Leita í fréttum mbl.is

Asklok fyrir himinn - um Evrópusambandsmál

Svona um ţađ bil tvisvar í viku hefur Fréttastofa ríkisútvarpsins ţađ eftir einhverjum hagfrćđingi ađ viđ verđum ađ ganga í Evrópusambandiđ ţví annars lendi bankarnir í vandrćđum eđa gengisáhćtta geri eigendum fyrirtćkja lífiđ leitt eđa efnahagslífiđ verđi fyrir einhverjum ámóta skakkaföllum.

Nú eru ţessar hagfrćđilegu predikanir um Evrópusambandiđ eins og hvert annađ hallelújahopp ađ ţví leyti ađ ţćr halda ţeim trúuđu viđ efniđ en sannfćra ekki okkur trúleysingajana sem spyrjum hvort bankar og fyrirtćki hér hafi ţađ eitthvađ verra en í Sambandsríkjunum og hvort meira sé um efnahagsţrengingar í Noregi, Sviss og á Íslandi heldur en t.d. í Svíţjóđ, Austurríki og Skotlandi.

Ţađ er annars ekki innihaldsleysiđ í ţessum bođskap sambandssinnađra hagfrćđinga sem fer fyrir brjóstiđ á mér. Mér finnst ađ forsendurnar, sem einhvern veginn liggja á milli línanna í ţessari umrćđu, séu meira áhyggjuefni. Ţađ er eins og gert sé ráđ fyrir ţví ađ spurningin um hvort ţađ sé skynsamlegt eđa óskynsamlegt ađ sćkja um ađild ađ Evrópusambandinu sé fyrst og fremst hagfrćđileg. Hún vćri ţađ kannski ef Ísland, Noregur og Sviss byggju viđ mun lakari kjör en Sambandsríkin og yrđu ađ sameinast ţeim til ađ dragast ekki enn meira aftur úr. En sannleikurinn er sá ađ engar efnahagslegar nauđur reka okkur til ađ ganga inn og ekki heldur til ađ standa fyrir utan og ţess vegna eru rökin sem mestu skipta alls ekki efnahagsleg heldur siđferđileg og pólitísk.

Ég held ađ flestir sem efast um ađ skynsamlegt sé ađ sćkja um ađild ađ Evrópusambandinu séu tortryggnir í garđ valdsins. Ţeir benda á ađ leiđin frá almennum kjósendum til ţeirra sem taka ákvarđanir fyrir ađildarríkin (hvort sem ţađ er ráđaherraráđiđ eđa framkvćmdastjórnin) sé of löng til ađ lýđrćđi virki, stjórnsýslan sé ógagnsć og almenningur hafi takmarkađan ađgang ađ rökrćđu um ákvarđanir. Hér er ţví á ferđinni pólitískt vald sem er ekki háđ lýđrćđislegu ađhaldi á sama hátt og ríkisvald í einstökum löndum. Reynsla Evrópuţjóđa af slíku valdi er vond – jafnvel verri en orđ fá lýst.

Ég held líka ađ ţeir sem vilja ađ Ísland sćki um ađild trúi ţví fćstir ađ hún breyti miklu um efnaleg kjör landsmanna. Ţeim finnst líklega ađ Evrópa eigi ađ mynda eina heild til mótvćgis viđ Bandaríkin eđa ađ ţađ sé til menningarauka ađ leggja rćkt viđ ţađ sem Evrópuţjóđir eiga sameiginlegt eđa ađ stefna Evrópusambandsins í einhverjum málum sé réttlát eđa göfug. Svo hafa sumir ţörf fyrir ađ trúa á eitthvert vald í útlöndum sem gerir hlutina rétt, öfugt fyrir framsóknardurgana hér heima.

Umrćđan um hvort viđ eigum ađ vera utan Evrópusambandsins eđa innan ţess ćtti ađ snúast um allt annađ en efnahag. En ef menn hafa asklok fyrir himin og kunna ekki ađ tala um nein önnur verđmćti en peninga ţá dettur ţeim ekkert gáfulegra í hug en ađ spyrja hagfrćđing hvort ţađ sé ekki vođa erfitt fyrir blessađa bankana ađ nota krónur og halda ađ svariđ skeri á einhvern hátt úr um hvort ţađ sé skynsamlegt ađ sćtta sig viđ ólýđrćđislegt vald.

Atli Harđarson,
heimspekingur

(Greinin birtist áđur á vefsíđu höfundar)


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 176
  • Sl. sólarhring: 205
  • Sl. viku: 916
  • Frá upphafi: 1232687

Annađ

  • Innlit í dag: 160
  • Innlit sl. viku: 795
  • Gestir í dag: 148
  • IP-tölur í dag: 143

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband