Leita í fréttum mbl.is

Göran Persson spáir hruni evrunnar

GoranperssonEinn helsti þungaviktarmaður jafnaðarmanna og Norðurlanda í evrópskri pólitík síðustu áratugina, forsætisráðherrann fyrrverandi í Svíþjóð, Göran Persson, segir í viðtali við sænska fjármáladagblaðið Dagens Industri í gær að stærsta ógnin sem ESB standi frammi fyrir sé hvorki úrsögn Breta né flóttamannavandinn heldur ný fjármálakreppa sem gæti kippt fótunum undan evrunni.

Göran Persson lék aðalhlutverkið í sænskum stjórnmálum frá 1994 til 2006 þegar hann fyrst sem fjármálaráðherra átti stóran þátt í því að Svíar gerðust aðilar að ESB og síðan sem forsætisráðherra frá 1996 til 2006.

Persson segir að lágvaxtastefna Seðlabanka evrunnar og fleiri seðlabanka sé helsta ástæðan fyrir þeirri ógn sem sé að byggjast upp gegn fjármálakerfinu. Hann segir að fjármálabólur séu að blása út sem geti sprungið fyrr en varir með látum. Persson óttast að eitt af stóru evrulöndunum muni lenda í erfiðleikum vegna fjármálakreppunnar og slíka erfiðleika muni fjármálakerfið á evrusvæðinu og í ESB ekki ráða við. 

Persson segir í viðtalinu að fari Bretar úr ESB gæti það auðveldað frekari samruna þeirra ríkja sem eftir verða. Hins vegar gæti þjóðaratkvæðagreiðslan í Bretlandi í júní um aðild að ESB orðið kveikjan að þeirri nýju fjármálakreppu sem hann óttast að skelli á. En jafnvel þótt atkvæðagreiðslan í Bretlandi verði ekki kveikjan að þeirri kreppu þá verði undirliggjandi fjármálavandi evrunnar tifandi tímasprengja sem geti sprungið hvenær sem er.

Naumur meirihluti Svía samþykkti aðild að ESB árið 1994 eða 52%. Árið 2004 höfnuðu 56% Svía því að taka upp evruna og samkvæmt síðustu könnunum hafa tæplega 80% Svía verið á móti því að taka upp evruna. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Hver er munurinn á hruni evrunnar, og hruni annarra innistæðulausra tölvubankafölsunargjaldmiðla heimsfjármálakerfisins? "Gjaldmiðla" sem ekki byggjast á neinu raunverulegra verðmæti, heldur en heimsveldis kauphallarspilavítis spákaupmennskulygi lánshæfismatsfyrirtækja-svikanna!

Alþjóðabankastýrðu og einokandi?

Erum við ekki bara alsæl og sátt við að ljúga og blekkja okkur sjálf og aðra aftur á byrjunarreit, í svokallaðri "siðmenntaðri" fjármálastjórnsýslu?

Réttlætt með:

"það var sagt mér það", í "Háskóla" heimsveldis-blekkingalygum og keyptra prófessora-réttlætingum?

Ekki satt?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 26.2.2016 kl. 20:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 161
  • Sl. viku: 742
  • Frá upphafi: 1232513

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 637
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband