Leita í fréttum mbl.is

Hvað hefur Vilhjálmur Bjarnason á móti Sauðkrækingum?

Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í ræðu á Alþingi rétt í þessu að sig óaði við því að fullveldismál þjóðarinnar væru rædd á Sauðárkróki. Hann sagði að sig hefði rekið í rogastans yfir tíufréttum sjónvarps í gærkvöldi yfir því að það væri ein aðalfréttin að Heimssýn væri með fund um fullveldismálin á Sauðárkróki.

Hvað í ósköpunum á þessi þingmaður við?

Hvers konar dónaskapur er þetta í þingmanninum gagnvart Sauðkrækingum, gagnvart Norðlendingum og gagnvart Heimssýn?

Eru fullveldismálin eitthvert einkamál tiltekins hóps? Mega ekki aðrir ræða þau mál en þeir sem eru Vilhjálmi Bjarnasyni þóknanlegir? 

Hvað á svona málflutningur eiginlega að þýða?  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er bara hlægilegur barnaskapur 101 lattelepnandi einstaklings, sama hvaða flokki hann tilheyrir.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.2.2014 kl. 18:43

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það er ástæðulaust að taka mark á manni sem helst sínir sig í að vera hrokafullt monthænsn.

Hrólfur Þ Hraundal, 20.2.2014 kl. 19:32

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það sem mér finnst óeðlilegt við þessi ummæli Vilhjálms, er að hann lætur þau falla í ræðustól Alþingis.

Allir vita að Vilhjálmur er ekki sáttur við þann stjórnarsáttmála sem nú gildir, þykir of mikið hallað á fjármagnsöflin í honum. Þá er einnig vitað hvert álit hann hefur á samstarfsflokknum. Það er auðvitað honum í sjálfsvald sett hvort hann er sáttur eða ósáttur við þennan stjórnarsáttmála, en sem þingmaður annars stjórnarflokksins ber honum að ræða þá ósátt sína innan síns flokks.  

Nái hann ekki árangri á þeim vígstöðvum og geti hann ekki sætt sig við meirihlutavilja sinna félaga þar, hefur hann auðvitað það val að segja sig frá þingmennsku, nú eða fara að dæmi þeirra vinstrimanna sem ekki sættu sig við síðustu ríkisstjórn og segja sig úr þingflokknum.

Þegar stjórnarliði rægir ráðherra í ræðustól Alþingis, er eitthvað stórkostlegt að. Þá er virkilega þörf fyrir þann þingmann að skoða sjálfan sig og sína stöðu. 

Gunnar Heiðarsson, 20.2.2014 kl. 20:35

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála Gunnar, hafði á tímabili álit á þessum manni,en það er löngu fokið út í veður og vind.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.2.2014 kl. 20:40

5 identicon

Enn og aftur kemur í ljós að Vigdís kann ekki íslensku. Kannski hún ætti að fara á íslenskunámskeið fyrir með fullri virðingu fyrir ítlendingum. Ekki nær hún henni í íslenskum skólum.

Hræddur er ég um að Sauðkræklingar hlæji sig máttlausa yfir þessum skrifum.

Hafþór Baldvinsson (IP-tala skráð) 20.2.2014 kl. 21:37

6 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Vilhjálmur var eins og hann væri að tala við sjálfan sig en ekki um skýrsluna sem átti að fjalla um. Silja Dögg var hinsvegar toppurinn og mjög málefnaleg.

Valdimar Samúelsson, 20.2.2014 kl. 21:38

7 Smámynd: Elle_

Hver er punkurinn þinn, Hafþór, nema bara rægja Vigdísi?  Og hvar kom fram að Vigdís hafi skrifað pistilinn?  En þar sem þú vilt vera svona ofurnákvæmur og skrifar kannski aldrei neitt vitlaust, hvað þýðir ítlendingum?

Elle_, 20.2.2014 kl. 22:17

8 Smámynd: Elle_

Vá, eins gott að laga orðið punktur, þetta átti að vera punkturinn þinn, með t-i.

Elle_, 20.2.2014 kl. 22:17

9 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Hahaha. Vilhjálmur góður.

Grenjiði nú andsinnar.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.2.2014 kl. 22:25

10 Smámynd: Elle_

Og eitt enn, Hafþór, meðan andinn (öndin?) Ómar er að grenja, það á að skrifa HLÆI, ekki hlæji.  Meira að segja ég veit þetta.

Elle_, 20.2.2014 kl. 22:38

11 Smámynd:   Heimssýn

Ágæti Hafþór.

Orðabækur og málfarsbankar vilja hafa þetta heiti á Sauðkrækingum eins og stendur skrifað.

Sjá hér:

http://malfar.arnastofnun.is/?p=4332

Og fyrst við erum að tala um íslenskt mál þá má upplýsa þig um það að það eru þrjár íslenskuvillur í textanum þínum.

Heimssýn, 20.2.2014 kl. 23:40

12 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

,,Mig hins vegar óar við þeirri framtíð, sem við mér blasti í 10 fréttunum í gærkvöldi, þegar ég hugsaði til Þjóðbrókar mikillar – það var þáttur hér í útvarpi sem var kölluð Þjðoðbrók – þ.e.a.s. þegar herferð Heimssýnar þ.e.a.s. samtaka gegn hugsanlegri ESB-aðild, herferðin hófst á Sauðarkróki. Mig óaði við þeirri framtíð og ég óska að svo verði ekki. Og það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég horfði á fréttirnar voru orð Þorgeirs [Hávarssonar] í Fóstbræðrasögu eða Gerplu: ‘Ek em íslenskur maður og mig fýsir lítt að fara að siðum annarra manna.’

Kannski erum við Íslendingar ekki hæfir í samfélagi þjóðanna og að getur vel verið að það verði niðurstaða manna.

Ég veit að ég tala hér þvert á afstöðu flestra sjálfstæðismanna – eða þingmanna sjálfstæðisflokksins, – og ég leyfi mér það. En hins vegar þá vil ég vekja athygli á því að það eru margir sjálfstæðismenn, sérstaklega í stétt atvinnurekenda og þeirra sem bera ábyrgð á lífskjörum fólks í þessu landi, sem eru annarrar skoðunar en meginhluti þingflokks sjálfstæðisflokksins.

Og ég stend með íslensku atvinnulífi og vinnandi fólki og vil hag þess sem bestan, ég vil að þeir Íslendingar, sem munu búa hér í landinu eftir minn dag, muni búa í góðu landi og þess vegna óska ég eftir því að þessum aðildarviðræðum verði lokið með því að það verði samið ellegar að samningar takist ekki, þá nær það ekki lengra, og þá verðum við bara að lappa upp á þennan samning sem er kallaður samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið, sem er náttúrlega bráðabirgðagjörð. En guð forði mér frá því sem var að gerast á Sauðárkróki í gær." (Vilhjálmur Bjarnason)

Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.2.2014 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 457
  • Frá upphafi: 1121177

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 410
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband