Leita í fréttum mbl.is

Hvað skyldi Árni hafa sagt fleira?

hjortur_101493"Fyrr í dag fór fram fundur á Akureyri þar sem umfjöllunarefnið var evran og landsbyggðin. Helzt mætti skilja af frétt Vísi.is af fundinum að það eina sem Árni Matthiesen, fjármálaráðherra, hafi sagt á honum væri að peningamálastefna Seðlabankans hefði ekki virkað sem skyldi undanfarið. Einhvern veginn tel ég næsta víst að Árni hafi sagt ýmislegt fleira þar sem hann mun hafa verið einn af framsögumönnum fundarins. En blaðamanni Vísis.is hefur greinilega þótt það eina fréttnæma í máli hans að hann skyldi gagnrýna það hvernig Seðlabankinn hefur haldið á málum."

Grein Hjartar J. Guðmundssonar má lesa í heild á bloggsíðu hans.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í stuttu máli sagði Árni stöðu efnahagsmála á Íslandi það sterka og góða að engin ástæða væri til að ræða um að taka upp annan gjaldmiðil. Ástæðu evru-umræðunar sagði hann að rekja mætti til þessa góða efnahagsástands. Reyndar dró aðeins af honum undir lokin þar sem hann viðurkenndi að peningastefnan væri ekki að virka alveg eins vel og hún þyrfti að gera en það væri öðrum að kenna en honum.
Edda Rós taldi ekki ráðlegt að taka upp evru í stað krónu og varaði við málflutningi þeirra sem teldu að slíkt myndi eitt og sér leysa flest vandamál. Hún taldi það einnig nánast útilokað að taka upp evru án þess að ganga í ESB. Hún taldi að með upptöku evru myndu vextir lækka en mikil óvissa væri um hvort stöðugleiki yrði í efnahgslífinu eftir það. Hún taldi evru-upptöku óhagsstæða landsbyggðinni og dreifbýlinu þar sem atvinnulífið væri frekar einhæft og síðar meira landinu öllu. Lokaorð hennar voru hinsvegar þau að skipti svo sem ekki öllu hvað gjaldmiðillinn héti - það þyrfti alltaf að stjórna honum og gaf það í skyn að eitthvað vantaði upp á slíkt í dag. Stöðugleikan þyrfti að tryggja hér heima hver sem gjaldmiðillin væri.
Björgólfur Jóhannsson varaði alvarlega við evrutali stjórnmálamanna sem hann taldi hið mesta óráð. Var ekkert hressari með efnahagsstjórnunina en Edda Rós.

Annars var þetta tíðindalítill fundur að mestu leiti og lítið rætt um fundarefnið sem slíkt, þ.e. Evran og landsbyggðin.

Björn Valur (IP-tala skráð) 22.2.2007 kl. 23:08

2 Smámynd: Lára Stefánsdóttir

Tek undir það með þér Björn Valur, menn slepptu fundarefninu og voru afar höfuðborgarmiðaðir og gleymdu algerlega að hagvöxtur á landsbyggðinni er harla lítill miðað við höfuðborgarsvæðið. Á árunum 1998-2004 var hann 39% á höfuðborgarsvæðinu en -6% á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum og einungis 11% á Norðurlandi eystra. Þess vegna var tilgangur með fundinum en höfuðborgarbúarnir á fundinum gerðu lítið með þetta og reyndar var Björgólfur beinlínis dónalegur við fræðimann úr Háskólanum á Akureyri að vera yfirhöfuð að tala um annað en landið að meðaltali. Ótrúlegt hvað höfuðborgarbúar geta orðið snakblindir á að það sé líf úti á landi. Edda Rós var með langbesta fyrirlesturinn og nefndi eilítið landsbyggðina en hinsvegar skautaði hún framhjá þessum gríðarlega hagvaxtamun. En eftir stendur að það hefur ekki verið nein byggðastefna í verki undanfarin ár og jöfnuður milli landsbyggðar og höfuðborgar lítill.

Lára Stefánsdóttir, 24.2.2007 kl. 01:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 97
  • Sl. viku: 690
  • Frá upphafi: 1116902

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 608
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband