

 


Tilskipun um heilbrigđistţjónustu yfir landamćri - afleiđingar?

Sáralítil umrćđa hefur veriđ hér á landi um tilskipun ESB-ţingsins um heilbrigđisţjónustu yfir landamćri. Yfirlýst markmiđ tilskipunarinnar er ađ bćta ţjónustu og öryggi sjúklinga. Ýmsir óttast hins vegar ađ tilskipunin muni fyrst og fremst gagnast hagsmunum stórfyrirtćkja á ţessu sviđi og ađ afleiđingin geti orđiđ meiri samţjöppun og á endanum verri ţjónustu fyrir sjúklinga í heild.

Međ tilskipuninni gćtu sjúklingar valiđ sér ţjónustu í öđrum löndum innan ákveđinna marka. Steinar Westin, lćknir og prófessor í Ţrándheimi í Noregi, segir ađ međ tilskipuninni sé veriđ ađ grafa undan ţví óskráđa samkomulagi, sem veriđ hafi á milli ţjóđfélagshópa víđa í Evrópu, ađ markađsöflin nái ekki nema í takmörkuđum mćli til menntunar og heilbrigđisţjónustu. Ţar hafi allir jafnan rétt og ađgang og ađ ţjónustan sé ađ megninu til greidd af sköttum. Tilskipun ţings ESB geti grafiđ undan ţeirri ţjónustu og ţví trausti sem ríkt hefur á milli sjúklinga og heilbrigđisstarfsfólks ţegar lögmál frambođs og eftirspurnar, í samrćmi viđ meginstef innri markađar EES, veriđ látin ráđa meiru um ţjónustuna. 

Ţá óttast ýmsir ađ ţetta geti leitt til ţess ađ heilbrigđisţjónusta flytjist í enn hrađari og ríkari mćli en áđur frá jađarsvćđum til stćrri landa og borga og ađ heilbrigđisstarfsfólkiđ flytjist ţá frá dreifbýlli svćđum og minni löndum til ađ sinna sérhćfđri ţjónustu á stćrri kjarnasvćđum.

Ţessi atriđi hafa mjög lítiđ veriđ rćdd hér á landi. Ađ minnsta kosti hefur ţađ ţá fariđ lágt. Spurningin er hvort ekki sé ástćđa til ţess ađ rćđa ţađ eitthvađ nánar áđur en skattborgarar verđa látnir borga í auknum mćli fyrir ţjónustu erlendis?

 

 


Bloggfćrslur 5. apríl 2015

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 33
  • Sl. sólarhring: 162
  • Sl. viku: 1567
  • Frá upphafi: 1230067

Annađ

  • Innlit í dag: 33
  • Innlit sl. viku: 1379
  • Gestir í dag: 31
  • IP-tölur í dag: 31

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband