Leita í fréttum mbl.is

Fimmta herdeildin

heimssyn-hernadur-byssa

Til eru menn sem vilja að stjórn lands og þjóðar sé í útlöndum.  Í venjulegu árferði eru þeir fáir, en það fjölgar í hópnum þegar bjátar á og raddir boðbera töfralausna á vandmálum verða háværar. 

Ástæður þess að þessir menn vilja stjórnina úr landi eru ýmsar.  Sumir telja sig geta hagnast á breyttu stjórnskipulagi með einum eða öðrum hætti, en aðrir telja einfaldlega að heimamenn séu of heimskir og vitlausir til að geta stjórnað. 

Fyrir þessu fólki vefst ekki að fórna lýðræðinu.  Það hugsar eins og Kínverjinn sem spurði “Hví skyldi ég vilja lýðræði þegar ég hef stjórn sem útvegar mér vinnu, sjónvarp og loftkælingu?”. 

Til eru samtök sem vinna að því að stofna sambandsríki Evrópu, umfram það sem þó er orðið.  Til skamms tíma var hópur Íslendinga þar innanborðs.  Sá hópur var hávær heima fyrir og lætur nú á sér kræla á ný.  Sem fyrr, er lofað gulli og grænum skógum, bara ef valdið er flutt til útlanda.  Það vefst ekki fyrir trúboðinu að flestir þeirra sem fyrir eru í Evrópusambandinu eiga ekkert gull, bara tóma vasa.

Hjörtur J. Guðmundsson veltir samtökunum fyrir sér og sögulegum tengslum Íslendinga í Evróputrúboðinu við þau á vefsíðunni fullveldi.is

http://fullveldi.is/?p=3543


Bloggfærslur 22. júlí 2021

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.5.): 168
  • Sl. sólarhring: 207
  • Sl. viku: 1791
  • Frá upphafi: 1223331

Annað

  • Innlit í dag: 144
  • Innlit sl. viku: 1548
  • Gestir í dag: 139
  • IP-tölur í dag: 139

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband