Leita í fréttum mbl.is

Matvæli eru ódýrust hér á landi

Matarkarfan er ódýrust á Íslandi af Norðurlöndunum. Sérstaklega er tekið til þess að verð á kjöt- og mjólkurvörum sé lægra á Íslandi en í nokkru öðru Norðurlandanna.

Viðskiptablaðið greinir frá þessu og vitnar til könnunar á vegum Eurostat og OECD.

Í könnuninni er verðið umreiknað svo það sé samanburðarhæft miðað við kaupmátt.

Viðskiptablaðið segir svo frá:

Mikill munur er á matvöruverði innan ESB. Ódýrust er matarkarfan í Póllandi, eða 61% af meðaltali ESB, en dýrust í Danmörku þar sem verðið er 43% hærra en að meðaltali í ESB. Verð á kjöt- og mjólkurvöru er lægra á Íslandi en í nokkru öðru Norðurlandanna. Matvaran er þó um 18% dýrari en að meðaltali í ESB.

Svo er vitnað í Finn Árnason, forstjóra Haga og varaformann Samtaka verslunar og þjónustu:

„Íslensk verslun er að bjóða marga vöruflokka á hagstæðu verði í samanburði við nágrannalöndin,“ segir Finnur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvernig ætli þessi samanburður líti út ef miðað er við kostnað sem hlutfall af ráðstöfunartekjum..?

Það er kannski aukaatriði

Jón Bjarni Steinsson (IP-tala skráð) 13.7.2013 kl. 16:54

2 Smámynd: Gunnlaugur I.

Jón Bjarni Steinsson - Auðvitað væri lítið gagn í lágu matarverði ef að stærstur hluti launana færi samt sem áður í þessi innkaup.

Þess vegna segir sú hlutfallslega mæling miklu meira en þessi ein og sér.

En mælingar á því hvað hátt hlutfall ráðstöfunartekna fer í matarinnkaup hefur líka leitt í ljós að á Íslandi er það mjög lágt hlutfall samanborið við flest önnur Evrópulönd.

Þannig að það er sama á hvermig þetta er litið þá er Ísland utan ESB og án Evru að koma mjög vel út í þessum samanburði öllum !

Það er virkilega ánægjulegt.

Gunnlaugur I., 14.7.2013 kl. 14:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 830
  • Frá upphafi: 1117722

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 732
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband