Leita í fréttum mbl.is

Grískar skuldir og íslenska krónan

Grikkland glímir við samkeppnisvanda sem landið gæti lagað með því að fella gengi drökmunnar. En Grikkir fylgdu fyrir tíu árum ráðum Samfylkingarinnar og vörpuðu eigin mynt fyrir róða og tók evru fagnandi. Vextir lækkuðu, kaupmáttur jókst og allir sátu glaðir að veisluborði Evrópusambandsins. ´

Samkeppnishæfni gríska hagkerfisins gagnvart öðrum ríkjum evrusvæðisins, einkum Norður-Evrópu, versnaði jafnt og þétt allan áratuginn sem evran hefur verið í notkun í Grikklandi. Nú er svo komið að Grikkir standa ekki undir skuldunum sem safnast hafa í góðæri evru-tímabilsins og eru meira og minna á framfæri Evrópusambandsins. Grikkir geta ekki fellt gjaldmiðilinn sinn vegna þess að þeir hafa engan gjaldmiðil að fella.

Anthony Coughlan er írskur hagfræðingur sem er í heimsókn hér á landi á vegum Heimssýnar. Hann fór yfir málefni evrunnar gagnvart jaðarríkjum eins og Írlandi og Grikklandi á fundi í Reykjavík í gær og á Akureyri í hádeginu.

Skilaboð Coughlan og annarra hagfræðinga sem ekki eru félagar í Samfylkingunni eru skýr: evran eyðileggur hagkerfi þjóða sem ekki ganga í takt við þýska hagkerfið. 

Íslenska krónan er margfalt betri kostur fyrir Ísland en evran.


mbl.is Roubini: Endurskipuleggið skuldir Grikklands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 275
  • Sl. sólarhring: 325
  • Sl. viku: 2755
  • Frá upphafi: 1164962

Annað

  • Innlit í dag: 238
  • Innlit sl. viku: 2367
  • Gestir í dag: 218
  • IP-tölur í dag: 217

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband