Þriðjudagur, 15. október 2013
Fiskveiðistefna ESB hefur ekki skilað tilætluðum árangri. Sambandið glímir að mörgu leyti við sömu vandamál og áður, meðal annars ofveiði, brottkast og niðurgreiðslur, og þarf margt að gerast áður en þau vandamál verða leyst að fullu. Þetta kom fram í erindi Gunnars Haraldssonar forstöðumanns Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands í gær.
Morgunblaðið greinir frá þessu í dag. Þar er vitnað til erindis Gunnars Haraldssonar á fjölmennri ráðstefnu sem haldin var í Háskóla Íslands í gær í minningu Árna Vilhjálmssonar prófessors.
Þar segir meðal annars:
Gunnar ræddi um hina sameiginlegu fiskveiðistefnu ESB og dró upp mynd af stöðu fiskveiðimála innan sambandsins.
Hann tiltók þau markmið sem fiskveiðistefnunni hefði verið ætlað að ná, til dæmis að koma í veg fyrir ofveiði og að gera sjávarútveginn sjálfbæran, og benti á að hún hefði ekki skilað tilætluðum árangri.
,,95% af fiskistofnunum í Miðjarðarhafinu eru ofveidd, 47% í Atlantshafinu. Niðurgreiðslur nema um 3,3 milljörðum evra sem jafngildir næstum því 50% af aflaverðmæti evrópskra skipa."
Þá sagði hann að annað vandamál væri skortur á áreiðanlegum upplýsingum um stöðu mála.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.