Leita í fréttum mbl.is

Ísland á skuldabál evru-ríkjanna

Evrópusambandið getur ekki komið sér saman um hverjir eigi að sitja neyðarfundi um framtíð evrunnar. Sarkozy forseti Frakklands sagði um helgina að Cameron forsætisráðherra Breta ætti ekki að sitja fundi um evruna þar sem Bretland væri eitt af tíu ríkjum Evrópusambandsins sem ekki hefði evru að lögeyri.

Hroki Sarkozy er í engu samræmi við eymdarstöðu evru-ríkjanna 17. Þau kölluðu snemma til Alþjóða gjaldeyrissjóðinn til að hjálpa sér; síðan voru Bandaríkin spurð um fjármagn til að leysa skuldakreppuna og því næst Kína. Um helgina fóru evru-ríkin með betlistaf til smáríkisins Noregs og báðu um framlag í neyðarsjóð til hjálpar Grikkjum, Spánverjum, Ítölum, Írum og Portúgölum.

Evru-svæðið stendur í ljósum logum skuldabáls og samdráttar. Enginn möguleiki er að vandi evrulands hjaðni í bráð. Og þangað ætlar ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms J. með lýðveldið okkar.


mbl.is Beðið eftir fregnum af evru-svæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.12.): 65
  • Sl. sólarhring: 472
  • Sl. viku: 2498
  • Frá upphafi: 1176189

Annað

  • Innlit í dag: 61
  • Innlit sl. viku: 2266
  • Gestir í dag: 60
  • IP-tölur í dag: 57

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband