Leita í fréttum mbl.is

Ríkisstjórnin ekki lokið ESB-verkinu

esbneitakkRíkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hefur ekki lokið því verki að draga umsóknina um aðild að ESB formlega til baka. Stjórnin hefur fullt umboð til þess verks. Umboðið fékk hún í síðustu þingkosningum á grunni skýrrar stefnu flokkanna að halda Íslandi utan við ESB. Á því byggist stjórnarsáttmálinn og þau áform stjórnarflokkanna að draga umsóknina til baka.  Því verki er síður en svo lokið. Óljósar fregnir af fundum ráðherraráðs ESB í Brussel staðfesta það.

Fundargerð ráðherraráðs ESB frá 21. apríl síðastliðnum lýsir ekki skýrri afstöðu til þeirrar stefnu ríkisstjórnarinnar að Ísland verði tekið af lista yfir ríki sem sækja um aðild að ESB.

Í fundargerðinni segir:

Relations with Iceland

The Council agreed on a reply by the Minister for Foreign Affairs of Latvia to the Minister for Foreign Affairs of Iceland. The Council, taking note of the Icelandic position, will consider certain further practical adjustments to the EU Council working procedures on the EU accession negotiations.
 

Þessi fundargerð segir ekki skýrt hver framvindan verður. Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, krefst þess að umsókn um aðild Íslands að ESB verði tafarlaust dregin til baka. Jafnframt krefst Heimssýn þess að ESB viðurkenni rétt Íslands sem sjálfstæðis ríkis, en fálæti ESB gegn beiðni ríkisstjórnarinnar í þessum efnum sýnir ekkert annað en hroka embættis- og stjórnmálakerfisins í Brussel gagnvart þjóð okkar.

Það er því krafa okkar að ESB svari kröfum íslenskra stjórnvalda með afgerandi hætti en ekki einhverjum stjórnsýsluklækjum sem birtast í óskýrum fundargerðum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Er Ísland ekki hertekið af Maastricht hertökustjórnsýslunni?

Er ekki rétt að skoða og ræða raunverulega stöðu Íslands í EES/ESB?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 23.4.2015 kl. 22:39

2 Smámynd: Gunnlaugur I.

Við Heimssýnar félagar eigum enn skiltin góðu - "NEI við ESB" - og - ESB NEI TAKK" sem hér sjást á myndinni og þessar myndir eru við upphaf 1 maí göngunnar á Hlemmi 2013 stuttu eftir að ESB flokkarnir höfðu fengið  sína rssskellingu í kosningunum þá. 

Það er full ástæða til þess að við Heimssýnar fólk og aðrir sem styðja málsstað okkar með fullri friðsemd og makt notum þessi skilti okkar á 1. maí n.k. 

Gunnlaugur I., 23.4.2015 kl. 23:21

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Tek undir það Gunnlaugur. Okkar mótmælum fylgir ekki hávaði,en þeim mun frekar er ástæða til að minna rækilega á rétt okkar með fjölda skilta í göngunni.

Helga Kristjánsdóttir, 24.4.2015 kl. 08:45

4 identicon

1. Mal gangan er kröfuganga alls verkafólks á íslandi. Verkafólk á Íslandi mætir í þessa göngu til að sýna samhug og samstöðu og þjappa sér saman með sínar kröfur. Verkafólk í göngunni gengur með kröfuspjöld um ákall fyrir betri kjörum og betri aðbúnað til handa verkafólki.

1. Maí gangan á ekki að vera vettvangur fyrir pólitíska þrýsti hópa eins og Heimskssýn eða aðra pólitík almennt.

Verkafólk í 1. Maí göngunni næstkomandi mun gera sér grein fyrir því að hinn pólitíski þrýstihópur Heimssýnar hefur engan rétt á því að troða sér í gönguna með kröfur sem ganga gegn hagsmunum þess.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 24.4.2015 kl. 12:24

5 identicon

Þú gerir þér grein fyrir því, Helgi Jónsson að meirihluti verkafólks á Íslandi er andsnúinn ESB - aðild. 

Meirihluti félagsmanna í Heimssýn er án efa verkafólk. Á frídegi verkalýðsins má einmitt vekja athygli á því að flest verkalýðsfélög hafa haft ESB aðild í stefnu sinni. 

Alþýðusamband Íslands er ekki undantekning. Það vill ljúka aðildarferli að ESB þrátt fyrir mikla andstöðu félagsmanna. 

Fjáraustur ASÍ í skýrslur og rannsóknir með fyrirfram ákveðnum niðurstöðum er óforskammað og því ber að mótmæla. 

Hagsmunum verkafólks á Íslandi er best borgið utan ESB. Best borgið án kjaraskerðinga, atvinnuleysis og evrukreppu. 

Þeir einu sem græða á ESB - aðild á Íslandi eru þeir sem komast á spenan einmitt á kostnað verkalýðsins. 

Heiðrún Ásdís Hallsdóttir (IP-tala skráð) 25.4.2015 kl. 01:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.3.): 34
  • Sl. sólarhring: 420
  • Sl. viku: 2026
  • Frá upphafi: 1200793

Annað

  • Innlit í dag: 33
  • Innlit sl. viku: 1829
  • Gestir í dag: 33
  • IP-tölur í dag: 33

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband