Leita í fréttum mbl.is

ESB ræðst gegn Færeyingum

ESB ræðst nú gegn einni fámennustu þjóðinni í Evrópu eins og meðfylgjandi frétt ber með sér.

Í fréttinni segir að mikil reiði sé í Færeyjum með ákvörðun Evrópusambandsins að beita Færeyinga refsiaðgerðum vegna veiða þeirra á síld. Jacob Vestergaard, sjávarútvegsráðherra Færeyja, segir að Færeyingar muni selja síldina til Rússlands, Asíu og Afríku ef Evrópusambandið loki sínum mörkuðum.

Færeyingar hafa ákveðið að auka hlutdeild sína í síldarkvótanum úr 5% í 17%. Framkvæmdastjórn ESB hefur mótmælt þessari ákvörðun og í dag var tilkynnt að ESB myndi beita Færinga refsiaðgerðum vegna síldveiðanna. Færeyingum verður bannað að landa síld í höfnum ESB-landa, hvort sem henni er ætlað að fara á markað í ESB eða til annarra landa.

Í frétt mbl.is segir að Jacob Vestergaard segi í samtali við bt.dk að þessi ákvörðun sé furðuleg og ekki í samræmi við samskipti siðaðra þjóða. Hún sé ekki fallin til að stuðla að samkomulagi um skiptingu síldarkvótans. Hann segir að þó að Evrópumarkaður lokist þá hafi Færeyingar viðskiptasambönd við aðra markaði sem þeir muni nýta sér. Hann nefnir í því sambandi Rússland, Asíu og Afríku. Hann viðurkennir hins vegar að ESB-löndin hafi borgað hæsta verðið fyrir síldina. Ákvörðun ESB hafi því efnahagsleg áhrif í Færeyjum.


mbl.is Meinað að selja síld til ESB-landa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 160
  • Sl. sólarhring: 200
  • Sl. viku: 2272
  • Frá upphafi: 1112314

Annað

  • Innlit í dag: 135
  • Innlit sl. viku: 2043
  • Gestir í dag: 132
  • IP-tölur í dag: 131

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband