Fimmtudagur, 25. apríl 2013
Jón Bjarnason tók fréttamenn RUV í kennslustund
Það var fróðlegt að fylgjast með því áðan hvernig Jón Bjarnason uppfræddi fréttamenn Ríkisútvarpsins um eðli samningaviðræðna Íslands og Evrópusambandsins. Honum tókst smám saman að koma þeim í skilning um að þetta væru ekki neinar samningaviðræður, heldur einhliða aðlögun Íslands að regluverki ESB.
Þess vegna væri það rangnefni og misskilningur í skoðanakönnunum þar sem spurt er hvort fólk vilji ljúka samningaviðræðum til að sjá endanlegan samning og kjósa um hann. Verði viðræðurnar kláraðar verða Íslendingar búnir að stíga í raun langflest skref sem þarf til að ganga inn í Evrópusambandið. Eðlilegt væri að spyrja fólk um það hvort það vilji ganga þá braut og með þeim hætti inn í ESB.
Þetta eru engar samningaviðræður heldur einhliða aðlögun Íslands
Málið er nefnilega að þessar svokölluðu samningaviðræður felast í því, eins og Jón Bjarnason sagði, að Ísland lýsi því yfir hvenær og hvernig það ætli að taka upp reglur, reglugerðir og regluverk ESB, og hvenær og hvernig það ætli að breyta ýmsum lögum. Áður en mögulegur samningur verður undirritaður þarf því að liggja fyrir að Ísland sé búið að uppfylla hann og breyta sínu samfélagi, fyrir utan einhver minniháttar atriði sem tímabundinn frestur er veittur til að aðlaga.
Milljörðum veitt úr sjóðum ESB til að hafa áhrif á skoðanir Íslendinga
Það var líka fróðlegt að heyra Jón Bjarnason uppfræða sjónvarpsspyrla RUV um IPA-styrki og muninn á þeim og ýmsum menningarstyrkjum sem eru á allt öðrum grunni. Það er nefnilega þannig, eins og sumir hafa bent á, að IPA styrkjunum er meðal annars ætlað að hafa áhrif á skoðanir Íslendinga til aðildar að ESB um leið og þeim er ætlað að aðlaga Ísland að ESB fyrirfram og eru þeir því, ásamt þeim hundruðum milljóna sem fara í ESB-áróður í gegnum Evrópustofu, ekkert annað en það að bera fé á dóminn, eins og sagt er.
Það er nú vonandi eftir þessar skýringar Jóns Bjarnasonar að fréttamennirnir og fleiri fari nú að skilja það hvers konar viðræður eru í gangi og að af þeim sökum sé eðlilegt að hætta þeim nema að skýr þjóðarvilji sé til að ganga í ESB.
Nýjustu færslur
- Heimssýn á Samstöðinni
- Til almennrar dreifingar!
- Krónan er ekki vandi
- Ísland náð sér fyrr eftir COVID en ESB
- Að munstra sig á sökkvandi skip
- Alltaf sama platið - hin skelegga Birna
- Leyndarhjúpur evrópska seðlabankans
- Efnahagslífið á evrusvæðinu nánast botnfrosið
- Viðvarandi langtímaatvinnuleysi víða í Evrópu, en minnst á Ís...
- Jaðarríkin í Evrópu líða fyrir evruna
- Evrunni hafnað þar sem hún gæti grafið undan lífeyriskerfinu
- Fjármálaeftirlitið óánægt með íþyngjandi regluverk ESB
- Er blásýra góð við þorsta?
- Fyrrverandi dómari gengur erinda Evrópusambands
- Myrkur og óöld
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 161
- Sl. sólarhring: 274
- Sl. viku: 2530
- Frá upphafi: 1165158
Annað
- Innlit í dag: 135
- Innlit sl. viku: 2158
- Gestir í dag: 129
- IP-tölur í dag: 128
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Varð svo upp með mér að ég tíundaði þetta á facebook.
Helga Kristjánsdóttir, 25.4.2013 kl. 23:13
þið voruð greinilega ekki að horfa á sama þátt og ég
rafn gudmundsson (IP-tala skráð) 26.4.2013 kl. 00:01
Þetta var frábær frammistaða hjá Jóni Bjarnasyni, sem sagði það sem þurfti að segja.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.4.2013 kl. 00:16
Heyr, heyr mál til komið, það er svo vonandi að fréttamenn fari að skoða þetta mál og kynna með réttum hætti fyrir alþjóð! Auðvitað þarf svo að orða skoðanakannanirnar rétt, vill þjóðin innleiða allt regluverkið og vera svo spurð álits??? Það efa ég stórlega!
Auður Svanhvít Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 26.4.2013 kl. 00:36
Stöðvum strax aðlögun að ESB - undirskriftasöfnun
Loftur Altice Þorsteinsson.
Samstaða þjóðar, 26.4.2013 kl. 00:42
Jón var flottur og ekki öfundsverður að fá tvo heilþvegna og illa upplýsta fréttamenn á móti sér.
Eggert Sigurbergsson, 26.4.2013 kl. 02:22
Hugmyndir fréttamannanna um "samning", sem þjóðin á síðan að kjósa um, eru álíka gáfulegar og að gluða málningu á húsið sitt og ætla síðan að ákveða hvort þú ætlir að mála húsið eða ekki.
Furðulegt að fréttamenn, sem eiga að vera með gagnrýna hugsun, láti sér ekki detta í hug að ekki sé allt með feldu eftir árangurslausa "samninga" í fjögur ár!
ÞAÐ ER EKKI BÚIÐ AÐ SEMJA UM EITT NÉ NEITT Á FJÓRUM ÁRUM!
Eggert Sigurbergsson, 26.4.2013 kl. 02:42
Haha... "fréttamönnunum" svíður sennilega sárt, að það skuli hafa verið Jón Bjarna sem flengdi þau svo eftirminnilega.
Það verður æ ljósara, að spúla þarf duglega út úr Efstaleitinu.
Hilmar (IP-tala skráð) 26.4.2013 kl. 05:01
Jón Bjarnason er "risaeðla" sem veit ekkert hvað er í gangi í dag, forpokaður verndari gamla dýra landbúnaðrins, enda bóndasonur úr Bjarnarhöfn. Fáranlegt að láta út úr sér að við borgum mikið fyrir viðræður við ESB eða 300 milljónir en á sama tíma hefur Ísland fengið 6,5 milljarða í styrki (gjöf) frá ESB, er erfitt að reikna hvar hagnaðurinn liggur ?
Skarfurinn, 26.4.2013 kl. 09:20
Aha við þurfum sem sagt snýkjur og gylliboð til að láta kaupa okkur inn í ESB. Hvar er stoltið í fólki sem talar þannig? Jón er einn af þeim heiðarlegu mönnum sem þora að standa við sannfæringu sína og þau loforð sem hann gaf kjósendum, ólíkt flestum VG og Samfylkingarfólki.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.4.2013 kl. 09:23
Það er merkilegt að sjá, að ESB-sinnar telja mútu-greiðslur eðlilegar í samskiptum Samfylkingar við umheiminn. Hérna talar einn af þessum mútu-þegum um 6,5 milljarða sem hann og félagar hans hafa fengið frá Brussel, en þá er sjálfsagt ekki allt talið.
Loftur Altice Þorsteinsson.
Samstaða þjóðar, 26.4.2013 kl. 09:32
Ásthildur afhverju heldurðu að framboðs Jóns fá innan við 1% atkvæða (samkv. könnunum), er ekki einhver ástæða fyri hans óvinsældum ?
Skarfurinn, 26.4.2013 kl. 09:38
Loftur talar eins og ég persónulega hafi fengið styrk, þetta eru aðallega verkefnastyrkir til félaga og fyrirtækja og einnig til vísindatilrauna, veitir varla af eins og ríkissjóður stendur illa, er ekki sama hvaðan gott kemur ?
Skarfurinn, 26.4.2013 kl. 09:41
Heldur skarfurinn að ESB haldi áfram að múta "rétta" fólkinu á Íslandi, þegar búið er að aðlaga og innlima Ísland?
Ef hann heldur það, er rétt að hann líti á þjóðirnar sem þjást unda kúgun ESB, eins og t.d Kýpur.
Og af hverju notar ESB mútuféð ekki til að gefa svöngum i ESB að éta, eða hjálpa þeim um lyf?
Næg er neyðin innan ESB, þar sem hvert atvinnuleysismetið á fætur öðru, er sett.
Hilmar (IP-tala skráð) 26.4.2013 kl. 10:03
Ég gef frekar lítið fyrir skoðanakannanir í dag, við skulum sjá þegar talið er upp úr kössunum. Annars kýs ég ekki Jón, ég er frambjóðandi í Dögun bara svo það sé á hreinu. En ég þekki heiðarleikann þegar ég sé hann, og reyni að verja hann hver sem í hlut á.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.4.2013 kl. 10:04
Tæru snillingarnir í ríkisstjórninni herteknu, höguðu setningunum þannig á minnisblaðinu sem heimilaði "umsóknina", að ekki væri hægt að sækja um aðild, nema með ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu í lokin. Nú er umsóknin farin af stað. Enginn þorir þó að segja frá þessum raunveruleika opinberlega, og fyrir því eru eflaust margar ólíkar ástæður. Allir eru mannlegir og gera mistök. Sumir viljandi og sumir óviljandi.
Hringlanda-þvælunet snillinganna í æðstu fílabeinsturnunum kunna að blekkja og svíkja þá sem eru neðar í píramída-fílabeinsturninum. Það stendur í raun skýrt í minnisblaðinu frá 2009!
Það dugar ekkert annað en samstaða allra gegn þessu hernámi bankamafíunnar. En það sér enginn raunveruleikann eins og hann er í raun, því fjölmiðlarnir hafa leikið höfuðhlutverk í banka-blekkingarleiknum í áratugi!
Jón Bjarnason hefur gert allt sem var í hans takmarkaða valdi, til að tryggja almenningi á Íslandi einhverja lífsbjörg úr sjó, áður en heljarhöndin valdamikla og ósýnilega tæki restina! Jón Bjarnason á heiður og þakkir skilið!
Heimsbyggðin verður að vakna!
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 26.4.2013 kl. 12:44
Mikið rosalega ertu fáfróð Anna Sigríður, ég á bara ekki orð, ertu heilaþvegin eða hvað ? til hvers að kjósa framboð sem nær bara 1% atkvæð, er það ekki að henda atkvæðinu útum gluggann ?
Skarfurinn, 26.4.2013 kl. 14:04
Ef Jón hefur fengið fréttamannina inn á þá skoðun að við séum í aðlögunarferli en ekki samningaferli þá hefur honum ekki tekist að uppfræða þá heldur að blekkja þá. Við erum nefnilega ekki í neinu aðlögunarferli vegna ESB umsóknar okkar. Við höfum hins vegar verið í stöðugu aðlögunarferli í tvo áratugi vegna EES aðildar okkar og eru það einu aðlaganirnar sem eru í gangi. Eða gat Jón nefnt einhver dæmi um aðlögun og fært rök fyrir því að hún hafi ekki verð nauðsynleg vegna EES samningisn. Það hefur engum þeirra sem halda þessu dómsdagsbulli með aðlögunarviðræður tekist að sýna fram á.
Viðræðurnar snúast um tímasetningar á aðlögun sem fer fram milli þess tíma sem aðild er samþykkt og þangað til að formlegri aðild verður og fer það ferli aðeins í gang verði aðild samþykkt. Það er aðalreglan þó vissulega verði hugsanlega undantekningar frá því varðandi breytingar sem taka lengri tíma en þetta.
En aðalatriðið er það að ef aðildarsamningur verður felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu þá mun ekkert óafturkræft hafa átt sér stað.
Sigurður M Grétarsson, 26.4.2013 kl. 16:15
Sigurður M Grétarsson.
"En aðalatriðið er það að ef aðildarsamningur verður felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu þá mun ekkert óafturkræft hafa átt sér stað."
Hvernig má það vera? Hvað með öll lög sem tekin hafa verið upp til að auðvelda innlimun. Eitt af verkefnunum var að selja bankana. Hvernig verður hægt að vinda ofan af þeim gjörningi þannig að hlutirnir verði eins og fyrir sölu? Er það ekki óafturkræfur gjörningur?
Benedikt V. Warén, 26.4.2013 kl. 16:43
Þótt ég sé ekki tilbúinn að fyrirgefa Jóni Bjarnasyni Icesave-svikin, þá verður að segja að hann hefur staðið sig vel í baráttunni gegn ESB.
Jón benti á það í gær, að við eigum að ljúka viðræðunum við ESB með slitum. Það er einfaldlega eini kosturinn í þessari stöðu, nema menn vilji hafa þetta ógeðslega mál hangandi yfir þjóðinni allt nærsta kjörtímabil.
Ekki gagnar neitt að "leggja viðræður til hliðar" heldur verður að slíta þeim á sama hátt og þær voru hafnar, það er að segja með ályktun frá Alþingi. Til að knýja Alþingi til að gæta sóma síns og landsins, er mikilvægt að allir þjóðhollir Íslendingar undirriti áskorunina:
http://samstada-thjodar.blog.is/blog/samstada-thjodar/entry/1294722/
Loftur Altice Þorsteinsson.
Samstaða þjóðar, 26.4.2013 kl. 16:51
Það verður ekki búið að setja nein lög fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu nema hugsanlega að það tengist liðum sem ekki er hægt að klára á einu og hálfu til tveimur árum. Í þeim tilfellum verður ef þau verða til staðar þá verður ekki búið að gera neitt sem ekki er hægt að taka til baka.
ESB reglur banna ekki ríkisbanka og það er því engin krafa um sölu banka í aðildarviðræðum við ESB. Það eina sem ESB reglur banna í því samhengi er að ríksibankanrir fái fyrirgreiðslu sem einkabankar fá ekki eins og til dæmis ríkisábyrð á skuldum þeirra. Það er reyndar eins gott eftir reynslu síðustu ára.
Sigurður M Grétarsson, 26.4.2013 kl. 16:54
I Króatíu eru tvö ár síðan köflum var lokað og þeir eru farnir að vinna samkvæmt ESB regluverkinu, en hafa ekki ennþá fengið að kjósa um "samninginn", þannig verður þetta líka hér ef þetta verður ekki stöðvað.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.4.2013 kl. 19:08
Þetta er rangt Áshildur. Króatar samþykktu aðild að ESB fyrir ári síðan og eru því núna í því aðlögunarferli sem fer fram milli samþykktar og aðildar. Þeir verða formlega aðilar að ESB þann 1. júlí í ár ef ég man rétt. Hjá þeim var ekki búið að gera neinar óafturkræfar aðlaganir fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu.
Sigurður M Grétarsson, 26.4.2013 kl. 23:05
Að loknum morgundeginum fær Samfylkingarfólk góðan (langan) tíma til að láta sig dreyma um ESB, ekki styttri en 100 ár
Loftur Altice Þorsteinsson.
Samstaða þjóðar, 26.4.2013 kl. 23:57
Aðrir eins "fréttamannabjálfar", sem ætluðu sér að éta Jón Bjarnason í "sjónvarpi allra landsmanna", hafa tæpast orðið að meira athlægi á öldum ljósvakans. Þvílíkir amatörar og illa upplýstir spyrlar, hafa ekkert erindi í fjölmiðlum, sem þáttastjórnendur. Það er lágmarkskilyrði að fréttamenn á ríkisfjölmiðli sýni hlutleysi, en um leið ákveðna grimmd við pólitíska frambjóðendur fyrir kosningar, sem og ávallt. Að horfa á þetta spyrjendapar niðurlægt af Jóni Bjarnasyni, var ekkert annað en grátbroslegt og flutti manni heim sanninn um það að á fréttastofu RÚV vinnur lítið annað en forritað evrópusambandsaðildarsinnað fólk. Ömurlegt að ekki skuli vera hægt að segja sig frá því að borga fyrir þessa óværu. Fréttastofa RÚV er rúin trausti og algerlega ófær um að flytja fréttir á hulausan hátt, þegar kemur að öllu þessu blessaða evrópusambandskjaftæði öllu saman. Svona álíka truverðug og urriðakynlífsfræðingur á saga class og fimm stjörnu hótelum í Brussel. Frussss á fréttastofu RÚV!
Halldór Egill Guðnason, 27.4.2013 kl. 01:51
Loftur. Þegar fólk áttar sig á því að ástæða þess að það ber mun þyngri byrðar vegna húsnæðislána en fólk í nágrannalöndum okkar er krónan en ekki verðtrygtgingin þá getur mikið breyst varðandi stuðning við ESB aðild. Verði verðtrygging bönnuð eins og margt bendir til þá áttar fólk sig fljótlega þegar engin þeirra vandamála sem henni eru ætluð leysast eða minnka. Þá fara böndin flótt að berast að hinum raunverulega sökudólg það er krónunni.
Svo skemmir ekki fyrir ef fólk verður meira upplýst um hvað felst raunverulega í ESB aðild. Þá áttar fólk sig á því að uppistaðan í áróðri ykkar ESB andstæðinga er lítið annað en mýtur og innistæðulaus hræðsluáróður. Fullyrðingin um að við séum í aðlögunarferli að ESB vegna ESB aðildar og því verði ekki aftur snúið ef ferlið fær að halda áfram er gott dæmi um það svo ekki sé talað um bullið um að við munum missa sjávarauðlindir okkar.
Sigurður M Grétarsson, 27.4.2013 kl. 08:24
Sigurður, staðreyndin er sú að Flotkrónan veldur stöðugri verðbólgu. Hrunið var óvenju mikið gengisfall Krónunnar og af því leiddi óvenju mikil verðbólga. Verðtryggingin skapaði síðan þann forsendubrest húsnæðislána, sem ég og fleirri vilja leiðrétta með aðför að Hrægömmunum.
Samfelld lág verðbólga er ekki stórt vandamál, vegna þess að laun og aðrar hagbreytur hafa svigrúm til að aðlagast. Þeim sem telja verðbólgu vera gott hagstjórnartæki skjátlast, því að samfelld lág verðbólga nær ekki að skapa eignabruna eða lækka laun. Almenningur stendur af sér lága verðbólgu og gefur ekki gaum að skaðlegum áhrifum flotgengis á afkomu til lengri tíma.
Hins vegar koma við fyrirkomulag flotgengis alltaf tímabil þegar allt fer úr böndunum. Þetta er einkenni á smáum hagkerfum sem vegna smæðar eru háð utanríkisviðskiptum. Við gengisfall skellur á smáu hagkerfi flóðbylgja verðhækkana, sem stórt hagkerfi finnur ekki fyrir. Það er við gengishrun sem byrðar lenda á almenningi, bæði eignabruni og hlutfallsleg lækkun launa.
Ef taka á upp fastgengi verður að gera það strax eftir gengishrun, þegar fólk finnur skaðsemina á eigin skinni. ESB-sinnar benda á kosti fastgengis, en vilja eingöngu tala um fastgengi með Evru. Þess vegna sjá allir að röksemdir ESB-sinna eru blekkingar. Öðrum gjaldmiðlum fylgja ekki pólitískir ókostir Evrunnar. Þess vegna er mikilvægt að slíta viðræðum við ESB og hefja alvöru undirbúning að upptöku fastgengis.
Þegar öllum er orðið ljóst að Evran er úr sögunni, má jafnvel hugsa sér að fólk eins og þú leggir lið baráttu fyrir upptöku fastgengis, með öðrum gjaldmiðli en Evru. Fastgengi er hægt að ná með tveimur atferðum, sem eru jafngildar hvað varðar stöðugleika, en ekki varðandi hagkvæmi. Þessar lausnir hefur þú lesir um í blaðagreinum mínum.
Loftur Altice Þorsteinsson.
Samstaða þjóðar, 27.4.2013 kl. 11:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.