Leita í fréttum mbl.is

Fyrstu viðbrögð ESB sýna hroka í garð ríkisstjórnarinnar og Íslendinga

Það var eftir því tekið að fulltrúar ESB sögðust í dag ekki vilja tjá sig um stefnu nýrrar ríkisstjórnar fyrr en það kæmi raunverulega í ljós hver stefnan væri. Raunverulega! Það er ekki laust við að þessi viðbrögð sem RUV endurflutti í dag sýni talsverðan hroka í garð Íslendinga.

Af þessum ummælum mætti ætla að fulltrúar ESB telji að það sé ekkert að marka það sem stendur í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar!

Það er skiljanlegt að einhverjir embættismenn og pólitíkusar í ESB séu í áfalli yfir því að ný ríkisstjórn á Íslandi ætli að stöðva viðræðurnar við ESB. Það sem er hins vegar áhugavert er hvort forysta ESB fari í verulega fýlu og reyni að vinna gegn Íslendingum á einhverja lund. Ýmsir hafa látið slíkt í veðri vaka.

Það er því spurning hvort ekki þurfi að ræða eitthvað við fulltrúa ESB hér á landi og jafnvel hjálpa þeim undirbúa fyrirséða brottför sína. Fulltrúar ESB hafa svo sem verið ákafir til þessa að ræða sín mál við Íslendinga.


mbl.is Áfall fyrir Evrópusambandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Af þessum ummælum mætti ætla að fulltrúar ESB telji að það sé ekkert að marka það sem stendur í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar og að fulltrúar ESB hafi ekki fengið hann í hendur 2 dögum fyrir undirritun....

Ákvörðun nýrrar ríkisstjórnar Íslands að setja viðræður um inngöngu í Evrópusambandið á ís er áfall fyrir sambandið. Þetta segir Bruno Waterfield, fréttaritari breska dagblaðsins Daily Telegraph sem hefur tekið sér það hlutverk óumbeðinn að tala fyrir ESB....

Það er óskiljanlegt að einhverjir embættismenn og pólitíkusar í ESB skuli vera í áfalli yfir því að ný ríkisstjórn á Íslandi ætli að stöðva viðræðurnar við ESB. Næstu dögum verður samt eytt í að reyna að finna einhverja þar sem það hefur ekki tekist enn þrátt fyrir mikla leit....

SonK (IP-tala skráð) 23.5.2013 kl. 10:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.12.): 102
  • Sl. sólarhring: 471
  • Sl. viku: 2452
  • Frá upphafi: 1175741

Annað

  • Innlit í dag: 96
  • Innlit sl. viku: 2199
  • Gestir í dag: 96
  • IP-tölur í dag: 95

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband