Leita í fréttum mbl.is

Ísland hefði orðið Grikkland norðursins með evru segir Þorsteinn

Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði á fundi Evrópustofu, ASÍ, SA og SI í morgun að Ísland hefði orðið að Grikklandi norðursins ef við hefðum verið með evru fyrir hrunið.

Það er sem sagt mat aðalforystumanns samtaka atvinnulífsins að ástandið hér á landi hefði orðið hrikalegt ef við hefðum verið með evru fyrir hrunið og í hruninu.

Það er líklegt að þessi forystumaður í atvinnulífinu sé með puttann betur á púlsinum en ýmsir aðrir sprenglærðir spámenn sem hafa tjáð sig um efnahagsmálin og þróun þeirra.

Einn þeirra talaði um kúbverskt ástand ef við samþykktum ekki Icesave-klyfjarnar og annar um norður-kóreskt ástand. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Samtök Atvinnulífsins voru mönnuð skjólstæðingum útrásarþjófanna.

Nú kemur einn af þeirra "spámönnum" og bullar um Grikkland, Ísland og Evruna. Málið er að Grikkland fór mun betur út úr fjármálakreppunni en Ísland, enda eðlilegt, því íslenska Davíðshrunið var 90% heimasmíðað, þar sem SA og einnig Samtök Iðnaðarins (SI) voru protagonistar.

Það er ekkert víst að hér hefði orðið hrun, hefðum við haft alvöru gjaldmiðil. Í Sviss varð ekkert hrun, sem og í flestum löndum EU.

En við höfðum ekki aðeins ónýtan gjaldmiðil, heldur einnig ónýta stjórnmálamenn og ónýt samtök eins og SA og SI. 

Þorsteinn ætti að hafa vit á því að hafa sig hægan.

Og Heimssýn lepur upp vitleysuna!

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 28.5.2014 kl. 14:56

2 Smámynd:   Heimssýn

Órökstudd fullyrðingagleði einkennir færsluna hér að ofan. Eins og fréttir frá Grikklandi bera með sér er samdrátturinn þar og atvinnuleysið langtum meira en hér á landi. Ef evra hefði verið lögeyrir hér fyrir hrun hefði skuldasöfnun banka að líkindum orðið meiri en hún þó varð og að auki er næsta víst að íslenskir skattborgarar hefðu verið látnir axla ábyrgð á skuldum bankanna. Það var mikið lán að neyðarlögin voru sett hér á landi áður en samningar voru gerðir við AGS undir áhrifum frá ESB. Þér eruð hvattur til að lesa yður betur til, Haukur Kristinsson góður, og vera örlítið málefnalegri.

Heimssýn, 28.5.2014 kl. 17:31

3 identicon

Hver felur sig hér á bak við nafnið "Heimssýn"?

Bullið er slíkt, að eiginlega er það fyrir neðan mína virðingu að svara.

Og hvaða þéringar-stælar eru þetta, á þetta að vera sniðugt?

Nú, ef þið viljið svara mínum ummælum t.d. á þýsku, þá geri ég þá kröfu að vera ávarpaður "per Sie", en ekki "per Du".

Það kæmi mér hinsvegar á óvart, ef hinn nafnlausi væri ritfær á öðru máli en islensku.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 28.5.2014 kl. 18:43

4 Smámynd:   Heimssýn

Af hverju ræðir þú ekki málefnin, Haukur góður. Það væri hægt að fara í löngu máli yfir Grikkland, til dæmis. Eins og þér er kunnugt um, eftir að hafa fylgst með því sem hér á þessum vef er ritað, þá sækjum við efni okkar í ýmsa miðla erlendis, einkum á Norðurlöndum og í enskumælandi löndum, en okkar fólk kann ýmislegt fyrir sér í öðrum tungumálum líka, m.a. grísku. Það jók á ófarir Grikkja, eins og þú veist, þegar þeir gengust Efnahags- og myntbandalaginu á hönd og fengu vexti á lánum sem voru mun lægri en aðstæður á vel upplýstum markaði átti að veita. Fyrir vikið var skuldasöfnun Grikkja miklu meiri en annars hefði orðið. Svipað gerðist á Írlandi. Þegar Grikkir höfðu læst sig í evrunni töpuðu þeir markaðshlutdeild á útflutningsmörkuðum gagnvart Þýskalandi og kjarnaríkjunum vegna þess að Þjóðverjum tókst að halda betur aftur af verðhækkunum en Grikkir. Ítalir, Spánverjar og fleiri voru í sömu stöðu og Grikkir hvað þetta varðar. Þetta jók enn á skuldavanda grísku þjóðarinnar. Lausnin sem ESB færði Grikkjum var gífurlegur samdráttur í opinberri starfsemi sem jók á fátækt og félagslega neyð stórs hluta grísku þjóðarinnar. Nú er atvinnuleysi þar nálægt 30 prósentum og nálægt 50 prósentum í yngstu aldursflokkunum. Þetta eru málefnin, Haukur. Það er ágætt að kynna sér þau.

Heimssýn, 28.5.2014 kl. 20:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 83
  • Sl. sólarhring: 317
  • Sl. viku: 2328
  • Frá upphafi: 1112113

Annað

  • Innlit í dag: 68
  • Innlit sl. viku: 2079
  • Gestir í dag: 68
  • IP-tölur í dag: 66

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband