Leita í fréttum mbl.is

Fjárfestar spá nýrri evrukreppu í sumar

eurobrokenMeirihluti evrópskra fjárfesta telur að ný evrukreppa muni skella á í sumar. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunnar á vegum matsfyrirtækisins Fitch Ratings.

Þetta kemur fram á visir.is í dag.

Þar kemur ennfremur fram:

„Fjallað er um málið á vefsíðu börsen. Þar segir að fjárfestar þeir sem tóku þátt í könnuninni stjórni samanlagt fjármagni sem nemur um 8.600 milljörðum evra.

Fram kemur að 59% af þessum fjárfestum reikna með nýrri evrukreppu í sumar. Þar af segja 29% að sú ró sem komist hefur á fjármálamarkaði í Evrópu undanfarnar vikur og mánuði verði ekki langlíf. 30% segja að markaðir hegði sér ekki eðlilega í augnablikinu og horfi framhjá merkjum um að efnahagsleg framtíð Evrópu lítur ekki vel út sem stendur.

Afgangurinn eða 41% telur hinsvegar að það versta sé yfirstaðið hvað varðar skuldakreppuna á evrusvæðinu. Gífurleg inngrip seðlabanka Evrópu hafi bjargað stöðunni og aukið bjartsýni á framtíðina.

Fitch Ratings hallast að skoðunum þeirra svartsýnu í hópi fyrrgreindra fjárfesta. Fitch bendir á þversögnina sem ríkir í efnahagsmálum Evrópu þar sem á aðra hönd hefur verið mikill uppgangur í kauphöllum álfunnar en á hina höndin haldi atvinnuleysi stöðugt áfram að vaxta í flestum löndum hennar.“


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 193
  • Sl. sólarhring: 193
  • Sl. viku: 1637
  • Frá upphafi: 1120093

Annað

  • Innlit í dag: 166
  • Innlit sl. viku: 1383
  • Gestir í dag: 158
  • IP-tölur í dag: 158

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband