Leita í fréttum mbl.is

Viðskiptablaðið: Evran hættulegri þjóðskipulaginu en stríð!

Evran var að margra mati verkefni með þann pólitíska tilgang að koma á efnahagslegum og þar með pólitískum stöðugleika í Evrópu. Leiðarahöfundur Viðskiptablaðsins segir í dag að evran sé nú helsta ástæðan fyrir pólitískum óstöðugleika í Evrópu. Evruverkefnið hefur því hafnað úti í skurði.

Viðskiptablaðið minnir á að á Kýpur muni heppnir sparifjáreigendur tapa 40% innlána sinna, aðrir 60-80% og sumir aleigunni. Slík aðgerð gegn almennum sparifjáreigendum skilji „ekki aðeins þá og stóran hluta hagkerfisins eftir í sárum, heldur grefur hún beinlínis undan sjálfu peningakerfinu, eignarréttinum og kapítalísku þjóðskipulagi. Og ekki aðeins á Kýpur, heldur á evrópska myntsvæðinu öllu. Áhrifa þess mun gæta víðar.“

Þetta eru mjög stór orð. Aðgerðir forystu ESB og Seðlabanka Evrópu grafa undan peningakerfi, eignarrétti og kapítalísku þjóðskipulagi á öllu evrusvæðinu – og áhrifa þess mun gæta víðar!

Ennfremur segir leiðarahöfundur að gjaldeyrishöftin á Kýpur samræmist á engan hátt myntsamstarfinu og þess sé jafnvel ekki langt að bíða að gengi evrunnar verði misjafnt eftir því hver höndlar með hana hvar.

Evran hættulegri þjóðskipulaginu en stríð!

Í lok leiðarans segir:  „Bankahrunið á Kýpur hefur leitt innbyggða veikleika evrusvæðisins enn betur í ljós. Til þess að viðhalda myntsamstarfinu verður ekki hjá því komist að taka upp sameiginlega ríkisfjármálastefnu ríkjanna á evrusvæðinu og nauðsynin á bankabandalagi blasir við. En líkurnar á þessu eru engar. Írar, Ítalir og Grikkir munu ekki fella sig við að Þjóðverjar stjórni því til frambúðar hversu miklum fjármunum er ráðstafað í nafni almannavaldsins og hvernig. Enn síður Spánverjar eða Frakkar. Þá væri enda verið að fórna fullveldi ríkjanna og sjálfu lýðræðinu á altari evrunnar og þýskra hagsmuna. Umrótið á Kýpur hefur svo gert líkurnar á bankabandalagi fjarstæðukenndar. Myntsamstarfið er ekki dauðadæmt, en það er tímabært að huga að því hvernig vinda megi ofan af tilrauninni, skipta evrusvæðinu upp og leysa þjóðir Suður-Evrópu úr evrugildrunni. Þar er fjórðungsatvinnuleysi að verða reglan, en á evrusvæðinu öllu mælist það nú 12%. Víðast hvar er lítil von um efnahagsbata í bráð, fyrir sum ríkin er hann óhugsandi. Aðalhvatinn til þess er þó ekki lengur aðeins efnahagslegur, því evrukreppan er líka orðin helsti pólitíski óstöðugleikavaldur álfunnar.“

Miðað við þetta er evran það alvarlegasta sem komið hefur fyrir Evrópu síðustu aldir ef frá eru taldar ýmsar styrjaldir. Þegar að er gáð er þó rétt að hafa í huga að síðustu stórstyrjaldir grófu ekki einu sinni undan peningakerfinu, eignarréttinum og kapítalísku þjóðskipulagi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Snorri Hansson

Evran er að valda kreppuástandi og spennu milli aðildarríkja sem seinna meir gæti þó ólíklegt sé valdið átökum jafnvel stríði.  En að fullyrða að Evran sé hættulegri en stríð er yfirgengilega heimskuleg fullyrðing.

Snorri Hansson, 5.4.2013 kl. 03:08

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ef maður leiðir hugan að fólkinu í löndunum þá er það mjög skiljanlegt að þar kraumi víða undir.  Við ættum að bíða og sjá hvernig þetta fer allt saman.  Það sér hver heilvita maður sem ekki er blindaður af evrugullinu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.4.2013 kl. 11:20

3 Smámynd:   Heimssýn

Það var einmitt framsetningin hjá Viðskiptablaðinu sem vakti athygli og það er sett í fyrrsögn sem niðurstaða eða ályktun. Leiðarahöfundur segir að evran og afleiðingar hennar ógni peningakerfi, eignarrétti og kapítalísku hagkerfi. Þetta þrennt stendur nokkurn veginn svipað þrátt fyrir stríð á síðustu öld. Það að sumir telji að evran geti þannig grafið undan því sem t.d. síðari heimsstyrjöld tóks ekki hlýtur að teljast merkilegt.

Heimssýn, 5.4.2013 kl. 15:54

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er alveg viss um að fólkið í löndunum hinn almenni borgari er ekki ánægður með skipan mála, svona yfir leitt.  Hef heyrt í ýmsum í mörgum löndum ESB, sem vara okkur virkilega við að fara þarna inn,  þangað höfum við ekkert að gera. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.4.2013 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 338
  • Sl. sólarhring: 367
  • Sl. viku: 1365
  • Frá upphafi: 1119808

Annað

  • Innlit í dag: 271
  • Innlit sl. viku: 1148
  • Gestir í dag: 256
  • IP-tölur í dag: 251

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband